01.04.1976
Sameinað þing: 74. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2948 í B-deild Alþingistíðinda. (2432)
142. mál, tölvutækni við söfnun upplýsinga um skoðanir manna
Flm. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Tækniþróunin er eitt sterkasta einkenni okkar tíma, og nú smám saman er mönnum almennt að verða ljósara en áður að þessi þróun hefur hættur í för með sér. Sú tíð er löngu liðin að hin barnalega bjartsýni á undramátt tækninnar sé öllu ráðandi. Fyrst var það hinn mikli háski sem til varð eftir seinustu heimsstyrjöld með hraðfleygri þróun kjarnorkutækninnar, múgmorðstækni nútímans, sem þá varð og á kannske einhvern tíma eftir að lama lífið á jörðinni, og áðan ræddum við einmitt um kjarnorkuvopn á Íslandi. Samt sem áður eru það enn aðrar hættur sem orðið hafa umræddari en háski kjarnorkutækninnar nú á allra seinustu árum. Í seinni tíð hefur athygli manna í vaxandi mæli beinst að hinu blinda kapphlaupi þjóðanna um aukna framleiðslu sem hæglega getur leitt til algers hráefnaskorts, háskalegrar mengunar og jafnvel hungursneyðar í kjölfar almennrar vistkreppu mannsins að nokkrum áratugum liðnum. Eins hefur mönnum orðið tíðrætt um þróun tölvutækninnar sem hér er gerð að umtalsefni og er þó aðeins einn anginn af þessum víðfeðma þróunarferli vísindanna.
Með rafeindareiknum og vélheilum hefur maðurinn fengið máttug tæki í hendur sem m.a. geta varað við aðsteðjandi hættum og vísað á nýjar færar leiðir gegnum völundarhús framtíðarinnar. En um leið er tölvan sjálf og máttur hennar hrollvekja fyrir þann sem bjó hana til, nútímamanninn, að því leyti sem hún ógnar eðlilegu lífi einstaklinganna. Hér er það sem sagt spurningin um einstaklinginn og kerfið sem um er að ræða. Með þessum orðum er ekki aðeins átt við kerfi hins opinbera valds, heldur sérhvert það kerfi valds á vegum opinberra aðila eða einkaaðila sem teygt getur loppur sínar inn í einkalíf einstaklinganna. Risavaxnir auðhringir, sem búa yfir öllum hinum tæknivæddu vélabrögðum nútímasamfélagsins, verða æ hættulegra fyrirbrigði í mannlegu samfélagi, og á hinn bóginn er skylt að játa að í þeim fáu þjóðfélögum, þar sem ofurvaldi auðhringanna hefur verið útrýmt, hefur lýðræðið og mannúðarstefna enn ekki tekið þeim þroska sem skyldi og ríkiskerfið sjálft í þessum löndum er því háskalegur ógnvaldur við einkalíf hins almenna manns.
Till. sú til þál., sem hér er til umr. er einmitt flutt í þeim tilgangi að vekja athygli á nauðsyn þess að einstaklingar hér á landi verði verndaðir fyrir því að nýjustu tölvutækni sé beitt til að koma upp safni upplýsinga um persónulega hagi þeirra. Þessi vandamál hafa verið til umr. að undanförnu í nær öllum nálægum löndum í kjölfar þess að tölvutæknin ryður sér til rúms í sívaxandi mæli og með stöðugt handhægari aðferðum. Í till. er ráð fyrir því gert að skipuð verði n. er semji frv. um þetta efni og kynni sér jafnframt þau lög sem sett hafa verið eða verið er að undirbúa í nálægum löndum, bæði austan hafs og vestan, um verndun einkalífs gegn upplýsingatölvum.
Flm. þessarar till., auk þess sem hér mælir fyrir henni, eru hv. Steingrímur Hermannsson, Benedikt Gröndal, Sigurlaug Bjarnadóttir og Magnús T. Ólafsson. Flm. till. eru sem sagt úr öllum starfandi stjórnmálaflokkum, og með því er að sjálfsögðu skýrt dregið fram að þetta mál er hafið yfir allar flokkspólitískar þrætur.
