05.11.1975
Efri deild: 11. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 389 í B-deild Alþingistíðinda. (250)

40. mál, almannatryggingar

Flm. (Helgi F. Seljan) :

Herra forseti. Við höfum leyft okkur, hv. 5. þm. Norðurl. e. og ég, að flytja hér frv., endurflytja frv. til l. um breyt. á l. um almannatryggingar. Þetta frv. fluttum við einnig á s. l. þingi og aðalmál þess er, eins og segir í 1. gr., að við 43. gr. þessara laga bætist nýr líður: „Ef sjúklingur þarf að leita til sérfræðings að læknisráði um lengri vegu, skal greiða honum hluta af ferðakostnaði skv. nánari ákvæðum í reglugerð. Þurfi sjúklingur að leita sérfræðiþjónustu á reglubundinn hátt árlega eða oftar, skal greiða honum ferðakostnaðinn að fullu. Greiðsla ferðakostnaðar miðist við vottorð viðkomandi læknis og sérfræðings.“

Ég rakti í fyrra nokkuð forsögu þessa máls. Ég dró þá enga dul á vonbrigði mín hvað snertir þetta tiltekna atriði og framkvæmdina á því, sem var engin á meðan vinstri stjórn var við völd sem framkvæmdi margar afgerandi breyt. til bóta á almannatryggingakerfinu. Ég benti þá einnig á hver ástæða hefði verið uppi höfð til andófs gegn þessu ákvæði sem við erum þarna að leggja til að upp verði tekið, þ. e. a. s. misnotkunarhættan. Meðan vinstri stjórnin sat hreyfði ég þessu máli nokkrum sinnum og treysti því reyndar alla tíð þá að eitthvað miðaði. Ég treysti því enn á s. l. þingi að okkur tækist að koma þessu eitthvað í áttina, þrátt fyrr allt og þrátt fyrir það að við flm. séum kannske ekki allt of bjartsýnir á þá stjórnarstefnu sem þá og nú ríkir.

Hér er um að ræða miklu stærra mál en menn gera sér í fljótu bragði grein fyrir, og þó alveg sérstaklega á þetta við um síðara atriðið, þar sem um tilfelli getur verið að ræða sem getur varað ár eftir ár með gífurlegum kostnaði fyrir viðkomandi. Þetta mun ég rekja nánar síðar.

Það er skylt að geta um málsmeðferðina í fyrra. Form. heilbr.- og trn., hv. 2, þm. Reykn., var mjög jákvæður í þessu máli. Hann vildi ljúka þessu á einhvern hátt, og þá með tilliti til þeirrar endurskoðunar, sem þá fór fram á tryggingakerfinu frá hendi Guðjóns Hansens, féllst ég á það, — þó að ég væri ekki ýkjahrifinn af því að öllu leyti, þá féllst ég á það, með tilliti til hins góða samkomulags og samráðs sem alltaf var haft í þessari n., að þessu máli yrði vísað til ríkisstj. í ljósi þessarar endurskoðunar. Ég tilkynnti þá jafnframt að við flm. mundum endurflytja þetta frv. nú ef við sæjum ástæðu til.

