30.03.1976
Sameinað þing: 71. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2851 í B-deild Alþingistíðinda. (2361)

Umræður utan dagskrár

Tómas Árnason:

Herra forseti. Ég hef nú eins og flestir þm. hlustað á langar og margar umræðulotur um landhelgismálið hér í vetur. Eins og gefur að skilja hefur það komið í hlut ráðh., ríkisstj., fyrst og fremst að mæla fyrir landhelgismálinu, bæði í sókn og vörn. En ástæðan fyrir því, að mig langaði til að leggja hér nokkur orð í belg, er að inn í þessar umr. hefur blandast sérstaklega opnun á svæði á svokölluðu Berufjarðarhorni og Papagrunni sem var opnað fyrir nokkrum dögum fyrir botnvörpuveiðum. Það hefur komið fram í umr. að togaraskipstjórar á Austurlandi hafa lagt á það mikla áherslu og verið sammála um að halda þessu svæði lokuðu. Það kom fram í máli hæstv. sjútvrh, að það færi fram rannsókn á því af hálfu Hafrannsóknastofnunarinnar um þessar mundir, hvernig ástatt væri á þessu svæði, og þegar niðurstöður af þeirri athugun lægju fyrir, þá skildist mér á hæstv. ráðh. að hann mundi taka málið til nýrrar athugunar. Erindið, sem ég á raunar upp í pontuna að þessu sinni, er fyrst og fremst að óska eftir því við hæstv. ráðh. — hann er nú því miður ekki hér staddur — að hann beiti sér fyrir því að hraða þessari athugun sem mest má verða, þannig að það verði hægt að taka þetta mál alveg sérstaklega til endurathugunar og endurmats.

Það hefur ekki farið fram hjá neinum að í allan vetur, síðan landhelgisdeilan hófst við breta, hafa þeir beitt sínum fiskiflota nær einvörðungu á Austfjarðamiðum, allt upp í 40-50 skip. Austfirðingar hafa því orðið að sækja á fjarlæg mið, að sjálfsögðu með ærnum kostnaði. Þeir telja þetta ekki eftir vegna þess að þeir vita vel að þetta er liður í landhelgisstyrjöld allrar þjóðarinnar við bretana. En það kann að verða mál síðari tíma að jafna metin ef styrjöldin leggst með óeðlilegum þunga á vissa landshluta, en það er mál íslendinga sjálfra og hefur engin áhrif á landhelgisstyrjöldina við breta sem virðist hafa farið harðandi upp á síðkastið.

Varðandi þær umr., sem hér hafa farið fram í tilefni af mjög harkalegum árekstrum á Austfjarðamiðum nú um helgina, þá hefur hæstv. dómsmrh. gert grein fyrir hvernig háttað hefur verið aðgerðum af hálfu ríkisstj. varðandi eflingu Landhelgisgæslunnar. Það hefur komið fram, sem raunar er öllum vitanlegt, að landhelgisgæslan hefur verið stórkostlega efld á seinustu mánuðum. Hún býr nú yfir 4 mjög góðum varðskipum: Tý, Óðni, Ægi og Þór. Hún hefur á að skipa pólskum togara, Baldri, sem hefur reynst miklu betur í þessari styrjöld heldur en ég og margir aðrir töldu, þegar hann var tekinn á leigu, og hefur náð ótrúlegum árangri í þeim stimpingum sem þarna fara fram. Síðan ræður landhelgisgæslan yfir Fokker Friendship flugvél og á aðra, eins og kunnugt er, í pöntun, ef svo mætti segja, sem kemur til nota á næstu mánuðum. Landhelgisgæslan hafði keypt til afnota stóra þyrlu sem eyðilagðist, og það er í athugun, eins og kom fram í máli dómsmrh., að fá aðra í stað hennar. Síðan hefur það gerst nú að ríkisstj. hefur ákveðið að taka á leigu tvo togara til viðbótar og beita öðrum við landhelgisgæsluna sérstaklega.

