06.04.1976
Sameinað þing: 75. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3002 í B-deild Alþingistíðinda. (2485)
188. mál, byggðaþróunaráætlun Norður-Þingeyjarsýslu
Forsrh. (Geir Hallgrímsson):
Herra forseti. Hinn 31. mars s.l. gerði ríkisstj. svofellda ályktun:
„Ríkisstj. staðfestir að hafa veitt byggðaþróunaráætlun Norður-Þingeyjarsýslu viðtöku og heimilar útgáfu hennar með fyrirvara um að framkvæmdir samkvæmt áætluninni séu háðar nánari athugunum og ákvörðunum, m.a. um fjárveitingar.“
Sú áætlun, sem hér um ræðir, barst ríkisstj. rétt um mánaðamótin okt.–nóv., en hér er um allmikið plagg að ræða, eins og menn sjá, og þótti eðlilegt og sjálfsagt að ráðh. gæfist tækifæri til þess að skoða þessa áætlun áður en afgreiðsla færi fram í ríkisstj. og veit ég ekki betur en þessi samþykkt ríkisstj. hafi verið tjáð Framkvæmdastofnun ríkisins. Framkvæmdastofnun ríkisins eða áætlanadeild hennar hefur gert nokkra frekari grein fyrir þessari áætlun sem ég vil — með leyfi hæstv. forseta — rekja hér:
Í þeim lögum um Framkvæmdastofnunina, sem enn eru í gildi, er svo kveðið á í 11. gr.: „Áætlanir skulu sendar ríkisstj. til samþykktar og gerir hún Alþ. grein fyrir þeim.“
Með þessu var ætlast til, að áætlanir fengju stefnumarkandi gildi, og þar með skírskotað til allra hlutaðeigandi opinberra aðila að stuðla að framgangi þeirra. Kemur þessi skilningur fram í 1. málsgr. formála, en hann er aðeins uppkast þar til vitað er um staðfestingu ríkisstj., svo hljóðandi:
„Birtist áætlunin hér með öllum hlutaðeigandi aðilum til upplýsingar um stefnumið hins opinbera að því er varðar byggðaþróun Norður-Þingeyjarsýslu svo og til þess stuðnings og fyrirgreiðslu við þessi stefnumið, er opinberir aðilar megna að veita og löglegar heimildir eru eða verða til fyrir.“
Með þessu er rækilega undirstrikað að skuldbindingar hins opinbera vegna áætlunarinnar eru siðferðilegar fremur en lagalegar og fyllilega bundnar af réttum lögheimildum í hverju tilviki. Áætluninni er eigi að siðar ætlað að vera nytsamt gagn við öflun slíkrar heimildar, einkum fjárveitinga og lánveitinga.
Við vinnslu áætlunarverkefnisins var að sjálfsögðu að því stefnt að koma svo nærri beinum till, um aðgerðir sem auðið yrði, þó svo að endanlegar ákvarðanir um framkvæmdir og fjárhagslegar ráðstafanir hlytu afgreiðslu eftir venjulegum stjórnarfarslegum leiðum. Reynslan hefur staðfest þessa eðlilegu varkárni. Hafa stjórnsýsluaðilar og sýnt mikla tregðu á að tjá sig til fullnustu um aðgerðir. Það, sem. er einna nærtækast til fastrar áætlunar, samgönguframkvæmdirnar, hefur verið tekið til sérstakrar áætlunargerðar, þ.e. samgönguáætlunar Norðurlands. Af þessu leiðir að Norður-Þingeyjarsýsluáætlunin inniheldur engar beinar, fullar og endanlegar skuldbindingar um fjárveitingar eða aðrar aðgerðir ríkisvaldsins. Væntanlega mun áætlunin af ýmsum gagnrýnd fyrir einmitt þetta. Gildi áætlunarinnar helst þannig fyrst og fremst í kerfisbundinni samstillingu allra nauðsynlegra þróunarskilyrða landshlutans. Uppfylling hvers þessara skilyrða styður að og eflir önnur, þannig að samstilltar þróunaraðgerðir á sem flestum sviðum veita mun meiri von en einangraðar aðgerðir.