Þegar rætt er um verndun einkalífs, þá spyrja menn, hvers konar tilvik sé átt við, og biðja um að einhver dæmi séu nefnd um þess háttar söfnun upplýsinga með tölvutækni sem geti ógnað friðhelgi einkalífs. Ég mun því víkja hér að nokkrum þeim sviðum sem þetta mál getur varðað, þar sem um er að ræða upplýsingasöfnun með tölvutækni.
Í fyrsta lagi er rétt að benda á að unnt er að skrá fjármálasögu flestra ef ekki allra einstaklinga þjóðfélagsins með tölvutækni. Þá væri um að ræða skráningu allra þeirra vanskilavíxla og skuldamála sem ættu sér stað í þjóðfélaginu, öll uppboð, öll gjaldþrotamál væru skráð inn á tölvu og þessum upplýsingum safnað saman, ekki um eitt ár eða einn áratug, heldur kannske marga áratugi. Tilgangur slíks verks væri að sjálfsögðu að tölvan gæti hvenær sem er verið reiðubúin að svara því til hverjir væru og hefðu verið í gegnum árin verðir lánstrausts. Stofnanir af þessu tagi eru til viða um heim, þó þær séu ekki starfandi hér á Íslandi enn sem komið er, og bera heitið (á ensku) Credit Advice Bureau. Þó er rétt að benda á að slík starfsemi er í undirbúningi hér á landi og þegar er hafin tölvuskráning þeirra upplýsinga sem ég hef hér nefnt. Ég hef t.d. hér ljósrit í höndunum úr þessari tölvuskrá, en þar er að sjálfsögðu um frumvinnslu að ræða. Þar segir:
„Skrá yfir auglýsingar um gjaldþrot og gjaldþrotameðferð. Heimild: Lögbirtingablaðið. Uppboðsbeiðnir. Heimild Morgunblaðið eða dagblaðið Vísir. Dómar upp kveðnir í Bæjarþingi Reykjavíkur. Skriflega flutt mál, áskorunarmál. Heimild: Kaupsýslutíðindi.“
Ég reikna með að þessi stofnun sé tiltölulega skammt á veg komin því að hér verður að liggja að baki margra ára starf til að það komi að einhverju gagni. En eins og þetta dæmi ber með sér eru slík mál á ferðinni og slíkar stofnanir að þróast hér á landi nú þegar.
Í öðru lagi er að sjálfsögðu rétt að minnast hér á Reiknistofu bankanna, en þar er að sjálfsögðu um náskylda starfsemi að ræða. Þar er um að ræða sameiginlega nafnaskrá viðskiptamanna bankanna og upplýsingar um hreyfingar á innistæðum bankareikninga. Ég er ekki að mótmæla því, að þessi Reiknistofa skuli hafa verið stofnuð, og mun ekki fara neitt út í að ræða það að hve miklu leyti þessi starfsemi eigi rétt á sér og að hve miklu leyti hún geti haft í för með sér ákveðnar hættur, þar sem um er að ræða mjög vísindalega rannsókn á öllum hreyfingum bankareikninga í þjóðfélaginu. En ég vek bara á því athygli, að enda þótt þetta kunni að hafa ýmsa kosti í för með sér, þá kann að vera óhjákvæmilegt að setja þessari starfsemi einhverjar ákveðnar skorður sem vert er þá að athuga vandlega áður en ákvarðanir eru teknar þar um.