Það þarf ekki að deila um það að mínum dómi, að það er nauðsyn á að bæta við skipum til fiskirannsókna og fiskileitar. Það þarf ekki heldur að deila um það að einnig er nauðsynlegt að efla landhelgisgæsluna. Ég er þeirrar skoðunar að með þessum aðgerðum öllum sé landhelgisgæslan að verða býsna öflug miðað við okkar fjárhag og okkar getu. En það má auðvitað alltaf bæta þar um. En ég tók eftir því að hv. þm. Ragnar Arnalds sagði í sinni ræðu að þeir alþb.— menn hefðu flutt um það till. við afgreiðslu fjárl. í vetur að veita 300 millj. til Landhelgisgæslunnar sérstaklega. Það segir auðvitað enga sögu, vegna þess að það fylgdi engin till. um hvernig ætti að afla þessa fjár. Þetta var útgjaldatill. á fjárl. sem voru afgreidd með það naumum hætti að það varð auðvitað að fylgja svo hárri upphæð till. um fjáröflun ef átti að taka mark á henni. En hins vegar er miklu meira mark takandi á því sem kom fram hjá hv. 2. þm. Austurl. hér áðan, að þeir alþb.- menn væru reiðubúnir til þess að taka þátt í fjáröflun til þess að efla landhelgisgæsluna, og það er auðvitað það sem máli skiptir. Það hefur stundum verið á það bent að ástæða væri til þess að Leggja á þjóðina sérstakan landhelgisskatt. Það er háttur þjóða, sem eiga í styrjöldum, að leggja á gjöld til þess að standa straum af styrjaldarkostnaði. Og það er ástæða til þess að taka undir það með hæstv. dómsmrh., þegar hann fagnaði þeirri afstöðu stjórnarandstöðunnar að hún væri reiðubúin til þess að standa að fjáröflun til eflingar landhelgisgæslunni.

Til viðbótar við þetta eru svo þær eftirgrennslanir sem ríkisstj. hefur staðið fyrir um að afla sérstaks hraðbáts til landhelgisgæslunnar. Varðandi hraðbáta og gagnsemi þeirra dreg ég dálítið í efa hvaða gagn er hægt að hafa af hraðbátum við gæslustörf. En um það ern skiptar skoðanir. Ég álít að skip eins og Týr og Óðinn og sú gerð skipa komi sennilega, þegar á allt er lítið, að bestum notum í sambandi við landhelgisgæsluna hjá okkur, eins og hér háttar málum. En ég held að það verði ekki á neinn hátt með rökum hægt að halda því fram að landhelgisgæslan hafi ekki verið stórkostlega efld á seinustu missirum og mánuðum, — stórkostlega efld, og ég held að það verði ekki hægt að deila á ríkisstj. fyrir það að hún hafi ekki gert verulegt átak í því efni að efla landhelgisgæsluna.

Svo er hitt atriðið, hvernig landhelgisgæslunni hefur verið beitt. Ég er þeirrar skoðunar að henni hafi verði beitt alveg til hins ítrasta í þessu stríði og í raun og veru ekkert eftir annað en takast á eins og gert er í styrjöldum. Ég held því að það verði ekki hægt að saka yfirstjórn landhelgisgæslunnar um það að landhelgisgæslunni hafi ekki verið beitt til hins ítrasta, vildi ég segja, og verið teknar stórar áhættur í sambandi við það, eins og öllum er raunar kunnugt um.

