06.04.1976
Sameinað þing: 75. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3007 í B-deild Alþingistíðinda. (2488)

202. mál, framfærslukostnaður

Forsrh. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Í þál. þeirri, sem hér um ræðir, er ákveðið að Hagstofu Íslands skuli falið að reikna út framfærslukostnað a.m.k. á einum stað í hverjum landsfjórðungi. Hafinn er undirbúningur að þessari athugun, og hefur Hagstofan m.a. leitað til verðlagsstjóra um aðstoð við öflun efniviðar til hennar. Er hér aðallega um að ræða söfnun ítarlegra verðupplýsinga frá þeim stöðum utan Reykjavíkur sem athugunin tekur til, en hverjir þeir verða hefur ekki enn verið ákveðið endanlega.

Stefnt er að því að verðupptaka og önnur nauðsynleg upplýsingaöflun í þessu sambandi fari fram í maí n.k., þ.e. á sama eða líkum tíma og framfærsluvísitala maímánaðar 1976 í Reykjavík verður reiknuð, enda er tilgangur þessarar athugunar að leggja grundvöll að samanburði framfærslukostnaðar á nokkrum stöðum á landinu á þeim tíma er hún fer fram. Óhjákvæmilegt er að senda vana verðupptökumenn til viðkomandi staða útí á landi til gagnaöflunar. Þegar eftir að verðupplýsingar liggja fyrir verður hafist handa um úrvinnslu þeirra. Óvíst er, hve langan tíma hún muni taka, en áhersla verður lögð á að hraða verkinn.

Í þessu, sem ég nú hef sagt, er byggt á upplýsingum hagstofustjóra. Hann óskar eftir því að það komi líka fram, að vegna misskilnings fékk Hagstofan ekki vitneskju um samþykkt umræddrar þál. fyrr en seinni hluta októbermánaðar 1975.

Af þeim sökum og einnig vegna ýmissa annarra knýjandi verkefna hefur því miður orðið allmikill dráttur á því að Hagstofan hæfist handa um framkvæmd þessa verks. En ætlunin er, eins og ég hef áður greint, að athugun þessi fari fram samhliða útreikningi á framfærsluvísitölu maímánaðar 1976 í Reykjavík.