07.04.1976
Efri deild: 87. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3097 í B-deild Alþingistíðinda. (2555)
113. mál, álbræðsla við Straumsvík
Frsm. minni hl. (Stefán Jónsson):
Herra forseti. Mér þykir leitt að hæstv. iðnrh. skuli ekki sjá sér fært að vera við 2. umr. um lagafrv. þetta bar sem hér er um harla mikilvægt mál að ræða, en um það mun nú eigi að sakast úr því sem komið er.
Eins og form. iðnn., hv. þm. Steingrímur Hermannsson, gat um í ítarlegri framsögu sinni með áliti meiri hl. n., var talsvert rætt í n. um mengunarvarnir, þá aðallega af minni hálfu, og eftir því gengið að um þann lið yrði fjallað, enda skal fúslega játað að þar var síst af öllu um að ræða neina fyrirstæðu af hálfu form. n. eða nm. að þetta yrði gert.
Ég taldi ákaflega þýðingarmikið að upplýsingar kæmu fram í fyrsta lagi um það hversu gefist hefði að láta þessa álverksmiðju starfa án hreinsitækja í 6 ár, svo sem heimilað var af viðreisnarstjórninni skv. ráðleggingum sömu verkfræðilegra ráðunauta og þeirra sem fyrst og fremst hafa vélað um þann viðbótarsamning sem hér er nú til umr., í öðru lagi af sömu sérfræðilegu ráðunautum og þeim sem stóðu að baki hæstv. iðnrh.? undirbúningi málmblendiverksmiðjunnar frægu á Grundartanga, og svo náttúrlega jafnframt og samtímis nákvæmlega sömu verkfræðingum sem nú liggja hæstv. iðnrh. að því er virðist á hálsi fyrir að hafa látið freistast til þess að treysta á ráðleggingar þeirra og útreikninga í orkumálum yfirleitt og því sem lýtur að stóriðju á Íslandi.
Það, sem fram kom varðandi mengun frá álverinu í iðnn. Ed., var í stuttu máli þetta:
Í reyknum frá álverinu, eins og það er rekið nú án hreinsitækja, eru 14–16 kg af flúor fyrir hvert tonn af áli sem framleitt er, og fór þar að líkum. En dæmalaust mun vera í öðrum svonefndum siðmenntuðum löndum að leyfilegt sé að bræða ál með meira úrfalli af flúor í reyk heldur en sem nemur 1 kg fyrir hvert tonn og jafnvel minna.
Það kom fram í n. að rannsóknum og sýnatöku varðandi flúormengun frá álverinu hefur verið ábótavant, einkum reim rannsóknum sem lúta að mengun þegar frá dregur álverinu. Sýni, sem tekin hafa verið í grennd við álverið, hafa leitt í ljós að flúormengun er þegar fyrir löngu komin hátt upp fyrir hættumörk, orðin mjög mikil. Engin viðhlítandi athugun hefur verið gerð á áhrifum flúors frá verksmiðjunni á garðagróður í Hafnarfirði, ekki síðan Ingólfur Davíðsson gerði þar athugun og hlaut snuprur fyrir hér á Alþ. Ekki komu fram upplýsingar sem bentu til þess að neins konar ráðstöfun hefði verið gerð til þess að tryggja trúverðugan frágang á öðrum eiturefnum frá verksmiðjunni, svo sem blásýrusamböndum í kerbrotum eða því um líku, sem upp á bar á sínum tíma og átti e.t.v. sinn þátt í því að umhverfisverkfræðingi, sem starfaði hjá heilbrrn., var vikið úr starfi.
Þá kom einnig í ljós að fyrrv. iðnrh., Magnús Kjartansson, sem setti reglugerð varðandi meðferð eiturefna og annarra hættulegra efna árið 1973, taldi sig hafa búið þannig um hnútana að álverið þyrfti rekstrarleyfi heilbrigðisyfirvaldanna á sama hátt og aðrar verksmiðjur hérlendis, þrátt fyrir gerðardómsákvæðin, ákvæðin um að um deilumál skuli farið til erlends gerðardóms. Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri heilbrrn. fullyrti við iðnn. d., að verksmiðjan kæmist ekki hjá því að setja upp þessi tæki innan tveggja ára, og taldi að svo dyggilega væri um hnútana búið að ekki yrði betur gert með sérstöku samningsákvæði.
Að þessari og öðrum fullyrðingum fengnum í þá veru að hreinsitækjum verði komið upp og hlýtt til um ströngustu stöðlun sem tíðkast á byggðu bóli erlendis, þá féllst ég á það sjónarmið að um það mál verði ekki frekar fjallað að þessu sinni.
