04.11.1975
Sameinað þing: 12. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 371 í B-deild Alþingistíðinda. (238)
29. mál, fjárreiður stjórnmálaflokka
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Þar sem ég ræddi efnislega sama mál á fundi hv. Nd. í gær ætla ég ekki að fara mörgum orðum um þessa þáltill., heldur kveð mér hljóðs fyrst og fremst vegna atriða sem fram hafa komið í umr.
Það hefur m. a. verið vikið að því að það væri nauðsynlegt að setja heildarlöggjöf um starfsemi íslenskra stjórnmálaflokka og verið boðað af hv. síðasta ræðumanni, að mér skildist, að þáltill. um þetta efni kynni að vera á næstu grösum. Til upplýsingar vil ég taka það fram að till. um þetta mál hefur verið flutt hér á hinu háa Alþ. Það var gert að mig minnir veturinn 1971–1972, og sá sem flutti þá þáltill. var Sigurður E. Guðmundsson sem þá sat á þingi fyrir Alþfl. sem varaþm., þannig að till. um að skipa n. til þess að semja frv. til l. um stjórnmálaflokka, störf þeirra og skyldur hefur þegar verið flutt á Alþ. Þessi till var að vísu ekki afgr., því miður. E. t. v. er meiri von til þess nú eftir þær umr., sem orðið hafa um málefni stjórnmálaflokkanna, að till. í þessum dúr fengi afgreiðslu, og ég mun að sjálfsögðu fagna því.
En hitt skulum við gera okkur fyllilega ljóst, að það er talsvert vandaverk að semja slíka löggjöf. Ég hef ekki mjög víða reynt að fregna af slíkum hlutum, en ég held að ég fari rétt með að það er t. d. ekki til heildarlöggjöf um störf og skyldur stjórnmálaflokka á neinu Norðurlandanna. Ég held að ég fari rétt með að slík lagasetning sé þar ekki til. Þó eru að vísu mörg ákvæði í ýmsum lögum í þessum löndum þar sem fjallað er um stjórnmálaflokkana, en heildarlöggjöf um starfsemi og skyldur stjórnmálaflokka er ekki til þar, þannig að hér er um töluvert vandaverk að ræða.
Till. sú, sem hér er til meðferðar, er fyrst og fremst um rannsókn á fjárreiðum stjórnmálaflokka. Sjálfsagt er rétt og eðlilegt að slík rannsókn fari fram. En ég vil aðeins leyfa mér að vekja athygli á því í fyrsta lagi hvort æskilegt sé að sama n. annist slíka rannsókn og samningu till. eða frv. til l. um opinberan stuðning við starfsemi flokka og eftirlit með fjárreiðum þeirra. Er það æskilegt að sama n. annist hvort tveggja þetta hlutverk? Þetta er aðeins ábending. Í annan stað langar mig einnig til þess að benda mönnum á að jafnvel þó að Alþ. kysi slíka 5 manna n. — 5, 6, 7 manna, það skiptir ekki máli — þá er með þá n. eins og raunar þingnefndir að mönnum er ekki skylt að segja henni frá, og það sem er e. t. v. enn þá meira miður, mönnum er ekki skylt að skýra fyrir n. rétt og satt frá. Það eru engar skyldur eða kvaðir um sannsögli í því sambandi, þannig að þetta er annað atriði sem ég tel rétt að sú n., sem fær þetta mál til meðferðar, kanni rækilega. Hitt er hins vegar algjörlega ljóst, eins og kom fram í ræðu minni í gær, að brýna nauðsyn ber til þess, ekki síst fyrir flokkana og okkur, sem valist höfum til trúnaðarstarfa í þeirra þágu, að fjármál flokkanna verði gerð opinber, það verði skýrt frá þeim, gerð grein fyrir þeim fyrir opnum tjöldum. Ég lét í gær þá skoðun í ljós að flokkarnir og flokksstofnanirnar, félög og fyrirtæki þeim tengd ættu að birta reikninga sína opinberlega á hverju ári, endurskoðaða af löggiltum endurskoðendum. Það má vel vera að það séu til fjölmargar aðrar leiðir til þess að upplýsa um fjármál stjórnmálaflokkanna, m. a. sú leið sem lögð er til í þessari þáltill.