En það er alveg sýnilegt að deilan hefur farið harðnandi. Mönnum hættir til þess, þegar þeir hlusta á umr. um landhelgismálið, og landhelgisdeiluna, að skoða þær aðgerðir, sem ríkisstj. hefur gert í þeim efnum og bera saman við seinasta landhelgisstríð, seinustu landhelgisstyrjöld. Vegna þess að svo vel vill til að hv. 2. þm. Austurl., sem hefur verið einna skeleggastur af hálfu þeirra stjórnarandstæðinga í umr. um landhelgismálið, sat í fyrrv. ríkisstj. sem átti í landhelgisstríði, þá er eðlilegt að menn beri saman aðgerðir þessara tveggja ríkisstj. í þeim styrjöldum sem við höfum háð um landhelgina. Það er athyglisvert í fyrsta lagi að landhelgisdeilan núna eða styrjöldin hefur staðið í 4–5 mánuði, en hún stóð á annað ár árin 1972–1973, þannig að það er kannske of snemmt að kenna mikillar óþolinmæði í þessu máli. Það var ekki sóst eftir því þá, ef ég man rétt, að fá sérstaka hraðbáta, eins og nú er talað um, til gæslustarfa. Ég held að landhelgisgæslunni hafi ekki verið beitt af eins mikilli hörku í fyrra þorskastríðinu og núna. Það er mín skoðun. En það stafar náttúrlega af því að deilan hefur verið harðari einnig af hálfu bretanna. Það var ekki kært til Öryggisráðsins á þeim 12 mánuðum sem landhelgisstyrjöldin 1972–1973 stóð yfir. Málið var ekki tekið upp hjá Sameinuðu þjóðunum og kært til Öryggisráðsins. Málið var ekki kært til NATO á þann hátt sem nú hefur verið gert, ef ég man rétt. Og það var ekki tekið upp á vettvangi Norðurlandaráðs með þeim hætti sem nú hefur verið gert, og það fékkst ekki sú samúð af hálfu Norðurlandanna þá sem nú hefur verið lýst yfir eftir verulegan pólitískan þrýsting af hálfu íslendinga. En það voru settar fram hótanir, — það er alveg rétt, það hefur komið fram hér, — sem höfðu í för með sér pólitískan þrýsting. En svo var að lokum samið í þessu máli.

Ég held að ef þessar tvær styrjaldir eru bornar saman af sæmilegu hlutleysi, þá komi það í ljós að þessi styrjöld hefur verið af okkar hálfu háð af meiri hörku heldur en fyrri landhelgisstyrjöldin og það hefur verið beitt meiri þrýstingi nú á alþjóðavettvangi en þá var gert. Það stafar e.t.v. af því að það er enn þá meira í húfi nú en var þegar við færðum út í 50 mílurnar. Nú er mönnum enn þá ljósara en þá var hvernig ástandi fiskstofnanna er háttað, þó að menn hafi vitað það strax árið 1972 og kannske fyrr að þorskstofninn t.d. var í raun og veru í stórkostlegri hættu.

Ég álít að við eigum enn til viðbótar við þann mikla þrýsting, sem ríkisstj. hefur beitt á alþjóðlegum vettvangi, að auka enn á þann þrýsting og beita landhelgisgæslunni eins og við höfum gert, slaka í engu til og efla hana eftir því sem okkar geta leyfir. Ég held að við getum átt í langri deilu og getum ekki nú frekar en áður útkljáð þetta mál á einni nóttu. Bretar gætu auðvitað útkljáð málið á einni nóttu ef þeir beittu hervaldi til hins ítrasta, það er augljóst mál. Þeir gætu gersigrað okkar varðskipaflota á einni nóttu ef þeir vildu. Það vita auðvitað allir menn. (StJ: Þeir eru í NATO-ráðinu.) Það er sama, þeir gætu gert það, sagði ég. Ég var ekki að segja að þeir mundu gera það, ég sagði að þeir gætu gert það. Það er öllum ljóst og þarf ekki um það að deila eða hafa mörg orð. En ég held að við megum, jafnhliða því sem við beitum áfram pólitískum þrýstingi í þessu máli, aldrei gleyma því að við eigum að leggja áherslu á að vinna málið sem mest af eigin rammleik, með rökum og þeim ráðstöfunum sem við getum beitt, vegna þess að þá verðum við minnst háðir þegar styrjöldin er unnin og henni lokið. Þá verðum við minnst háðir öðrum ef við treystum á okkar eigin rammleik í málinu og beitum okkar rökum og öllum tiltækum ráðum sem við búum yfir.

Ég ætlaði mér nú ekki að setja á langa ræðu í þessu efni, en kvaddi mér hljóðs alveg sérstaklega í tilefni af umr. um opnun veiðisvæðisins á Hvalbakssvæðinu.