05.04.1976
Neðri deild: 87. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2982 í B-deild Alþingistíðinda. (2473)

23. mál, umferðarlög

Frsm. (Ellert B. Schram):

Herra forseti. Aðeins nokkur orð. Ég gerði hér í síðustu viku grein fyrir áliti hv. allshn. varðandi þetta frv. Ég gerði þar grein fyrir því að n. hefði fengið allmargar umsagnir um málið og þær hefðu verið bæði jákvæðar og neikvæðar, en sagði jafnframt frá því að langflestar aths. hefðu verið neikvæðar, og vil ég aðeins skýra betur frá því.

Það er rétt, sem fram kom hjá hæstv. ráðh., að nokkrar umsagnanna voru jákvæðar, m.a. frá embætti lögreglustjórans í Reykjavík, Bifreiðaeftirliti ríkisins, Samvinnutryggingum og Ábyrgð hf. Hvað snertir umsagnir t.d. frá lögreglustjóranum og tryggingafélaginu Ábyrgð hf., þá voru það ákaflega lítilfjörlegar umsagnir, svo að ekki sé meira sagt, því að þær voru nánast ein setning um það að viðkomandi embætti og viðkomandi félag mælti með samþykkt frv. Bifreiðaeftirlitið og Samvinnutryggingar fóru aðeins efnislega nokkrum orðum um frv. og það var að mestu leyti jákvætt, en Félag bifreiðaeftirlitsmanna, sem hæstv. ráðh. nefndi líka, gat þess að enda þótt félagið sem slíkt hefði samþ. að mæla með frv., þá væru bifreiðaeftirlitsmenn alls ekki á eitt sáttir, og var skýrt tekið fram í þeirra umsögn hvaða aths. hefðu komið fram úr þeirra röðum.

Til viðbótar þessum umsögnum bárust n. umsagnir frá tryggingafélaginu Hagtryggingu, Félagi ísl. bifreiðaeigenda og Sambandi ísl. bifreiðatryggingafélaga, og allar þessar umsagnir voru mjög neikvæðar og í þeim öllum voru raktar ástæðurnar fyrir því að viðkomandi aðilar legðust gegn frv. hvað þetta snertir sem við erum hér að tala um, þ.e.a.s. umskráningu bifreiða. Þar komu fram mjög veigamikil og sterk rök sem mæltu gegn því að samþykkja breytinguna, og ég hafði þessar umsagnir í huga þegar ég gat þess að langflestar aths., sem fram hefðu komið, hefðu verið neikvæðar.

Ég vil aðeins í þessu sambandi segja frá því, að um leið og ég gerði grein fyrir áliti n. og er samþykkur því, þá var ég mjög opinn fyrir því að standa að þessari breytingu, mæla með henni ef hún leiddi til verulegs sparnaðar. Ég vildi láta ráða afstöðu minni hvort það væri augljóst að sparnaður yrði verulegur og umtalsverður. Þess vegna las ég umsagnir mjög gaumgæfilega, og ég verð að viðurkenna að það var hvergi hægt að sjá í þeim umsögnum, sem bárust, fullgildar útskýringar eða nægileg rök sem sýndu fram á þennan sparnað. Hæstv. ráðh. nefndi í ræðu sinni að talið sé að hægt sé að spara um 20 millj. kr. Þessa tölu hef ég ekki heyrt áður og n. ekki heldur, og ég leyfi mér að efast um að hún muni verða niðurstaðan þegar öll kurl eru til grafar komin.

Í þessu sambandi vil ég aðeins segja hv. d. frá því að í umsögn Bifreiðaeftirlitsins kemur fram eftirfarandi, þar segir: „Við athugun, sem fram hefur farið á rekstri Bifreiðaeftirlits ríkisins, hefur komið í ljós að nær ógerlegt er að skipuleggja starfsemi stofnunarinnar án þess að ökutækin fái fast númer. Með núverandi fyrirkomulagi er ruglingur í skráningu óumflýjanlegur. Verði núverandi skráningarformi við haldið verður að fjölga verulega starfsfólki við Bifreiðaeftirlitið og leggja í margvíslegan aukakostnað til þess að koma umskráningunni í þolanlegt horf.“ Síðan segir: „Ekki er t.d. hægt að ætlast til þess að fólk, sem er skyldað til að skipta um númer á bifreiðum sínum þegar það flyst milli lögsagnarumdæma, skipti um númerin undir berum himni. Til þess yrði að byggja sal í tengslum við skoðunarstöð. Í Reykjavík hefur Bifreiðaeftirlitinu verið úthlutað lóð. Teikningu skoðunarstöðvar er langt komið. Verði um skráningum hins vegar fram haldið verður ekki séð að lóðin rúmi þær byggingar sem þarf yfir starfsemina.“