Við höfum rætt þetta mál nokkuð í þingflokki Alþfl. Við eigum ekki fulltrúa í þeirri n. sem fær þessa till. til meðferðar, en ég held að mér sé óhætt að fullyrða að verði sú niðurstaða af athugun á máli þessu í þingnefnd að það sé rétt að fara þessa leið, að Alþ. skipi eða kjósi n. til þess að rannsaka fjárreiður stjórnmálaflokkanna, þá muni af Alþfl. hálfu ekkert vera því til fyrirstöðu að leggja fram fullkomna reikninga bæði fyrir Alþfl. og Alþýðublaðið, þannig að ef það verður niðurstaða hv. Alþ. að svona skuli að farið til þess að upplýsa um fjárreiður stjórnmálaflokka, þá muni ekki standa á Alþfl. að leggja reikninga sína, bæði fyrir flokkinn og blaðið, fyrir þá n. sem um þetta mál mun fjalla. Þetta vil ég að komi hér fram við 1. umr. þessa máls þar sem Alþfl. á ekki fulltrúa í þeirri n. sem fær þetta mál til athugunar. En það ber orðið brýna nauðsyn til þess að flokkarnir komi fjármálum sínum á hreint. Þeir verða að fara að gera það, það er orðið brýn nauðsyn fyrir þá, vegna þess að það er meira virði fyrir stjórnmálalífið í landinu að stjórnmálamenn og stjórnmálaflokkar geti eytt þeirri tortryggni, m. a. í sambandi við fjármál, sem almenningur er farinn að bera til stjórnmálaflokkanna, heldur en hitt, að geta haldið e. t. v. einhverri leynihulu yfir þessum málum.
Að lokum langar mig til þess að minnast á eitt atriði sem komið hefur fram í umr. um þetta mál, og það er það sem nefnt hefur verið styrkur til dagblaðanna. Ég er kollega mínum, hv. 4. þm. Norðurl. v., algjörlega sammála um að hér er ekki um styrk að ræða, heldur greiðslu, ýmist fyrir veitta þjónustu eða vöru sem blöðin láta ríkinu og ríkisstofnunum í té og ríkið og ríkisstofnanir verða að sjálfsögðu að greiða fyrir. Mér er kunnugt um að þegar ákveðið var að taka inn á fjárlög sérstakt framlag til þess að greiða kostnað við blaðakaup, og ég tek það sérstaklega fram að hér er ekki rætt um styrk til dagblaða, þeir eru ekki til, heldur um fjárframlög til kaupa á dagblöðum, þá var ástandið orðið þannig að íslensku dagblöðin höfðu neyðst til þess að gefa, hvert blaðið um sig, hundruð eintaka til opinberra fyrirtækja og stofnana. Það var sífellt verið að kvabba á bæði ritstjórum og afgreiðslustjórum blaðanna um gjafir í hina og þessa ríkisstofnunina, þannig að þetta náði orðið ekki nokkurri einustu átt. Þá var gerð athugun á því hversu mörg eintök af þessum blöðum ríkið og ríkisstofnanir óskuðu eftir að fá. Ég held að ég muni það rétt að það hafi verið rúm 900 eintök af hverju blaði. Hins vegar fékkst ríkisvaldið ekki til þess að veita fé til að kaupa þessi eintök sem ríkisstofnanir þó óskuðu eftir að fá keypt. Nú er aðeins veitt fé til kaupa á 450 eintökum af hverju blaði. En ég held ég geti fullyrt, a. m. k. eftir því sem ég veit hjá öllum blöðunum, að þetta er um það bil helmingurinn af þeim blöðum sem ríkið og ríkisstofnanir fá. Og það er stöðug ásókn til blaðanna, sérstaklega þó af skólum og enn fremur öðrum ríkisstofnunum, um að senda þangað blöð án endurgjalds og það ekki aðeins án endurgjalds, heldur verða blöðin að borga sendingarkostnaðinn allan, þannig að þarna er um að ræða mun meiri óskir frá stofnunum hins opinbera heldur en greitt er fyrir. Það má spyrja hvort það sé eðlilegt að dagblöðin, sem eru fyrirtæki eins og önnur fyrirtæki í þessu landi, eigi að hafa þá sérstöðu að neyðast til þess að gefa ríkisvaldinu ýmist þjónustu eða vöru án endurgjalds. Skyldu nokkur önnur fyrirtæki í landinu þurfa að sæta því.