Annað svið, sem ég vil nefna hér, er heilbrigðissaga einstaklinganna. Þar gæti verið um að ræða skráningu allra þeirra læknisaðgerða og allra læknisrannsókna sem fram hefðu farið á einstaklingum í þjóðfélaginu, skráning á öllum þeirra veikindum og hvers konar veikleika, sem læknavísindin hefðu komist að raun um að fyrir hendi væru. Tilgangur slíks verks væri að sjálfsögðu fyrst og fremst að styrkja læknavísindin á Íslandi, og ég get upplýst hér í þessu sambandi að það er einmitt unnið að því að koma upp upplýsingabanka af þessu tagi, — upplýsingabanka um heilsufar allra landsmanna á vegum heilbr.- og trmrn. og með aðstoð Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. En öllum er að sjálfsögðu ljóst að þó að slíkur upplýsingabanki kunni að vera afar gagnlegur frá sjónarmiði læknavísindanna, þá er ekki hægt að útiloka misnotkun slíkra upplýsinga. Menn spyrja kannske: Hvernig er hægt að nota slíkar upplýsingar? Og þá er einfalt að nefna þar dæmi. Að sjálfsögðu gætu slíkar upplýsingar torveldað mönnum að fá vinnu. Ef í ljós kemur að maður hefur leyndan hjartagalla, svo ég nefni dæmi, þá er auðvitað ljóst mál að hann stendur ekki jafnt að vígi og aðrir. Ég er ekki að lýsa því yfir heldur í þessu tilviki að þessi starfsemi kunni ekki að eiga fullan rétt á sér, en þetta er einmitt eitt dæmi um starfsemi sem þarf að setja reglur um. Menn þurfa að hafa möguleika til þess að vita hvað í slíkum tölvuskrám stendur, þannig að þeir geti gengið úr skugga um að tölvan hafi ekki gert einhver mistök og upplýsingarnar séu byggðar á misskilningi, þær hafi átt við næsta mann við hliðina á þeim í skránni. Ég nefni bara þetta sem dæmi um takmarkanir sem nauðsynlegar væru í slíku tilviki. Rétt er líka að láta þess getið hér að í leiðara Læknablaðsins, sem út kom seinast á árinu 1973, er einmitt rituð grein af hálfu ritstjórnar þar sem mjög er varað við hættu af notkun slíkrar upplýsingamiðstöðvar.
Þriðja sviðið, sem nefna mætti, er tryggingasaga einstaklinganna sem unnt væri að skrá á tölvur með tiltölulega einföldum hætti. Þar væri um að ræða að skrá alla bótaþega og tegundir þeirra bóta sem þeir hefðu notið. Það er alveg eins með þessar upplýsingar, að þær geta verið afar óþægilegar fyrir einstaklíngana að mörgum árum liðnum eftir að bótagreiðslur hafa átt sér stað, og sé ég ekki ástæðu til að rökstyðja það frekar.
Fjórða tilvikið er námsferilssaga. Það er tiltölulega einfalt mál að tölvufæra allar einkunnir, öll próf sem einstaklíngarnir hafa tekið á ævinni, skráða hegðun þeirra á námsskírteinum. Tilgangurinn kynni að vera mjög heiðarlegur og einfaldur, þ.e.a.s. sá að koma upp góðri tölfræði um þessi efni og styrkja kennslufræðileg vísindi. En það leynir sér varla, ef menn skoða málið nánar, að hér er um að ræða upplýsingar sem unnt væri að misnota á hinn herfilegasta hátt af óhlutvöndum mönnum, því að mörgum kann að þykja óþægilegt jafnvel eftir nokkra áratugi að fá það framan í sig að þeir hafi hagað sér á þennan eða hinn mátann í skóla þegar þeir voru ungir. Ég nefni þetta bara sem dæmi.
Fimmta tilvikið, sem ástæða er til að vekja athygli á, er skráning skoðana manna eða þeirrar félagslegu starfsemi sem þeir hafa tekið þátt í. Þar getur verið um að ræða hvers konar skoðanir, bæði trúarskoðanir manna og pólitískar skoðanir. Upphaflegur tilgangur slíkrar skráningar kann að hafa verið undirskriftasöfnun sem fram hefur farið, félagsleg rannsókn af hálfu háskólastofnunar eða annarrar félagslegrar stofnunar eða skoðanakönnun sem framkvæmd hefur verið með þeim hætti að sá, sem látið hefur í ljós skoðun sína og hefur vænst þess að nafn sitt yrði hvergi þar kennt við, hann hefur ekki varað sig á ákveðnum leynimerkingum á skoðanakannanalistum, þannig að hægt hefur verið að fá það á hreint hver hefur svarað viðkomandi spurningum. Mál af þessu tagi hafa komið upp í Bandaríkjunum þar sem ákveðnar stofnanir hafa sent út skoðanakannanalista og óskað eftir svörum, heitið fullum trúnaði, enda hefur nafn ekki átt að fylgja með svarlistanum. En menn hafa ekki varað sig á því að listinn hefur verið merktur á ósýnilegan hátt þegar hann var sendur víðtakanda og þegar hann kom til baka bar hann með sér hver svarið hefði gefið. Eins getur verið um að ræða almenn opinber afskipti manna sem fram koma í blöðum eða með öðrum hætti, t.d. þátttaka þeirra í framboði, meðmæli þeirra með framboðslistum, en það eru einnig opinber gögn, eða greinar þeirra í blöðum. Allt þetta getur skapað grundvöll að skráningu í tölvur.
