05.04.1976
Efri deild: 84. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2969 í B-deild Alþingistíðinda. (2445)

213. mál, veiðar utan fiskveiðilandhelgi Íslands

Frsm. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Sjútvn. hefur fjallað um frv. þetta og mælir einróma með samþykkt þess eins og fram kemur í nál. á þskj. 470. Á fundi n. mættu frá rn., frá Hafrannsóknastofnuninni og frá Landssambandi ísl. útvegsmanna Þórður Ásgeirsson deildarstjóri, Jón B. Jónsson fulltrúi, Kristján Ragnarsson, L.Í.Ú., Jakob Jakobsson og Ingvar Hallgrímsson frá Hafrannsóknastofnuninni.

Menn voru allir á einu máli um það, að lög sem þessi væru nauðsynleg. Er þar einnig vísað til þeirrar reynslu sem fékkst á s.l. ári í sambandi við veiðar í Norðursjónum. Ljóst er jafnframt að með útfærslu fiskveiðilögsögu væntanlega allt í kringum okkur verður nauðsynlegt, m.a. vegna hugsanlegra milliríkjasamninga um slíkar veiðar, að einhver aðili geti haft öruggt eftirlit þar með. Því mælir n., eins og ég sagði, einróma með því að frv. þetta verði lögfest.