Sjónhringur áætlunarinnar er settur við árið 1985 og millistig sett við árið 1975 og 1980, en gagnagrundvöllur áætlunarinnar miðast yfirleitt við árið 1973. Sett er fram það markmið til viðmiðunar að Norður-Þingeyjarsýsla haldi eigin fólksfjölgun án nettó-brottflutninga. Samkvæmt því er spáð fjölgun í sýslunni úr 1807 manns 1973 í 2160 árið 1985. Samsvarandi fjölgun mannafla er úr 755 upp í 950. Að meðtalinni vannýtingu mannafla, sem fram kemur í skýrslum 1973, er þörf nýrra atvinnutækifæra áætluð 310 fram til 1985, þar af 162 fyrir komir.
Mikill hluti áætlunarinnar gengur út á að meta með hvaða hætti verði unnt að uppfylla þessa þörf og þá í hvaða atvinnugreinum og byggðum. Til þess þarf að verða talsverð breyting á atvinnusamsetningunni eða hlutfallslega sem hér segir: Frumvinnsla 1973 43, 1985 30. Úrvinnsla 1973 42, 1985 50. Þjónusta 1973 15, 1985 20. Hér er um hlutfallstölur að ræða. Gert er ráð fyrir svo til óbreyttri búsetu í sveitum, en lítils háttar aukningu atvinnusóknar þaðan í þéttbýlið með aukinni framleiðni í búskap og sömuleiðis nokkurri fækkun í fiskveiðunum sjálfum með stækkun skipa og þess háttar. Á móti verði mest töluleg aukning í úrvinnslugreinum, en hlutfallslega mest í þjónustu. Hlutverkaskipan byggðanna miðist við þann atvinnukjarna, er þegar hefur verið byggður upp, og við náttúruskilyrði og samgönguaðstæður. Þórshöfn fái sökum legu sinnar nokkurn forgang sem þjónustumiðstöð sveitanna og sýslunnar allrar, þó ekki einhliða eða á kostnað hinna staðanna. Mannfjöldaþróun byggðanna áætlast því þannig: Þórshöfn 1973 461, 1985 650. Raufarhöfn 1973 469, 1985 580. Kópasker 1973 111, 1985 170. Strjálbýli fyrra ártalið 766, seinna ártalið 760. Norður-Þingeyjarsýsla samtals 1973 1807, 1985 2160.
Gerðar hafa verið frumathuganir á ýmsum atvinnumöguleikum til þess að bera uppi þessa þróun og er í áætluninni gerð grein fyrir niðurstöðunum sem eru til bráðabirgða og vísa til nánari athugunar heimamanna og fjármögnunaraðila.
Á Þórshöfn er talin þörf á að ljúka frystihúsbyggingu, byggja eða endurbæta aðstöðu fyrir trésmíðaverkstæði og í tengslum við það slipp, fyrir kjötvinnslu, brauðgerð, blikk- og plötusmiðju, og til athugunar er lítil lagmetisiðja ef færi gefst til aukningar í þeirri grein. Á opinbera og þjónustusviðinu er til athugunar heilsugæslustöð, stjórnsýslumiðstöð og kennsluhúsnæði ásamt heimavistar- og gistiaðstöðu.
Á Raufarhöfn eru uppi svipaðar ráðagerðir fyrir fiskiðnaðinn, auk trésmíðaverkstæðis, vélaverkstæðis, og nokkurri aðstöðu fyrir stjórnsýslu, sjúkramóttöku og íþróttakennslu.
Á Kópaskeri er fyrst og fremst áformað að fullnýta tækifæri til kjöt- og sláturvinnslu, auk lágmarksaðstöðu til útgerðar og fiskvinnslu. Koma þarf upp eða endurbæta aðstöðu fyrir blikk- og plötusmiðju ásamt vélaverkstæði, trésmíðaverkstæði og á þjónustusviðinu heilsugæslu og barnafræðslu, þar með talinni íþrótta- og félagsaðstöðu, og enn fremur aðstöðu fyrir banka, héraðsbókasafn og stjórnsýslu.
Fyrir alla staðina er gerð áætlun um íbúðaþörf er nemi næstu 5 árin á Þórshöfn 6 íbúðum á ári, á Raufarhöfn 4 íbúðum á ári og á Kópaskeri 2 íbúðum á ári.
Svo sem fyrr er að vikið er ekki gengist undir ákveðnar skuldbindingar um neitt þessara atriða, heldur þeim vísað til framhaldsmeðferðar á vegum fyrirtækja, fjárfestingalánasjóða og opinberra aðila. Gerð er mannaflaspá og lausleg fjárfestingarspá í samandregnu formi. Fjallað er í sérstökum kafla um opinber kerfi og þjónustu og bornar fram ýmsar ábendingar sem hér yrði of langt að telja, en vænst er að hinir opinberu aðilar taki til athugunar hver á sínu sviði.
