06.04.1976
Sameinað þing: 76. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3043 í B-deild Alþingistíðinda. (2507)

178. mál, veiting prestakalla

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Út af því, sem hv. þm. Jón Helgason sagði áðan og vitnaði í mín ummæli, þá vil ég aðeins taka það fram, að ég sagði að ég vildi gjarnan heyra skoðanir þeirra talsmanna þessarar breyt., sem vilja gera bana, á því, hvort þeir vilji jafnframt breyta kosningu á biskupi. Ég sagði ekkert um að ég teldi nauðsynlegt að breyta henni. (Gripið fram í.) Ja, þetta var mín meining, hvort þessir sömu einstaklingar, sem telja lífsnauðsyn að afnema prestskosningarrétt hjá hinu almenna sóknarbarni, telji þá ekki jafnframt lífsnauðsynlegt að breyta kosningafyrirkomulagi varðandi biskup.

En það var fyrst og fremst út af því sem bæði nú hefur verið sagt hér og eins áður við umr. um þetta mál. Það er í sambandi við hin gömlu lög um veitingu prestakalla. Hver á fætur öðrum af hv. þm., þeim sem vilja afnema prestskosningar í núverandi mynd, hefur vitnað til þess að lögin væru svo gömul, 60 ára gömul, að það væri nauðsynlegt að breyta þeim vegna þess, endurskoða þau og breyta þeim. En um hvað eru þessi lög? Þetta er lagabálkur sem hefur inni að halda 21 gr. og eingöngu, eftir því sem mér sýnist við fljótlega yfirsýn, eingöngu, hver einasta gr., fjallar um kosningar. Og ef þessir hv. þm. telja nauðsynlegt að endurskoða þessi lög með tilliti til breyt., þá er ekki hægt að skilja það á annan veg en þann að þeir vilji breyta kosningafyrirkomulaginu, þó að það hafi að einhverju leyti verið talið óheppilegt að setja það beint inn í till. Grg. gefur tilefni til þess, og allt tal stuðningsmanna þessarar þáltill. hefur borið þess merki hvað þeir vilja gera, þannig að ef þeir halda einhverju öðru fram heldur en því að þeir vilji gera þessa breyt. á kosningafyrirkomulaginu, þá er það hrein sýndarmennska. Breyt. á þessum lögum er ekki hægt að gera með öðrum hætti heldur en breyta þá kosningunum, því að þau fjalla öll um þær. Þó að hv. þm. Ólafur G. Einarsson segði áðan að hann varðaði ekkert um minn stuðning, þá er ég víss um það að innst inni við hjartaræturnar vill hann heldur hafa mig með en á móti. (Gripið fram í.) Þakklæti, það segir nú kannske ekki allt. Stuðningurinn segir meira, svo að ég er viss um að hann hefði gjarnan viljað hafa mig á hinum endanum.

Nei, hér er slíkt mál á ferðinni að það ætti hver og einn einasti hv. alþm. að skoða hug sinn vel um það áður en hann leggur út í það að svipta almenning á Íslandi kosningarrétti til þess að velja sér sálusorgara. Og ég segi: það eru kjarkmiklir menn sem ætla að svipta almenning kosningarrétti nú á 20. öld hér á Íslandi. Og hvað sem má segja um minn vilja þeim til handa, þá efast ég um að þeir beri slíka byrði ef þeim tekst að fá þessa breyt. hér fram, þannig að þeir ættu að skoða hug sinn vel áður en þeir ganga lengra í því að fá slíka breyt. fram eins og hér er lagt til.