31.03.1976
Efri deild: 83. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2882 í B-deild Alþingistíðinda. (2379)
222. mál, fjölbýlishús
Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Þetta frv. fjallar um fjölbýlishús. Því er ætlað að koma 2 stað laga frá 1959 um sameign fjölbýlishúsa, en enn fremur eru í því ýmis ný ákvæði og skýrari og fyllri en áður hafa verið.
Upphafið að lagasetningu um sameign fjölbýlishúsa var það að Alþ. samþ. í mars 1957 till. Eggerts G. Þorsteinssonar alþm. sem fól í sér áskorun til ríkisstj. um að láta semja frv. til laga um sameign fjölbýlishúsa. Frv. skyldi hafa að geyma ítarleg ákvæði um afnot slíkra eigna og skyldur og réttindi sameigenda.
Í samræmi við þessa þál. var samið frv. til laga um þetta efni og var það samþ. sem lög nr. 19 frá 1959, um sameign fjölbýlishúsa. Þau lög hafa verið í gildi óbreytt til þessa. Þegar þau lög voru sett voru engar fyrirmyndir til að styðjast við svo að lögin voru algjör frumsmíð, Lögin hafa reynst að ýmsu leyti vel og leyst margan vanda. Í upphafi var gert ráð fyrir því, að lögin yrðu endurskoðuð áður en langt um liði, en af því hefur ekki orðið fyrr en nú, ef þetta frv., sem hér liggur fyrir, verður samþ. og lögfest.
Frv., sem hér liggur fyrir, er samið af n. sem félmrn. skipaði í nóv. 1973. N. skipuðu Hrafn Bragason borgardómari, Jón S. Ólafsson skrifstofustjóri og Páll S. Pálsson hrl. Rn. höfðu þá borist tilmæli frá Húseigendafélagi Reykjavíkur um að lögin yrðu endurskoðuð með tilliti til fenginnar reynslu. Í marsmánuði 1974 samþ. Alþ. þáltill., sem einnig var flutt af Eggert G. Þorsteinssyni, þess efnis, að ríkisstj. var falið að láta athuga um breyt. á lögum um fjölbýlishús sem tryggi að í sambýlishúsum verði ekki aðrar íbúðir auglýstar til uppboðs eða aðfarar vegna vangoldinna gjalda en þær sem eru í skuld hverju sinni. 7. gr. þessa frv. er samin með tilliti til þessa.
Við samningu þessa frv. hefur verið stuðst við lögin frá 1959 og mörg ákvæði tekin upp lítt breytt. Einnig hafa verið til hliðsjónar dönsk lög um íbúðir í einkaeign frá 1966 og skýrsla sem gerð var um þetta efni fyrir setningu þeirra laga, en þau .lög voru hin fyrstu um þetta efni í Danmörku. Þau hús, sem frv. tekur til, eru svo margs konar að ómögulegt er að í því geti falist tæmandi ákvæði um hvað eina sem upp getur komið í fjölbýlishúsi. Þess vegna var það ráð tekið að setja aðalákvæðin, sem alls staðar geta átt við í frv. sjálft, en ætlast til þess að reglugerð um samþykktir húsfélaga og húsreglur leysi önnur atriði. Frv. fylgja drög að reglugerð um samþykkt húsfélags. Er til þess ætlast að þessar samþykktir gildi, ef húsfélagið hefur ekki sett sér aðrar samþykktir og þinglýst þær. En þetta fylgiskjal II með frv. á bls. 10.
Frv. skiptist í fimm kafla.
I. kaflinn hefur að geyma ákvæði um gildissvið laganna. Þau eru efnislega eins og í gildandi lögum, en ítarlegri og skýrari. Þegar talað er um fjölbýlishús er venjulega átt við stórhýsi með mörgum íbúðum eða svonefndar blokkir. En nauðsynlegt þykir að láta lögin einnig taka til annarra húsa sem í eru tvær eða fleiri íbúðir. Einnig er lögunum ætlað að gilda um raðhús og önnur samtengd hús eftir því sem við getur átt.
II. kafli fjallar um skiptingu eignarráða í fjölbýlishúsi. Þar er gert ráð fyrir að skiptayfirlýsing sé gerð um öll fjölbýlishús nema skiptasamningur hafi verið gerður samkv. núgildandi lögum og honum þinglýst. Kveðið er á um það hvaða atriði skuli greina í skiptayfirlýsingu. Við það er miðað að hver íbúð og það sem henni fylgir sérstaklega svo og hluti hennar í sameign skoðist sem sérstök fasteign enda þótt eignarráð takmarkist af því að íbúðin er í fjölbýlishúsi. Frv. fylgja drög að reglugerð um útreikning eignarhluta í búða í fjölbýlishúsum. Gert er ráð fyrir að íbúðareigendur séu sjálfkrafa í húsfélagi. Fylgiskjal í á bls. 9 og 10 er reglugerð um ákvörðun eignarhluta í fjölbýlishúsi.
Í III. kafla frv. eru ákvæði um réttindi og skyldur íbúðareigenda. — Þar er lagt til að sú breyt. verði gerð frá gildandi lögum, að ákvæði kaflans verði ekki lengur undanþæg þannig að íbúðareigendur geti með samningi vikið frá ákvæðum laganna. Ætlast er til þess að þeim atriðum, sem hentugust er að íbúðareigendur ráði sín í milli, sé skipað í samþykktum húsfélaga eða húsreglum. Frv. fylgja drög að reglugerð um samþykktir fyrir húsfélög sem ætlast er til að gildi ef húsfélagið hefur ekki sett sér aðrar samþykktir og þinglýst þær. Í þessum kafla eru ákvæði um rétt til bygginga við fjölbýlishús eða á lóð þess, rétt til bílastæða, fyrir komulag sameignar, viðhald, rekstur og afnot sameignar.
IV. kafli fjallar um sambýlisháttu í fjölbýlishúsum. Þar er svo fyrir mælt að húsfélag skuli í húsreglum setja venjulegar umgengnisreglur. Í 17. gr. frv. er það nýmæli að húsfélag geti gert eiganda eða öðrum íbúa húss að flytja úr íbúð sinni ef hann hefur gert sig sekan um gróf eða ítrekuð brot á skyldum sínum gagnvart húsfélaginu eða einhverjum félagsmanni þess.
Í V. og síðasta kafla eru auk venjulegra ákvæða um gildistöku ákvæði um skyldu seljanda íbúðar til að gefa kaupanda upplýsingar um fjárskuldbindingar er á íbúðinni hvíla gagnvart húsfélaginu svo og byggingarkostnað ef um nýbyggingu er að ræða.
Eins og áður er getið fylgja frv. þessu drög að tveimur reglugerðum. Sú fyrri er um ákvörðun eignarhluta í fjölbýlishúsi. Þær reglur, sem þar eru settar, eru gerðar að fyrirmynd íslensks staðals: Íslenskir staðlar 50, og mun skipting sameignar í mörgum fjölbýlishúsum hafa verið reiknuð eftir þessum reglum. Síðari reglugerðin er um samþykktir fyrir húsfélög. Er þar að fínna ákvæði um fundi þeirra, stjórn og fjármál og svo umgengnisreglur. Til þess er ætlast að ákvæði þessi gildi nema húsfélag hafi gert aðrar samþykktir og þinglýst þeim.
Þetta er meginefni frv. sem hér liggur fyrir. Ég vænti þess að í því felist ýmis ákvæði til bóta og vona að frv. fái góðar undirtektir í þessari hv. d. Ég legg til að frv. verði vísað til 2. umr. og félmn.