Það fer auðvitað ekkert á milli mála hvernig á því stendur að við endurflytjum þetta frv. nú og komum því þannig aftur í sviðsljósið. Það er ekki vegna þess að neitt hafi breyst varðandi þá endurskoðun sem um var talað í vor og staðið hefur yfir án efa af hálfu þessa embættismanns. Það er auðvitað aðalástæðan fyrir því, að við flytjum þetta frv. nú, að nú er boðuð mikil skerðing framlaga til almannatrygginga. Við vitum ekki enn hvaða þætti tryggingamálanna þarna er um að ræða, hverjir verða teknir út úr og hvernig málsmeðferð verður í heild. Og auðvitað er rétt að minna á það, að til þess verks hafa verið fengnir til samráðs fulltrúar frá hinum einstöku þingflokkum, og ber að meta það. Við óttumst það hins vegar óneitanlega að þessi endurskoðun feli það eitt í sér að um skert ákvæði á einhverjum sviðum verði að ræða og að bein afleiðing af því verði sú að nauðsynjaatriði, því að þetta teljum við flm. hreint nauðsynjaatriði umfram mörg önnur sem í tryggingalöggjöfinni eru í dag, — að þessi atriði hreinlega týnist, ekki síst með tilliti til forsögu málsins þegar einmitt hin mikla varkárni réð, að þetta atriði var ekki tekið upp. Þá var sem sagt bent á það æ ofan í æ og er sjálfsagt bent enn á það að hér sé um svo mikla misnotkunarhættu að ræða að það þurfi bæði vandlega að gæta að þessu áður en farið er út í ákveðna lagasetningu og jafnvel erfitt að synda fyrir allar hættur þarna. Við flm. teljum hins vegar alveg ótvírætt að misnotkunarhættan sé ekki meiri þarna en annars staðar í tryggingakerfinu. Hún er vitanlega alls staðar fyrir hendi, og okkur dettur ekki í hug að ímynda okkur að sú ágæta löggjöf sé ekki misnotuð af einstökum aðilum. Okkur kemur það ekki til hugar. Vitanlega er alltaf sú hætta fyrir hendi. Og það gildir auðvitað um miklu fleiri lög en hér um ræðir. Við skulum þá vona að þessi endurskoðun, sem nú á að fara fram einmitt í skerðingarátt, — við skulum vona að hún sníði af annmarkana, þá annmarka sem gætu beinlínis leitt af sér misnotkun á öðrum sviðum tryggingalaganna.

Það er erfitt að ræða um almenna skerðingu nú meðan ekkert er vitað um það í hverju hún á að vera fólgin. Auðvitað er óhugur í okkur flm. varðandi þetta tal um skerðingu tryggingabóta, og það er óhugur í mörgu öldruðu fólki í dag. Við verður auðvitað að vona að það bitni ekki á þeim sem síst skyldi, þó að mér sýnist erfitt að hugsa sér mikinn samdrátt án þess að hann komi þar einhvers staðar niður. En ég skal ekki fara í almennar umr. um þessi mál. Til þess gefst síðar tækifæri. Við verðum einnig að vona það og treysta því að hér sé ekki um neitt almennt afturhvarf frá þeirri stefnu að ræða sem einkennt hefur þessa löggjöf okkar, þá samhjálparstefnu sem ríkjandi hefur verið. En ég verð engu að síður, þó að hér sé verið að ræða um skerðingu framlaga til almannatrygginganna almennt, þá verð ég engu að síður að treysta því að ýmis réttlætismál, sem enn eru óleyst, hverfi ekki algerlega í skuggann eða hverfi ekki til fulls í þessari endurskoðun. Sé um ofgreiðslur að ræða í einhverjum þáttum trygginga, eins og beinast liggur við að álykta vegna þessarar endurskoðunar sem nú stendur fyrir dyrum, þá held ég að megi eins huga að hinum vangreiddu þáttum, og fyrir landsbyggðarfólk leikur enginn vafi á því að þessi atriði eru mikilvæg og mikilvægari en jafnvel sum önnur sem í dag eru þó sjálfsögð.

Við rekjum ástæðurnar fyrir þessu í grg. þar sem segir svo með leyfi hæstv. forseta:

„Nær öll sérfræðiþjónusta á sviði lækninga er á höfuðborgarsvæðinu og þangað verður fólk að leita úr fjarlægum landshlutum ef sérstakra meiri háttar rannsókna og aðgerða er þörf. Sérstaklega er þetta tilfinnanlegt hvað kostnað snertir þegar um sjúkdóma er að ræða, sem krefjast reglubundinna ferða á fund sérfræðinga, jafnvel oft á ári. Við allan ferðakostnaðinn bætist svo oft mikill dvalarkostnaður í Reykjavík. Engin sanngirni er í því að sjúklingar beri þennan kostnað bótalaust, því meðan svo er, þá er hér um að ræða stórkostlega mismunun fólks eftir búsetu.“

