06.04.1976
Sameinað þing: 75. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3007 í B-deild Alþingistíðinda. (2489)

202. mál, framfærslukostnaður

Fyrirspyrjandi (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir þessar upplýsingar. Þótt við hefðum gjarnan kosið vegna okkar starfs í milliþn. að hafa þessa niðurstöðu fyrr, þá fagna ég þó því að starfið er að hefjast og mér heyrist að til þess eigi að vanda, og má segja að það sé aðalatriðið. Ég vona að það taki ekki langan tíma, þannig að niðurstöður geti legið fyrir á miðju sumri, og endurtek að ég tel að slíkur samanburður sé mjög mikilvægur þegar meta skal aðstöðu manna til búsetu í hinum ýmsu landshlutum.