Sjötta sviðið, sem vert er að vekja hér athygli á, er sakaskrá manna. Eins og öllum er kunnugt, er ekki færð nema ein sakaskrá í þjóðfélagi okkar og það er sakaskrá sú sem saksóknari ríkisins hefur undir höndum. Hún er að sjálfsögðu meðhöndluð eftir ákveðnum reglum, og þær reglur fela það m.a. í sér að það getur ekki hver og einn komið og beðið um að sjá sakaskrá einhvers annars manns. Það eru aðeins opinberir aðilar sem geta gert rökstudda kröfu til þess að sjá sakaskrá manns. Hún getur verið lögð fram ef dómstóll fjallar um mál manns. Eins á viðkomandi sjálfur rétt á því að sjá sína sakaskrá. Aðrir eiga ekki þessa kröfu. En í sjálfu sér er ekkert því til fyrirstöðu að einstaklingur taki sig til á morgun og stofnaði eigin sakaskrá. Hann á aðgang að öllum dómum sem upp eru kveðnir við almenna dómstóla hér á landi og getur safnað þeim upplýsingum saman ef hann vill og fært þá inn í tölvu og komið sér upp einkasakaskrá sem mundi vera alveg jafnnákvæm og sú almenna opinbera sakaskrá sem færð er hjá saksóknara ríkisins. Er þá ekkert því til fyrirstöðu í sjálfu sér, meðan lög banna það ekki, að hann taki sig til og sendi upplýsingar úr þessari sérstöku einkasakaskrá sinni þeim sem þær upplýsingar vildu fá.
Ég hef hér nefnt sex svið þar sem þetta mál getur átt við, en ekki þarf að draga í efa að mörg önnur svið koma þar til álita. Nú kann einhver að segja að sögulegar staðreyndir séu sögulegar staðreyndir og sé þá nokkuð við það að athuga að þær séu skrásettar. Hér erum við að sjálfsögðu komin að kjarna málsins, og þetta á að sjálfsögðu við öll þau svið sem ég hef nú nefnt. Þetta eru yfirleitt almennt opinberar staðreyndir sem um er að fjalla. En hitt er allt annað mál og það er kjarni þessa máls, að einstaklingurinn á rétt á því að sögulegar staðreyndir, sem honum eru óþægilegar, fyrnist á ákveðnum tíma á nákvæmlega sama hátt og sök manna og aðrar yfirsjónir fyrnast. Einstaklingarnir breytast og allir eiga fyrirgefningu synda sinna, a.m.k. að ákveðnum tíma liðnum. Sá, sem um er að ræða, kann að vera orðinn allt annar maður en hann áður var, hann kann að hafa tekið sig á og hann kann að vera hættur að vera sá vanskilamaður sem hann hafði verið fyrir kannske 20 árum. Þess vegna á það að vera gleymt að svo hafi staðið á fyrir honum áður fyrr, og hann á ekki að eiga það á hættu að einhverjir óhlutvandir menn minni hann á þessar staðreyndir með aðstoð þeirrar hrikalegu tölvutækni sem nú er komin til sögunnar.
í öðru lagi er það staðreynd að upplýsingasöfnun með tækni tölvunnar, sem hér er gerð að umtalsefni, gerir einstaklingana varnarlausa gegn ofurmætti þessarar tækni. Þeim hlýtur að finnast að friðhelgi einkalífs þeirra sé skert, þeir séu í raun og veru hvergi óhultir, og af þessu leiðir að slík starfsemi er óþolandi fyrirbrigði í mannlegu samfélagi.
Næst kunna menn að spyrja hvað eigi þá að vera í löggjöf af því tagi sem þessi þáltill. fjallar um. Ég held að einfaldast sé að líta á það, hvað verið hefur að gerast erlendis í þessum málum á undanförnum árum, til þess að fá þessari spurningu svarað á sem bestan hátt.