Þá er að víkja að samningi þeim að öðru leyti sem hér er ráðgert að staðfestur verði með lögum.
Það má telja samningi þeim, sem hér er um að ræða, til gildis að með honum er ákvæðum frumsamningsins við Alusuisse, þeim ákvæðum hans sem brjóta hvað grófast í bága við réttlætiskennd alþýðu manna, breytt að formi til þannig að þau geta samrýmst lagaákvæðum. Hér á ég við skattgreiðslu- og framleiðslugjaldsákvæðin. Þegar fjallað var um gamla samninginn hér á hv. Alþ. á sínum tíma var vitnað í þessi ákvæði því til sönnunar að íslendingar mundu hljóta verulegan arð af heimildinni til Alusuisse til atvinnurekstrar hér á landi og því til sönnunar að ekki skipti máli að öllu leyti þótt raforkuverðið til álhringsins væri lágt. Gróðinn átti að fást af skattinum og framleiðslugjaldinu. Reyndin varð náttúrlega sú, eins og að var unnið, svo sem dæmin sanna, að skatturinn, sem fyrirtækið átti að greiða okkur, varð að inneign fyrirtækisins hjá íslendingum sem gerði betur en að éta upp framleiðslugjaldið, og er nú ekki að furða þótt ónefndur hv. þm. í þessari d., sem einnig á sæti í iðnn., lýsti yfir því að það væri ekki að sökum að spyrja, það þyrfti ekki að fara ítarlega ofan í þetta þegar jafnsnjallir menn hefðu lagt í gerð þessa samnings og þessa frv. allmikla vinnu, eins og þeir segðu sjálfir frá.
Að öðru leyti en því sem lýtur að formbreytingum tel ég þennan fyrirhugaða samning fráleitan, enda er hann, eins og fyrr segir, gerður af sömu mönnum og fyrri samninginn gerðu, að vísu nokkur tími liðinn, en viskan greinilega óbreytt. Í áliti minni hl. Iðnn. leyfi ég mér að kalla viðbótarsamning þann, sem hér um ræðir, ítrekun á fyrri mistökum. Hjá því varð náttúrlega ekki komist að þessi viðbótarsamningur yrði afleiðing af fyrri mistökum. Ætlunin var að hann yrði til leiðréttingar á þeim mistökum, en ekki til ítrekunar, og ef það mark næðist ekki að leiðrétta mistök þessi, þá yrði slíkur samningur sem þessi alls ekki gerður. Í þessum samningi felst ekki nein marktæk leiðrétting á þeim hróplegu mistökum sem skjalfest voru í frumsamningnum við Alusuisse, heldur er hann raunar staðfesting á þessum mistökum og ítrekun á þeim, því að tækifæri sem bauðst til þess að knýja fram breytingar á frumsamningnum í valdi þeirra 20 mw. af raforku sem hinn erlendi auðhringur sóttist eftir.
Ég ætla að reyna að stilla mig um það að eyða mjög löngum tíma í það að rekja hér afrekaskrá sérfræðinganna okkar, verkfræðinganna og hagfræðinganna, sem hafa leitt okkur þó þennan spöl áleiðis sem við erum komnir út í orkufrekan iðnað. Það er ekki skemmtisaga, heldur dálítið sorgleg saga — kannski á hæsta lagi grátbrosleg saga, eins og af skipi sem alltaf er að fjara uppi, en auðgast aldrei að farast almennilega og setur því marga menn á höfuðið. Hitt má vera íhugunarefni fyrir okkur, að við skulum enn lúta í þessu efni forustu sömu manna, sem gerðu upprunalega samninginn við svissneska álhringinn, þar sem við afsöluðum okkur meira en helmingnum af raforku landsins fram til ár síns 1997 fyrir verð sem samsvarar röskum 50 aurum á kwst., en landsmenn þurfa sjálfir að borga margfalt það verð fyrir sömu gæði, og sýnt má heita að enn eigi þessi viðskipti eftir að verða okkur fyrir tímans rás miklu óhagstæðari áður en lýkur samningstímanum.