Hins vegar, eins og við segjum seinna í grg., bendum við á heilbrigðislögin nýju. Sjúkrahús og heilsugæslustöðvar geta vissulega breytt miklu ef sérfræðingarnir fást til starfa í þeim. Við gerum okkur þó ljóst að þær leysa ekki allan vanda, en jákvæðasta ráðið til þess er þó að hraða framkvæmd þeirra laga. Í ljósi þess ástands sem ríkir í dag, erum við flm. ekki ýkjabjartsýnir á að þessi lausn, sem óneitanlega getur verið fólgin í skjótri framkvæmd heilbrigðislaganna, muni sjá dagsins ljós alveg á næstunni. Ég vitna aðeins í það að skv. fjárlfrv., sem liggur fyrir Alþ., á ekki á næsta ári að ráðast í neina nýja framkvæmd, hversu knýjandi sem hún kann að vera. Nú er ég ekki að hafa á móti því að það kunni að vera rétt að fullgera það sem fyrir er og sjá til þess að þær heilsugæslustöðvar, sem þegar eru komnar í gang, komist í gagnið og verði virkar og raunhæfar. Engu að siður er það staðreynd að mjög margir þrýsta nú á um að geta byrjað eitthvað á þessum framkvæmdum, þessum nauðsynlegu framkvæmdum. Auðvitað veit ég ekki hvort það verður endanleg stefna Alþ. að ganga út frá þessu sem vissu, svo sem gert er í fjárlagafrv., að þarna skuli í engan nýjar framkvæmdir ráðist. Hins vegar getum við kannske verið svolítið bjartsýnir í þessu máli gagnvart því sem kom fram í umræðum í haust um verkefnaskort lækna í framtíðinni, — bjartsýnir á það að sérfræðingarnir haldi nú út á land, hrekist þangað eins og þeir mundu sennilega orða það. En þó að þessi þjónusta komi í heilsugæslustöðvarnar og í sjúkrahúsin okkar úti á landi, þá leysir þetta ekki allan vanda. Það verða alltaf tilfelli út undan, en breytingin getur orðið mikil eftir því sem þessi ákvæði verða rúm. Ég skal ekki segja um hvað menn geta fallist á að hafa þau rúm. Við höfum verið með þetta í tvennu lagi, viljandi, bæði þar sem við teljum þarna töluverðan eðlismun á og við höfum ekkert heldur við það að athuga þótt þarna yrði gengið á einhvern hátt skemur en við erum þarna að fara fram á. Þetta er ekkert endanlegt frá okkar hálfu, en við viljum aðeins að það sé tekið tillit til þessara aðstæðna landsbyggðarfólksins sem þarf að leita til sérfræðings að læknisráði um langan veg.

Við flm. höfum ekki heldur dregið neina dul á það hve mikil aukning gæti hér orðið á útgjöldum sjúkratrygginga, Ég benti á það áðan, að byrjunin þarf ekki að verða sú sem hér er ráð fyrir gert. Það yrði sannarlega stigið stórt spor þótt ekki væri í öllu fallist á till. okkar. En einmitt þetta, að við bendum á að hér verði mikil aukning á útgjöldum sjúkratrygginga, það sannar okkur hve mikill kostnaður lendir hér á fólki sem fjarri býr sérfræðilegri þjónustu, alveg sérstaklega því fólki sem reglubundið þarf að leita til sérfræðinga. Vaxi mönnum í augum háar upphæðir sjúkratrygginganna sem af þessu frv. leiddi, þá ættu menn um leið að hafa þennan kostnað landsbyggðarbúa vel í huga og kanna um leið og íhuga vel hvort ekki sé réttlátt að koma til móts við þessar þarfir á einhvern hátt. Ég þekki sjálfur ótalin dæmi þess að ung börn hafa þurft að fara tvisvar, þrisvar á ári hingað suður og þá hefur foreldri þurft að fylgja með af eðlilegum ástæðum, búa jafnvel á gistihúsum, rannsóknar- eða aðgerðartímann, og ég hef dæmi frá Fáskrúðsfirði á yfirstandandi ári um kostnað sem nú í dag nemur orðið um 47 þús. kr. og í jan.– febr. á næsta ári þarf að fara í eina ferðina enn. Hér er að vísu um erfitt tilfelli að ræða, en ég bendi á það að barnaörorkan svokallaða kemur þarna ekki til greina og ekkert er um að gera annað en að halda áfram ef fullri heilsu á að vera hægt að ná til handa þessari litlu stúlku. Þetta geri ég hér aðeins til að sýna hve tilfinnanlegt þetta getur verið fyrir einstaka aðila, en alls ekki að rekja þetta sem eitt algilt dæmi. Þetta er mjög erfitt tilfelli. Og af því að ég minntist á heilsugæslustöðvarnar, þá er langt í land að þær geti sinnt tilfellum eins og einmitt ég var að taka hér dæmi af nú. Eins og frv. ber með sér er aðeins um greiðslu að hluta að ræða varðandi fyrri þáttinn og ráðh. setur þar um reglugerð. Er sagt í frv. að það skuli greiða honum hluta af ferðakostnaði skv. nánari ákvæðum í reglugerð. Hér mætti byrja smátt og hafa fullkomna varfærni á vegna misnotkunarhættu. Okkur flm. hefur t.d. ekki komið til hugar að ganga lengra í upphafi en t.d. 25–30% og hvað eina munar hér um fyrir fólkið.