Nýlega voru lögleidd í Bandaríkjunum ákvæði sem eiga að tryggja rétt einstaklingsins til einkaleyndar og verja hann gagnvart persónuskrám sambandsríkisins. The Privacy Act of 1974, staðfest 31. des. í Vestur-Þýskalandi hefur mikill lagabálkur um upplýsingavernd legið fyrir sambandsþinginu um tveggja ára skeið. Í Frakklandi starfar n. að samningu lagafrv. um tölvunotkun. Í Austurríki hefur forsrn. samið frv. að tölvuskrárlögum og lagt fyrir þingið. Í Bretlandi hefur stjórnskipuð n. skilað áliti um persónuvernd við tölvuvinnslu hjá einkaaðilum, og önnur n. hefur fjallað um ríkisreknar tölvuskrár. Á Norðurlöndunum öllum nema Íslandi hefur mikið verið fjallað um þessi mál. Svíar urðu fyrstir til að setja lög um þessi efni og nú er komin nokkur reynsla á framkvæmd þessara laga. Norðmenn leggja fram lagafrv. á þessu ári. Og í Danmörku er frv. í undirbúningi. Ráðherranefnd Evrópuráðsins hefur gert tvær ályktanir um persónuvernd gagnvart tölvutækni, og mannréttindanefnd Efnahags- og félagsmálaráðs Sameinuðu þjóðanna hefur sent frá sér skýrslu um hagnýtingu tölvutækni og áhrif hennar á almenn mannréttindi og þær takmarkanir sem setja verði tölvunotkun í lýðræðisþjóðfélagi. Efnahags- og framfarastofnun Evrópu (OECD) efndi til sérstakrar ráðstefnu um tölvuvinnslu og persónuleynd og var í niðurstöðum ráðstefnunnar lögð á það þung áhersla að sem viðast yrðu sett lög um tölvurekstur og persónuskrár og varði brot viðurlögum að mati dómstóla.
Eins og sjá má hafa þessi mál verið býsna víða rædd, og spurningin verður þá hvar á að bera niður til að átta sig á því hvers menn óska að sé í slíkum lögum. Ég held að ég leyti ekki til neinna þeirra heimilda sem ég hef nú nefnt. Ég held að til að gera langt mál stutt sé eðlilegast að leita til skýrslu aðalritara Sameinuðu þjóðanna um þessi mál sem lögð var fram á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, vegna þess að í þeirri skýrslu eru dregin fram öll helstu atriði þessa máls. Á fundi Skýrslutæknifélags Íslands hinn 10. mars s.l. gerði Elías Davíðsson kerfisfræðingur grein fyrir þessari skýrslu Waldheims framkvæmdastjóra, og ég mun í þeim fáu orðum, sem ég vitna hér í skýrslu Waldheims, byggja á heimildum sem Elías Davíðsson hefur dregið saman.