Svo að við drepum þó aðeins niður fæti í áttunda hverju spari þessara manna á framfarabrautinni síðan, þá gerðu þeir það næst að koma upp kísilgúrverksmiðju í Mývatnssveit — fyrirtæki sem hefur valdið okkur ótrúlega miklu tjóni á skömmum tíma. Þeir hafa samið merkilegar frumáætlanir um stórkostleg erlend iðjuver önnur. Og síðast, en ekki síst, þá hafa þessir framsýnu umbótamenn reist sér óbrotgjarnan minnisvarða — eða við ættum kannske heldur að segja: grafið sér ógleymanlega minnisgröf á Grundartanga á samstarfi við Union Carbide. Í þeirri gröf hafði maður raunar vonast til þess að ljúka mundi umsvifum þessara afla í svipinn. En hér hafa menn þó, þessir sömu aðilar, lagt fram frumdrög að nýjum samningi við Alusuisse og að því er mér skilst samíð þetta frv., sem hér liggur fyrir þessari hv. d. til umfjöllunar, eftir að hv. Nd. hefur aukið alin við skömm sína með því að samþ. það óbreytt þrátt fyrir augljósa meingalla.
Ég vík sennilega aftur að þrálátri tilhneigingu þessara aðila til þess að taka rangar ákvarðanir. Mig langar ekki til þess að nudda þeim upp úr einu né neinu í þessu sambandi og læt nægja í bili þá afsökun, þá auðskiljanlegu afsökun að þegar menn með sérstaka hæfileika hafa álpast með annan fótinn í öfugan skólinn, þá er hinum náttúrlega hætt.
Við umr. um lagafrv. þetta í Nd. var sýnt fram á það skilmerkilega af hálfu þm. Alþb., sem þar tóku til máls, að samningur sá, sem hér er fjallað um, væri alls ekki æskilegur, þessi viðbótarsamningur gerði viðskipti okkar við Alusuisse í heild hvergi nærri hagkvæm, með því að semja nú við útlendinga um sölu á 24 mw. orku til viðbótar og heimila þeim á þann hátt að auka starfsemi sina hérlendis um 10% værum við í raun réttri aðeins að auka umfang óhagstæðra viðskipta.
Við athugun á málinu kemur í ljós að jafnvel þótt litið væri á samninginn sem sjálfstæðan samning, óháðan gamla samningnum, þá væri hann einnig sem slíkur óhagstæður. Fyrirhugað orkuverð, sem hér er fjallað um,, verðið á þessum 20 mw., er nefnilega undir kostnaðarverði. Fram á það hefur verið sýnt með ljósum rökum að þar sem rætt er um afgangsorku til álversins í þessum viðbótarsamningi, þar eru skilyrðin fyrir afhendingunni svo ströng af hálfu álversins að þau jafngilda fyllilega þeim skilyrðum sem íslendingar sæta um forgangsorku. Við höfum til samanburðar samninginn fræga sem hv. Alþ. samþ. fyrir u.þ.b. ári um raforkusölu til málmblendifélagsins, og samanburðurinn leiðir í ljós að skilyrðin, sem Landsvirkjun er ætlað að uppfylla varðandi sölu afgangsorku til álversins í Straumsvík með þessum nýja samningi, eru miklu strangari en þau sem um var samið við málmblendifélagið. Hér er raunverulega um að ræða sölu á 20 mw. af forgangsorku til Álfélagsins á verði, sem nemur 5–5.7 mill fyrir kwst. eða um 97 aurum, og það verð bundið með sáralitlum hækkunarmöguleikum og óvissum hækkunarmöguleikum allt fram til ársins 1997, eins og í gamla samningnum. Norðmenn hafa ákveðið verðhækkun á raforku hjá sér ein 11 mill eða 1.80 kr. fyrir kwst. til nýrra fyrirtækja á þessu ári og kveðið á um árlega endurskoðun þess verðs. Og svo að aðeins sé minnt á það, þótti okkur fyrir skemmstu norska raforkuverðið allmerkilegt til viðmiðunar. Þá var um það rætt í sambandi við málmblendifrv. og raunar tekið fram í þeim samningi að norskt raforkuverð skyldi notað til viðmiðunar.
Hér er sem sagt gerðir nýr samningur um raforkusölu til stóriðju þótt það sé kallaður viðbótarsamningur. Hér er gerður samningur um sölu á 20 mw. af raforku til erlends auðhrings fyrir verð sem nemur um það bil helmingi þess verðs, sem talið er eðlilegt, og fyrir verð, sem er samanlagt langt undir kostnaðarverði. Í norska verðinu, sem ég vitnaði til, 1.80 kr. fyrir kwst., með álögðum endurskoðunarákvæðum er miðað við hækkandi virkjunarkostnað.