Ég get nefnt, til þess að gera ykkur grein fyrir því hver þessi svonefndi ríkisstyrkur er, tölur sem að vísu eru fengnar frá mínu eigin blaði, ég þekki ekki þessar tölur fyrir önnur blöð. Þegar búið er að greiða þau 450 eintök, sem ríkisvaldið kaupir af Alþýðublaðinu, þá standa eftir af samtölu þeirra fjármuna, sem kallaðir eru ríkisstyrkur, 388 þús. kr. Þetta er það, sem við fáum af hinum svokallaða ríkisstyrk sem manna á milli er sagður vera 32 millj. kr. á ári — 388 þús. Nú er búið að skera, eftir því sem mér er best kunnugt, þessa fjárveitingu niður, þannig að þegar við gerum upp reikningana fyrir kaup ríkissjóðs eða fyrir viðskipti ríkissjóðs við okkur, þá kemur í ljós, að við þurfum að borga með þeim 450 blöðum sem ríkisstofnanir ætla að kaupa. Féð, sem ríkisvaldið veitir í fyrsta lagi til kaupa á 450 eintökum af þessu blaði, í öðru lagi til þingflokks Alþfl. eða réttara sagt veitir í hlutfalli við fjölda þm., — samtala þessa nægir ekki fyrir mitt blað til þess að standa undir áskriftargjöldum af þeim 450 eintökum af mínu blaði sem ríkið býðst til að kaupa, svo að maður tali þá ekki um heildartölu þeirra blaða sem ríkisstofnanir fá, sem er miklu, miklu hærri. Það er miklu óhagstæðara mál heldur en þetta, ef við gerum upp viðskipti blaðanna við ríkissjóð og ríkisstofnanir.
Hversu miklir fjármunir skyldu t. d. liggja í þeirri þjónustu sem blöðin veita ríkisstofnunum, svo sem eins og útvarpi og sjónvarpi, með birtingu dagskrár þeirra daglega? Ef þetta yrði reiknað út á auglýsingaverði með eðlilegum afslætti, þá næmi þetta mörgum millj. kr. á ári á hvert blað. Þessa þjónustu er dagblöðunum ætlað að veita þessum ríkisstofnunum án þess að ríkisstofnanirnar greiði krónu fyrir. Þessar ríkisstofnanir telja sig meira að segja geta gengið svo langt, að ef þær setja upp einhverja sérstaka gestaþraut fyrir hlustendur, eins og krossgátur eða eitthvað slíkt, þá geti þær sent þessar gestaþrautir til blaðanna og skipað þeim að birta þetta fyrir sig endurgjaldslaust þegar þeim þóknast. Við fáum engar greiðslur fyrir slíka þjónustu, þannig að þegar reikningar eru gerðir upp, þá er ég hræddur um að það halli allverulega á ríkissjóð. Og ég held að ég geti mælt fyrir munn allra blaðanna þegar ég segi að við sem að útgáfu blaða stöndum, mundum heldur kjósa að þessi svonefndi ríkisstyrkur félli niður, þessi ríkisstyrkur sem menn eru alltaf með á milli tannanna, ef á móti kæmi það að ríkið greiddi í beinhörðum peningum, nákvæmlega rétt og nákvæmlega það gjald sem það ætti að inna af höndum, fyrir þau blöð, sem það kaupir, og þá þjónustu, sem blöðin veita ríkisvaldinu og ríkisstofnunum. Þá er ég ansi hræddur um að framlagið til blaðakaupa og til kaupa á blaðaþjónustu yrði allmiklu meira en þær 32 millj. kr. á ári sem gert er ráð fyrir í núgildandi fjárlögum.