Síðan segir í þessari grg. frá áætlanadeild um viðhorfin nú:
Því er ekki að neita að hinir alvarlegu og þrálátu jarðskjálftar í vesturhluta Norður-Þingeyjarsýslu hafa um tíma valdið óvissu um framhald þróunaraðgerða samkvæmt skipulegri áætlun. Nú virðist að mestu séð fyrir endann á þeirri röskun. Enda þótt nokkurt tjón hafi orðið virðist ekki hafa orðið sá héraðsbrestur að raski grundvelli byggðar á svæðinu. Eigi að síður mun ástæða til að athuga hvaða breytingar hafa orðið þar með á öryggi þéttbýlismyndunar og þess háttar. Getur það átt samleið með annarri framhaldsvinnu við áætlunina. Engar till. hafa komið fram um að falla frá áætluninni af þessu tilefni. Mun fremur vera hallast að því að tilefnið sé orðið brýnna en ella til sérstakra aðgerða til þess að treysta of efla byggð í Norður-Þingeyjarsýslu.
Hér hefur verið gerð grein fyrir skýrslu Framkvæmdastofnunar ríkisins eða áætlanadeildar hennar í sambandi við þá byggðaþróunaráætlun er hún hefur gert varðandi Norður-Þingeyjarsýslu. Ég vil aðeins bæta við örfáum orðum af því tilefni að sérstök vandamál eru til staðar í Norður-Þingeyjarsýslu sem eru til athugunar og meðferðar af hálfu stjórnvalda og krefjast úrlausnar. Auk afleiðinga af náttúruhamförunum á Kópaskeri sem ríkisstj. hefur haft til athugunar, fyrst með því að heilbr.- og trmrh. gerði sér ferð þangað norður til að kanna afleiðingar jarðskjálftanna. Í kjölfar þess var sú yfirlýsing gefin að tjón af völdum þeirra mundi hljóta sömu meðferð og tjón af völdum álíka náttúruhamfara, þ.e.a.s. eldgossins í Vestmannaeyjum og snjóflóðanna í Neskaupstað. Að miklu leyti til er hér um að ræða tjón sem hin nýja Viðlagatrygging mun bæta. En auk þess er tjón á öðrum mannvirkjum og verðmætum sem ekki fellur undir bótaskyldu Viðlagatryggingar og þarfnast sérstakrar meðferðar. Þar sem hér er um að ræða atriði og málefni sem falla undir fleiri en eitt ráðuneyti, ákvað ríkisstj. að fela félmrh. að samræma aðgerðir á þessum sviðum og hefur nefnd haft þau mál til athugunar og meðferðar.
Þá er það og ljóst, að frystihúsrekstur og útgerð frá Raufarhöfn á við sérstök vandamál að stríða og hefur Framkvæmdastofnun ríkisins haft þau mál sérstaklega til meðferðar og tillögugerðar.
Loks er þess svo að geta, að Þórshöfn hefur orðið fyrir því að aflabrestur hefur orðið nær alger á yfirstandandi vertíð, eða frá áramótum, ef miðað er við afla fyrri ára og jafnvel síðasta árs, þegar aflinn minnkaði um helming frá árinu áður. Allt þetta hefur orðið til þess að nokkurt atvinnuleysi hefur myndast á Þórshöfn og hafa fulltrúar Þórshafnarbúa átt fund með mér norður á Akureyri, þegar ég átti þar ferð um, og afhent mér bréf og grg. um vandamál sín, auk þeirra tillagna og grg. er áður höfðu verið sendar sjútvrh., og hefur hann þau mál nú til sérstakrar athugunar, en þau eru mjög erfið úrlausnar. Þar er fyrst og fremst um hráefnisskort að ræða vegna aflabrests sem að hluta til kann að eiga sínar orsakir í veiðum breskra togara nálægt miðum þeirra Þórshafnarbúa. Öll þessi mál eru til meðferðar, og hafa þm. Norðurl. e. einnig átt fund með fulltrúum ríkisstj. varðandi þau mál, og mun því samráði. sem þar með er haft við þingmenn kjördæmisins, verða áfram haldið af hálfu ríkisstj.