Flytjendur þess frv., sem hér liggur fyrir, virðast ekki einu sinni taka mið af framleiðslukostnaði rafmagnsins eins og hann er núna, ekki af virkjunarkostnaði, hvað þá af fyrirsjáanlega síhækkandi virkjunarkostnaði. Það, sem þeir taka mið af er þeir réttlæta frv., er beinlínis hinn varasami samningur sem upprunalega var gerður við Alusuisse þar sem við vorum skuldbundnir með erlendum gerðardómsákvæðum til að selja auðhringnum meira en helminginn af allri raforkuframleiðslu Landsvirkjunar fyrir verð sem nam þá, fyrir 6 árum, ekki framleiðslukostnaðarverði og fyrir verð sem nú nemur ekki 1/3 af framleiðslukostnaðarverði ef miðað er við nýjar virkjanir allt fram til ársins 1997. Og svo að enn sé vitnað til þess máls, sem við fjölluðum um fyrir ári í sambandi við orkusölu, málmblendimálsins, þá getur að finna á 50. bls. þess frv. grg. verkfræðinga Landsvirkjunar um framleiðslukostnað á raforku. Þar segir, og gáið að því þetta er grg. þeirra samin fyrir hálfu öðru ári:
„Verkfræðideild hefur reiknað út hið svokallaða kostnaðarverð á raforku frá Sigöldu og Hrauneyjafossi. Sé reiknað með 40 ára annuiteti og 9.1% reiknivöxtum og jafnframt gert ráð fyrir því að rekstrarkostnaðurinn sé 0.5% og á byggingartíma 12% af stofukostnaði kemur út verðið 9.4 mill fyrir kwst. af forgangsorkunni.“
Skv. upplýsingum, sem fram komu í ræðu hæstv. iðnrh. í Sþ. í dag, er framleiðslukostnaðurinn nú áætlaður 1.50–1.80 kr. Eftir allgóðum heimildum hef ég þær upplýsingar að framleiðslukostnaðurinn við Hrauneyjafoss og Sigöldu muni fara talsvert yfir 1.80 kr.
Síðan þessir verðútreikningar voru gerðir hafa sem sagt orðið mjög miklar verðbreytingar og lánakjör stórversnað og vextir hækkað, lánstími verið styttur og allar vélar og hráefni stórhækkað í verði. Og það þarf raunar ekki vitnanna við um að norska verðið, sem ég tilgreindi áðan, er undir raunverulegu kostnaðarverði raforku hér á landi.
Svo að ég víki ítarlegar að norsku verðhækkuninni, þá var meðalverð raforku til stóriðnaðar í Noregi um það bil 70 aurar á kwst árið sem leið, þegar meðalverðið til stóriðju á Íslandi var um 50 aura. Meðalverðið í Noregi var um 70 aura á kwst. árið sem leið. Þar er um að ræða gamla samninga með hækkunarákvæðum sem miðast við það að flest af hinum stóru raforkuverum Noregs eru byggð fyrir áratugum og margsinnis búin að borga sig upp. Nú um áramótin hækkar svo verðið á norsku raforkunni, svo sem áður var frá sagt, allar götur upp í 1.80 kr. fyrir kwst. með ákvæðum um árlega endurskoðun sem eru í stórum dráttum á þá lund, að raforkuverðið skuli þó ekki hækka um meira en 5% á ári, en sýni vísitala raforkuverðs meira en samanlagða 15% hækkun á þriggja ára tímabili samfelldu, þá skuli verðlagsgrundvöllurinn tekinn til endurskoðunar.
Í skýringum með þessari verðhækkunarákvörðun norðmanna er skýrt tekið fram að framleiðslukostnaður sé nú hærri en nemur þessu verði sem ákveðið er, þ.e.a.s. 1.80 kr., vegna mikils kostnaðar við smíði nýrra orkuvera, en æskilegt þyki í bili að verðjafna orku norsku ríkisvirkjananna þannig að mismunur á orkuverði til nýrra og gamalla iðjuvera verði ekki jafnmikill og ella hefði orðið. Gömlu raforkuverin eru látin borga niður verð nýrra orkuvera til þess að halda verðinu fyrst um sinn niðri í 1.80 kr.