Forsaga málsins er sú að 1963 fól allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna aðalritaranum að framkvæma þessa athugun, og honum var falið að útbúa yfirlitsskýrslu um stöðu þessara mála í heiminum og áætlun um framhaldskönnun sem send yrði mannréttindanefnd samtakanna. Aðalritarinn skilaði þessari skýrslu, og til þess að gera langt mál stutt held ég að ég snúi mér beint að efni hennar og komi þar einungis að niðurstöðunum, því að ástæðulaust er að fara mörgum orðum um rökstuðning sem er mjög samhljóða því sem hefur komið fram í framsöguræðu minni nú þegar. En niðurstöðurnar í skýrslu aðalritarans voru í grófum dráttum þessar: Aðildarlönd Sameinuðu þjóðanna voru hvött til þess að setja viðeigandi lög varðandi persónugagnakerfi með tölvum. Þessi lög skulu gilda bæði fyrir opinbera og einkaaðila. Sem sagt, það liggur fyrir að í skýrslunni er m.a. Alþingi íslendinga hvatt til þess að samþ. till. af því tagi sem hér er til umr. Löggjöf einstakra landa skal að lágmarki innihalda eftirfarandi atriði:
Aðeins skal safna þeim persónuupplýsingum, sem nauðsynlegar eru til starfrækslu viðeigandi gagnavinnslukerfis. Tilkynna skal einstaklingum að verið sé að safna og véltaka upplýsingar um þá. Samþykki þeirra verður að fá ef geyma á þessar upplýsingar, nema þar sem lög kveða skýrt á um að þess sé ekki þörf. Slíkar undantekningar mega þó ekki brjóta í bága við ákvæði mannréttindayfirlýsingarinnar, sbr. ákveðnar tilvitnaðar greinar. Forðast skal að skrá og geyma sögusagnir og munnlegar frásagnir. Ekki skal safna né geyma upplýsingar um stjórnmálaskoðanir, trú, kynþátt og einkalíf manna, nema þar sem lög kveða skýrt á um að slíkt sé leyft. Gera skal allar viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að geymdar upplýsingar séu nákvæmar, fullkomnar og viðeigandi sem og að fjarlægja eða endurnýja úreltar upplýsingar. Þeir tölvuframleiðendur og þeir, sem kanna og þróa tölvubúnað, skulu standa reikningsskil gerða sinna ef þeir meðvitað eða af grófri vanrækslu útbúa ekki grundvallarvarnir trúnaðar- og öryggisgagna í kerfum sínum. Það skal vera réttur hvers einstaklings að fá afrit af þeim upplýsingum, sem um hann eru skráðar, í því formi sem hann getur skilið. Það skal og vera réttur hans að vefengja réttmæti og nákvæmni upplýsinganna og fá því framgengt að rangar, óstaðfestar eða úreltar upplýsingar um hann séu leiðréttar eða fjarlægðar. Lög skulu kveða á um með hvaða hætti einstaklingurinn fái notið réttar síns. Aðgangur að tölvuupplýsingum skal því aðeins veittur að afnot þeirra grundvallist á sömu markmiðum og réðu öflun þeirra, enda hafi viðkomandi aðili lagalegan rétt til upplýsinganna. Gera skal allar viðeigandi ráðstafanir til að tryggja trúnað upplýsinga og koma í veg fyrir að þær verði veittar eða þeim dreift í óleyfi. Bæta skal hvers kyns tjón sem einstaklingur kann að verða fyrir vegna misnotkunar tölvuunninna upplýsinga um hann. Refsa skal fyrir brot á þessum lögum.
Notkun tölvuunninna upplýsinga í dómsmálum skal binda í sérstakri löggjöf. Tryggja skal með reglugerð rétt einstaklinga varðandi upplýsingar sem um þá eru geymdar í tölvukerfum staðsettum í öðrum löndum. fhuga skal skipan aðila sem hefði eftirlit með rekstri tölvuunninna persónugagnakerfa. Hlutverk slíks aðila gætí verið að halda skrá yfir öll slík tölvukerfi, sem starfrækt eru, að hafa eftirlít með framkvæmd laga um verndun mannréttinda, m.a. gegn misnotkun tölvukerfa, að fylgjast með þróun þeirra mála er varða mannréttindi, vekja athygli löggjafarvalds, framkvæmdavalds og almennings á afleiðingum slíkrar þróunar og benda á varnaraðgerðir sé þeirra þörf.
Að lokum er það niðurstaða framkvæmdastjórans að stuðla skuli að stofnun tæknisamtaka tölvumanna sem tileinki sér siðareglur varðandi meðferð persónuupplýsinga í tölvum.
Í ræðu sinni á fundi Skýrslutæknifélags Íslands 10. mars s.l. hafði Elías Davíðsson þeim upplýsingum hér við að bæta, að eftir því sem hann vissi best væru þau tölvulög, sem þegar hefðu verið samþ. í öðrum löndum, í meginatriðum í samræmi við till. aðalritara Sameinuðu þjóðanna.
