01.04.1976
Sameinað þing: 74. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2939 í B-deild Alþingistíðinda. (2425)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Ásgeir Bjarnason):

Áður en ég gef hæstv. ráðh. orðið vil ég taka þetta fram til skýringar út frá því sem hv. 1. landsk. þm. Bragi Sigurjónsson sagði. Er hann ræddi við mig í morgun sagði ég honum að ég mundi athuga, hvort ég gæti komið honum að utan dagskrár, og mér fyndist eðlilegt að þetta mál yrði rætt við hæstv. iðnrh. þegar hann kæmi í þingsalinn. Ég gat þess líka við hv. þm. að ég hefði þegar lofað að taka til afgreiðslu í dag þau þingmál sem þegar hafa komið til umr. Þetta vissi hv. þm.

Þá vil ég líka á það benda, að hv. 1. landsk. þm. hefur ekki í sinni ræðu komið með nein rök fyrir því að það hafi verið brotin á honum þingsköp. Það eina var það að hann komst ekki að með mál sitt jafnfljótt á fundinum og hann óskaði. En það er á valdi forseta hvenær hann lætur umr. utan dagskrár fara fram ef hann leyfir þær á annað borð.

Það er alveg rétt hjá hv. 1. landsk. þm., Braga Sigurjónssyni, að hann hefur ekki þreytt hvorki mig né aðra með umr. utan dagskrár, og það er siður en svo, að ég hafi hugsað slíkt. Ég hef enga löngun til þess að brjóta á hv. þm. þær reglur sem gilda í Alþ., nema síður sé, því að hann hefur ekki þreytt mig með umr. utan dagskrár. En ég vona að hv. þm. finni, er hann hugleiðir málið betur, að það hafa ekki verið brotin á honum þingsköp, þar sem hann hefur fengið tíma og tækifæri til þess að koma því máli að er hann óskaði.