Í sjónvarpsviðtali fyrr í vikunni fjallaði Jóhannes Nordal seðlabankastjóri, formaður Landsvirkjunarstjórnar, um rekstrarhorfur raforkuveranna hér á landi og sagði berum orðum að þau væru nú rekin með tapi. Hann sagði að ekki hefði verið við það miðað við verðlagningu á raforku að raforkuverin gætu safnað sér í stofnsjóði til þess að byggja ný orkuver. Hann sagði raunar berum orðum að til mundi þurfa að koma mjög mikil hækkun á raforkuverði til þess að standa undir rekstrarkostnaði og afborgunum af lánum. Ég fæ nú ekki séð af frv. því, sem hér liggur fyrir, eða viðbótarsamningnum, að Swiss Aluminium eða dótturfyrirtæki þess hér á landi, ÍSAL, sé ætlað að bera verulegan hluta af þeirri verðhækkun. Raunar fæ ég ekki betur séð en að Swiss Aluminium sé ætlað að halda framvegis rétti sínum til þess að fá hér raforku undir framleiðslukostnaðarverði og að íslenskum notendum sé ætlað að halda áfram að borga niður raforku fyrir Alusuisse. Að vísu virðist mér að íslenskir raforkukaupendur þurfi að borga minna með raforkunni til þessarar 10% aukningar, sem hér á að heimila við álverið, heldur en með rafmagninu til upprunalegu verksmiðjunnar, en þar má líka á milli vera. Ég veit ekki betur en reykvíkingar borgi nú kr. 8.11 fyrir kwst., en Alusuisse borgar 97 aura fyrir kwst. skv. nýja samningnum, þ.e.a.s. fyrir 20 mw. Fyrir 40 mw., sem Alusuisse kaupir til hins eldra hluta verksmiðjunnar, borgar fyrirtækið ekki nema röska 50 aura. Íslendingar hafa frá upphafi borgað með raforkuverðinu til Alusuisse, og þeir gera það með þessum nýja samningi sem hér er fjallað um.
Reyndar heyrði ég það ekki á máli Jóhannesar Nordals að honum kæmi það svo mjög á óvart að raforkuverin hefðu ekki getað lagt í stofnsjóði til þess að standa undir nýjum virkjunum. Ég heyrði það á engu hans orði. Það eru líka liðin býsna mörg ár síðan fjallað var af mestri elju hér á Alþ. um gamla álbræðslusamninginn, víst ein 10 ár, en þá var samningur vissulegu réttlættur með því að ágóðinn af raforkusölu til Alusuisse yrði svo mikill að hann mundi standa undir virkjunum framtíðarinnar. Í yfirliti, sem fylgdi álbræðslufrv. 1966, þar sem fjallað er um þjóðhagsleg áhrif álbræðslunnar og áhrif hennar á þróun raforkumálanna segir m.a. á bls. 96, með leyfi forseta.
„Sé litið á rekstrarafkomu Landsvirkjunar fram til ársins 1985, eins og hún mundi verða skv. hvorri leiðinni fyrir sig, kemur í ljós að samanlagður tekjuafgangur fram til ársins 1985 mundi án vaxta verða 700 millj. kr. meiri ef gerður yrði rammasamningur við álbræðsluna“ –rammasamningurinn sem gerður var. „Er þá þegar búið að reikna inn í dæmið allan kostnað af byggingu nýs orkuvers er kæmi í stað hluta Búrfellsvirkjunar er framleiddi raforku fyrir álbræðsluna“ — þ.e.a.s. Sigöldu. „Sú mikla lækkun framleiðslukostnaðar raforku fyrir innlendan markað, sem samningurinn við álbræðsluna gerir mögulega, gæti að sjálfsögðu komið fram annað hvort í lægra raforkuverði eða örari uppbyggingu raforkukerfisins, eftir því hvað þætti þjóðhagslega hagkvæmara.“
Sem sagt, upp á það var boðið — og hv. þm. er ákaflega auðvelt að fletta þessu upp sjálfum — upp á það var boðið af þeim snillingum, sem þessa útreikninga gerðu, að velja á milli þess hvort við vildum nota hagnaðinn af samningnum við Alusuisse til þess að byggja ný orkuver eða lækka verð raforku — til þess að virkja við Sigöldu. Einhvern veginn hef ég nú staðfestan grun um það — ég veit ekki hverju hv. þm. trúa — að hagnaðurinn af samningunum við Alusuisse nægi ekki beinlínis til þess að borga Sigölduvirkjun. Þetta stendur sem sagt á bls. 96 í yfirliti því er fylgdi frv. 1966 varðandi efnahagsleg áhrif af samningnum við Alusuisse og áhrif samningsins á þróun raforkumála. Og nú er tímabært að spyrja, fyrst það kom berlega fram hjá stjórnarformanni Landsvirkjunar í fyrri viku að ekki hefði verið lagt til hliðar fé af hinum hagsælu viðskiptum við Alusuisse til þess að halda áfram virkjun fallvatnanna okkar: Hvað hefur þá orðið af þessum gróða? Hvar hefur hann komið fram í lækkun raforkuverðs til íslenskra neytenda? Hafi raforkusalan til Alusuisse borgað niður verðið til innlendra aðila, þá hljóta einhverjir og það heldur betur stórir kaupendur að hafa fengið raforku við lægra verði en rúma 50 aura fyrir kwst.