Á þessum sama fundi Skýrslutæknifélags Íslands flutti framsöguræðu um þetta efni Magnús Thoroddsen borgardómari. Án þess að fara að rekja mjög ítarlega efni ræðu hans sem að sjálfsögðu var í öllum meginatriðum með líkum hætti og hér hefur fram komið, þá vil ég samt vitna í fáein ummæli hans á þessum fundi, með leyfi forseta. Magnús sagði: „Tölvuna má misnota á fleiri sviðum heldur en á sviði hernaðar og tortímingar. Einkalífi manna getur einnig stafað mikil ógn af misnotkun hennar með söfnun og geymslu á hvers kyns persónulegum upplýsingum um einkalíf manna og með óréttlátri og ósanngjarnri dreifingu þeirra til óviðkomandi aðila. Vitneskja manna um þennan eiginleika tölvunnar, að til geti verið um þá á einum stað alls kyns persónulegar upplýsingar, getur skotið þeim skelk í bringu og raskað sálarró þeirra. Í nútímaþjóðfélögum hefur einstaklingurinn það gjarnan á tilfinningunni að hann eigi sér hvergi griðland.“ Og seinna segir hann: „Það er hættan við þetta 1984-ástand í þjóðfélaginu, sem skapa má með misnotkun tölvunnar, er opnað hefur augu manna fyrir nauðsyn þess að setja lög er koma í veg fyrir slíkt.“
Á öðrum stað segir Magnús Thoroddsen borgardómari: „Vegna hinna næstum takmarkalausu möguleika sem tölvunotkun virðist fela í sér, bæði um upplýsingaöflun, geymslu, úrvinnslu og dreifingu, er nauðsynlegt að settar séu um það strangar reglur hvernig vernda eigi einkalíf einstaklinga gegn misnotkun á tölvum. Á þetta bæði við um tölvur í eigu eða rekstri einkaaðila sem opinberra aðila. Hitt verður jafnframt að hafa í huga, að útilokað er, eins og nú er komið þróun þessara mála, að banna notkun talva algjörlega að svo miklu leyti sem sú notkun beinist að einkalífi manna. En hér verður að leitast við að fara hinn gullna meðalveg, þannig að nokkurt jafnvægi sé milli þeirrar nauðsynjar og þess hagræðis sem notkun á tölvu í nútíma þjóðfélagi hefur í för með sér annars vegar og hins vegar þarfarinnar á verndun einkalífs manna, en þetta getur vissulega verið erfitt, og sérstaklega þarf að vera á varðbergi um það að ekki halli á einkalífið.“
Magnús Thoroddsen gerir tilraun til að svara þeirri spurningu hvaða persónubundnar upplýsingar eigi að leyfa að setja í tölvur. Hann segir: „Því er erfitt að svara og verður alls ekki gert svo óyggjandi sé, en þó verður að telja að safna megi saman nokkrum hlutlausum upplýsingum sem ekki brjóta í bága við vernd einkalífs einstaklinga, svo sem nafn, starf, heimilisfang, fæðingardag, hjúskaparstétt, barnafjölda, menntun og e.t.v. eitthvað um eignir sem skráðar eru opinberri skráningu.“ Hins vegar segir hann síðar að ekki sé rétt að setja í tölvur upplýsingar um hin viðkvæmustu málefni einkalífs, en sé það talið einhverra hluta vegna nauðsynlegt, þá á heimild til slíks að byggjast á lögum og banna á dreifingu á þeim upplýsingum.
Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að rekja að öðru leyti þetta fróðlega erindi Magnúsar Thoroddsens borgardómara. Ég tel mig hafa fært alveg nægileg rök fyrir því að hv. Alþ. beri skylda til að sinna þessu máli eins og gert hefur verið á þjóðþingum næstum allra landa í kringum okkur.
Ég vek á því athygli að þetta er ekki í fyrsta sinn sem þessi till. er flutt hér á Alþ. Hún var flutt fyrir tæpum tveimur árum, en hlaut þá ekki afgreiðslu. Ég minni líka á það, að vegna fámennis þjóðarinnar er sérstaklega auðvelt á Íslandi að nota nýjustu tölvutækni til að koma upp skrám um einkahagi allra landsmanna. Á skal að ósi stemma og við megum þakka fyrir að þessi þróun er enn tiltölulega skammt á veg komin hér á landi. En það er ekki seinna vænna að ráðstafanir verði gerðar til að koma í veg fyrir að unnt sé að hagnýta tölvutækni hér á landi í annarlegum tilgangi.
Ég legg til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði þessari till. vísað til hv. allshn.