Ef þessar 20 millj. eru m.a. fundnar með því að draga þá ályktun að það þurfi að byggja þetta stóra hús og að útilokað sé að láta almenning skipta um númer undir berum himni, þá er sjálfsagt hægt að komast að þessari niðurstöðu. En mér finnst þetta ekki vera mikilvæg röksemd. Það er auðvitað hægt að gefa sér ýmsar ástæður og forsendur fyrir því að það þurfi að leggja í þennan eða hinn kostnaðinn ef áfram verði haldið með núverandi fyrirkomulagi. En það er enginn sem segir að það þurfi að gera það, og ég held að ef fólk vill halda sínum númerum og skipta um númer þegar skipt er um bifreið, þá sé ekkert því til fyrirstöðu að það verði einfaldlega að sætta sig við að gera það undir berum himni. Við getum a.m.k. ekki farið að breyta lögum eingöngu vegna slíkra ástæðna.

Ég nefndi það í ræðu minni hér, þegar ég gerði grein fyrir nál., að ef Bifreiðaeftirlitið vildi reyna að spara og koma í veg fyrir einhver útgjöld sem hljótast af því að þurfa að hafa fjölda manna í umskráningunni, þá væri hægt að fella t.d. niður skoðunarskylduna sem nú er þegar skipt er um eigendur á ökutæki og það væri jafnframt hægt að hækka gjaldið sem menn þurfa að greiða þegar þeir fá sér ný númer eða þegar þeir skipta um bifreið og halda sínu gamla númeri. Ég er sannfærður um að þetta hvort tveggja mundi auðvelda Bifreiðaeftirlitinu að framkvæma umskráninguna í núverandi formi og það mundi jafnframt draga úr því að fólk sæktist eftir því að halda sínum númerum.

Það er sjálfsagt rétt hjá hæstv. ráðh. að hjá mörgum er það visst tregðulögmál og tilfinningasemi sem ræður afstöðu þeirra í þessu máli og og veldur því að fjölmargir vilja halda núverandi kerfi óbreyttu. En ég vísa því á bug að þau lögmál eða sú tilfinningasemi hafi ráðið afstöðu allshn. Ég hygg að í fyrsta lagi sé það þetta, að n. kom ekki auga á þann sparnað sem um er talað. Hún taldi ekki nægileg rök vera fyrir því að breyta frá núverandi kerfi í nýtt form, vegna þess að hún sá fram á að ef breytingin yrði og jafnvel þótt einhver sparnaður kæmist á í Bifreiðaeftirlitinu, þá mundi nokkur kostnaður hljótast af á móti. Ég benti á í því sambandi að það virtist vera nauðsynlegt að setja upp sérstaka þinglýsingarstofu, skrásetja þar bifreiðar og veðskuldir og fjárnám sem á ökutækjunum hvíldi. Það mundi hljótast nokkur kostnaður af að setja upp slíka skrifstofu. Það mundi valda fólki nokkrum kostnaði að nálgast þær upplýsingar, og vegna þess að þar flyttist skrásetningin inn á eina stofu sjálfsagt í Reykjavík, þá mundi það valda nokkrum kostnaði fyrir fólk úti á landi. Jafnframt yrði það til þess að fólk mundi, þar sem það hefði ekki nægilegan aðgang að þessum upplýsingum, ekki leita eftir þeim og undir vissum kringumstæðum mundi skapast tjón af því. Þá vakti ég athygli á því að ef nýtt skráningarkerfi er tekið upp, þá þarf að búa til ný númer á allar bifreiðar, öll ökutæki landsins, og það hlýtur að kosta nokkuð. Síðan var dregin sú ályktun að þar sem landinu væri ekki lengur skipt í áhættusvæði, þá mundu sjálfsagt iðgjöldin hækka nokkuð. Allt er þetta nokkur kostnaður fyrir hvern einstakan eiganda ökutækis. Síðast en ekki síst tel ég ástæðu fyrir því að n. tók þessa afstöðu, a.m.k. einhverjir nm., sjálfsagt einhverjir fleiri, vera þá viðleitni hjá þm, og sem betur fer hjá fleiri íslendingum að sporna við því að við verðum allir að númerum í tölvum og allt kerfið og allt lífið verði ópersónulegra en það er nú í dag. Ef þetta manneskjulega viðhorf hefur einhverju ráðið, þá finnst mér það persónulega ekki skipta neinu.

Hitt er annað mál, að enda þótt allshn. hafi ekki fallist á að samþykkja þessa breytingu, þá er langt í frá að þetta mál sé úr sögunni. Það er vakin athygli á því að Bifreiðaeftirlítið getur haldið þessu kerfi jafnframt gamla kerfinu, þannig að sú vinna, sem nú þegar hefur verið lögð í það, sá kostnaður, sem út hefur verið lagður, kemur að notum. Og ef mál þróast þannig, ef íslendingar fá sannfæringu fyrir því að skynsamlegt sé að breyta í það horf, sem frv. gerði upphaflega ráð fyrir, þá yrði alltaf hægt að taka það mál upp aftur.