Við vitum það býsna vel að þessu var öfugt farið, hefur verið öfugt farið og verður það. Íslendingar borguðu niður orkuna til Alusuisse öll þessi ár með margföldu verði og eru skuldbundnir til að gera það áfram fram til ársins 1977. Og þegar gera á viðbótarsamning fram til ársins 1997 um sölu á 20 mw. þrátt fyrir ósköpin, þá eiga íslendingar enn að greiða með samningnum — eða eiga einhverjir kost á því að fá keypt rafmagn hjá Landsvirkjun, einhverjir íslendingar, 20 mw. á verði sem svarar 97 aurum á kwst? Hvers konar prósentureikningsmenn skyldu nú þeir vera sem mynda meiri hl. í hv. Nd., sem samþ. þetta frv.? Og það kemur svo í ljós innan tíðar hvort það eru sams konar snillingar sem mynda meiri hl. í þessari hv. deild.
Vitaskuld er samningsfrv., sem hér liggur fyrir, gert í skugga ráðleysis — skugga ráðleysis þeirrar stjórnar sem getur ekki fundið verkefni fyrir landsmenn sjálfa til þess að nota orku landsins. Þetta frv. er samið náttúrlega í skugga fyrri afglapa — afglapanna sem framin voru í fyrri samningum við Alusuisse og afglapanna sem framin voru á Alþ. í fyrra þegar þessir sömu hv. þm. flestir hverjir, þeir sömu að amtmanninum undanþegnum, létu blekkja sig til þess að samþ. frv. um samningana við málmblendifélagið þar sem ákveðið var að verja þriðjungi orkunnar frá Sigöldu til þess að bræða upp í Hvalfirði útlenda málmspæni og flytja þá aftur úr landi, - þessir þm. sem höfnuðu hugmyndinni um að nota heldur aflið frá Sigöldu til þess að leysa af hólmi erlenda olíu, rándýra og síhækkandi í verði, til þess að hita upp húsin úti á landsbyggðinni þar sem ekki var kostur á heitu vatni, — mennirnir sem lokuðu augunum fyrir því að við gætum notað það lánstraust, sem átti að verja til verksmiðjunnar uppí á Grundartanga, og það fé, sem til hennar átti að verja, til þess að koma upp sæmilegu dreifikerfi til þess að við gætum dreift orkunni út um landið, — og mennirnir sem voru dauðir, dumbir fyrir öllum hugmyndum um það að íslendingar gætu af eigin rammleik framleitt úr eigin hráefnum verðmæti til þess að flytja úr landi og koma þessari orku í verð. Þetta samningsuppkast var gert að tilhlutan þessara sömu manna sem ekki virðast sjá nokkra leið til þess að við íslendingar getum sjálfir nytjað orku landsins til þess að bæta lífskjör þjóðarinnar og auka framleiðslu hennar og bæta landið.
Ég ýjaði í þá átt áðan að sumir hverjir hefðu verið að gefa okkur vonir um að iðjan stóra uppi á Grundartanga mætti þó hýsa endanlega og í eitt skipti fyrir öll snilldarbrögð og áform þeirra manna sem hafa sýslað um stóriðjumálin hér á landi fram að þessu, sem sagt að hin mikla og háþróaða athafnaþrá þeirra mætti komast þarna undir eina mikla græna torfu til frambúðar, ekki síst með tilliti til þess sem þeir áorkuðu í samningum sínum fyrr meir við Alusuisse. En það hefur ekki verið mokað ofan í þessa gryfju enn. Hér liggur sem sagt fyrir okkur enn eitt plagg útbúið af þessum sömu aðilum, og ég fæ ekki betur séð en hv. Alþ. ætli enn þrátt fyrir allt, sem við blasir á þessum skjölum, að lúta leiðsögn þessara manna, jafnvel þeir hv. þm. í þessari d. sem gjarnan hefja mál sitt með svofelldum orðum: Ég á nú að heita bisnessmaður og hafa vit á viðskiptum. Jafnvel þeir menn, sem gjarnan hefja mál sitt með þessum orðum. virðast ætla í góðri trú, þrálátri, nánast ódrepandi trú á forsjón sérfræðinganna að láta hafa sig til þess að samþ. þetta frv.