Ef ekki reynist unnt að sinna svona sjálfsögðum réttlætiskröfum í einhverju, þá verður allt hjal um byggðastefnuna og aukið jafnrétti landsbyggðarbúum til handa harla léttvægt.

Síðari hlutinn, um það að greiða skuli ferðakostnaðinn að fullu þegar um reglubundnar ferðir er að ræða árlega eða oftar, þar er hins vegar um mál þess eðlis að ræða að við treystum okkur vart til að gera tillögur um minna en greiðslu ferðakostnaðarins. Auðvitað mætti hugsa sér smærri áfanga einnig þar. Við flm. yrðum því t.d. fegnir, þó að gengið yrði skemur, t.d. helming ferðakostnaðar, en við leggjum áherslu á það einnig að siður en svo er um ferðakostnað einan að ræða, eins og ég minnti á hér áðan og rakti ítarlega í framsögu fyrir þessu máli í fyrra.

Ég sem sagt legg áherslu á það, nú eins og ég hef áður gert, hver nauðsyn er að taka þessi mál rækilega inn í athugun tryggingamála. Ég harma það mjög og dreg enga dul á, eins og ég sagði áðan, vonbrigði okkar flm. að slíkt réttlætismál skyldi ekki ná fram að ganga á dögum þeirrar stjórnar sem við studdum. Við vitum fullvel að í dag er þungt undir fæti einnig að ná þessu máli fram. En við teljum samt sem áður að þrátt fyrir endurskoðun í skerðingarátt á einhverjum sviðum þurfi að þessu að huga duglega og finna leiðir til leiðréttingar, alveg sérstaklega hvað síðara atriðið snertir, jafnvel þótt því fyrra yrði þá sleppt, þó að hart sé við að búa. Síðara atriðið er nefnilega of sjálfsagt til þess að láta það liggja óbreytt lengur án allra úrbóta.

Tilgangurinn með endurflutningi þessa frv. var rakinn í upphafi og ég treysti á hvort tveggja og veit reyndar um velvilja þn., sérstaklega form. þeirrar n. sem fjallar um þetta hér í hv. Ed., til þessa máls. Hann hefur marglýst yfir fylgi sínu við að hér verði eitthvað að gert. En ég hlýt einnig og við flm. að treysta á endurskoðunarnefnd tryggingarlaganna sem nú er að störfum, að þrátt fyrir alla skerðingu hjá þeim og niðurskurðarstefnu, þá týnist þetta mál ekki að fullu og öllu, heldur verði á einhvern hátt reynt að koma til móts við það sem við erum hér að fara fram á.

Ég vil svo, herra forseti, leyfa mér að óska þess að þessu máli verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. heilbr.- og trn.