Við skulum staldra aðeins við og bera saman þennan samning um heildsöluverð á raforku frá Landsvirkjun til ÍSALs og samsvarandi samning við Rafmagnsveitur Reykjavíkur sem annast síðan dreifingu, þ.e.a.s. smásölu, til einstakra viðskiptavina, en Rafmagnsveita Reykjavíkur er næststærsti viðskiptavinur Landsvirkjunar á eftir ÍSAL. Við skulum sem sagt íhuga samninginn við Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Þá kemur raunar fyrst í ljós að Rafmagnsveitu Reykjavíkur hefur aldrei verið sýndur sá sómi að gera við hana neins konar sölusamning. Rafmagnsveita Reykjavíkur kaupir orkuna samkv. gjaldskrá Landsvirkjunar og gjaldskrá sem Landsvirkjun hefur náttúrlega á sínu valdi að breyta eftir því sem henni þóknast og þá m.a. eftir því hversu mikla peninga hún þarf að fá frá íslenskum notendum til þess að standa undir tapi af viðskiptum við ÍSAI. Og það er þess háttar breyting sem stjórnarformaður Landsvirkjunar, Jóhannes Nordal, hefur boðað opinberlega, þess háttar hækkun sem hann hefur boðað opinberlega nú fyrir skemmstu.
Í viðtali við Gísla Jónsson prófessor, sem birtist í einu Reykjavíkurblaðanna í dag um raforkuverðið, segir hann frá því að athugun, sem hann hefur gert á viðskiptum Landsvirkjunar við Alusuisse annars vegar og við almenna íslenska raforkukaupendur hins vegar, þ.e.a.s. rafmagnsveiturnar, hafi leitt í ljós að Alusuisse borgi um það bil 13% af þeirri upphæð sem fyrirtækinu beri samkv. athugun á reikningum ef ekki ætti að vera um halla að ræða. Mismuninn borga íslenskir kaupendur. Það vantar 87% upp á að Alusuisse borgi kostnaðarverð fyrir þessa raforku, og verðið, sem rafmagnsveiturnar kaupa orkuna á frá Landsvirkjun, er 40% of hátt.
Þó að ekki sé gerður neinn samningur um kaup á raforku til Rafmagnsveitu Reykjavíkur frá Landsvirkjun, þá eru aftur á móti í gildi reglur um afhendingu orku til Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Við skulum athuga þær reglur lítils háttar vegna þess að Aðalsteinn Guðjohnsen rafmagnsveitustjóri Reykjavíkur staðhæfir að þessar reglur hljóði eingöngu upp á forgangsorku. Reykjavíkurborg kaupir eingöngu forgangsorku frá Landsvirkjun, og í þessum reglum höfum við skilyrðin sem upp þarf að fylla til þess að um forgangsorku geti verið að ræða á orkusölunni til Reykjavíkur. Verðið er þrenns konar fyrir þessa forgangsorku eftir notkunartíma og lægst fyrir 4000 klst. kaup eða lengri. Meðalverðið á árinu sem leið til Rafmagnsveitu Reykjavíkur var um það bil 2.35 kr. fyrir kwst. fyrir forgangsorkuna.
Í skýringum við frv., sem hér er um fjallað, á bls. 34, segir að 60% af þeim 20 mw., sem fyrirhugað sé með samningi þessum að selja ÍSAL, séu umframorka. Ég staðhæfi samkv. þeim söluskilmálum, sem við eyjarskeggjar megum una, að hér sé um að ræða forgangsorku, og vitna enn til rafmagnsveitustjóra Reykjavíkur, Aðalsteins Guðjónsens, sem fullyrðir að öll sú orka, sem Rafmagnsveita Reykjavíkur kaupir af Landsvirkjun, sé forgangsorka. 6. gr. er um afhendingu þessarar forgangsorku. Það er best að ég lesi þann hluta 6. gr. sem um þetta fjallar, en hann er svona, með leyfi forseta: „Verði Landsvirkjun ókleift af atvikum, sem hún fær ekki ráðið við, sbr. 1. málsgr. 4. gr., að afhenda kaupanda umsamið rafmagn, er Landsvirkjun laus undan samningsskyldu sinni til afhendingar rafmagns að svo miklu leyti sem slík atvik valda. Hins vegar skal Landsvirkjun eins fljótt og auðið er gera það sem í hennar valdi stendur og réttmætt getur talist vegna kostnaðar til þess að ráða bót á slíkum atvikum.“ — Hér er um að ræða sem sagt skilmála fyrir afhendingu forgangsorku til Reykjavíkurborgar. — „Sjái Landsvirkjun fyrir að truflanir muni verða á afhendingu rafmagns skal hún eins fljótt og unnt er gera kaupanda aðvart um það. Landsvirkjun hefur rétt til þess að rjúfa um stundarsakir afhendingu rafmagns vegna nauðsynlegrar vinnu við virki hennar. Rofið skal vera eins skammvinnt og frekast er auðið og á þeim tímum sólarhrings að það valdi að dómi Landsvirkjunar hlutaðeigandi notendum rafmagns sem minnstum baga. Landsvirkjun skal, ef kostur er, tilkynna kaupanda fyrirhugað rof með hæfilegum fyrirvara. Landsvirkjun er heimilt að rjúfa afhendingu rafmagns fyrirvaralaust ef lífshætta liggur við eða verulegar skemmdir á eignum. Hrökkvi afl eða orka, sem Landsvirkjun hefur til umráða, ekki til þess að fullnægja almennum rafmagnsþörfum á orkusvæði hennar og samningsbundinni afhendingu rafmagns eða leggja þarf hömlur á vöxt rafmagnsnotkunar, getur stjórn Landsvirkjunar gert ráðstafanir til almennrar takmörkunar á afhendingu rafmagns til kaupenda Landsvirkjunar. Stjórninni er heimilt að takmarka afhendingu rafmagns eða stöðva hana með öllu til hluta veitusvæðisins á mesta álagstímanum eða gera aðrar hliðstæðar ráðstafanir, en hún skal ávallt gæta þess að slíkar takmarkanir komi sem jafnast niður á öllum kaupendum og notendum og valdi þeim sem minnstum baga. Ef ráðstafanir, sem Landsvirkjun er unnt að gera og gera þarf til almennrar takmörkunar á afhendingu rafmagns, yrðu einstökum kaupendum til óhóflegs baga er stjórninni heimilt að undanskilja þá, eftir því sem unnt er. En hún getur þá fyrirskipað að þeir geri sjálfir ráðstafanir til takmörkunar á rafmagnsnotkun sinni til jafns við aðra, að viðlagðri fullri stöðvun á afhendingu rafmagns frá Landsvirkjun um langan eða skamman tíma eftir því sem við á og þurfa þykir. Ef ráðstafanir þær, sem Landsvirkjun getur beitt og beita þyrfti til nauðsynlegra takmarkana, yrðu almennt til óhóflegs baga ber stjórn Landsvirkjunar í stað slíkra ráðstafana eða jafnframt þeim að leita til ráðh. um fyrirskipun almennrar skömmtunar við sölu rafmagns til notenda á orkusvæði Landsvirkjunar.“
Hér er um að ræða skilyrðin fyrir afhendingu forgangsorku til Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Í samningi þeim, sem hér er um að ræða við ÍSAL, er Landsvirkjun skuldbundin til að afhenda þessi 20 mw. með nákvæmlega sams konar skilyrðum, þ.e.a.s. 60% sem hér eru talin afgangsorka, — með nákvæmlega sams konar skilyrðum og forgangsorka er afhent til Rafmagnsveitu Reykjavíkur, þ.e.a.s. nema til komi vatnsskortur við orkuverin eða truflanir á veitukerfinu, auk óviðráðanlegra afla. Hér er um að ræða forgangsorku samkv. þeim skilmálum sem íslendingar mega una. Afsökun fyrir hinu fáránlega lága orkuverði til ÍSALs með því að kalla orkuna afgangsorku nær þess vegna engri átt. Hér er það kallað afgangsorka sem afgreitt er til ÍSALs, en heitir forgangsorka þegar það er selt íslendingum. Hér heitir það afgangsorka sem selt er til Alusuisse á 97 aura kwst., en heitir forgangsorka þegar selt er til Rafmagnsveitu Reykjavíkur á 2.35 kr. kwst. Og enn spyr ég og beini þá fyrst og fremst máli mínu til hv. þm. Alberts Guðmundssonar sem gjarnan með réttu hefur mál sitt með svofelldum orðum: Ég á að heita sérfræðingur í viðskiptum — þykja honum þetta góð viðskipti, þykir honum raunverulega eðlilegt, að Swiss Aluminium sé seld vara á 97 aura einingin samtímis því sem innkaupastofnun Reykjavíkurborgar á raforku er seld þessi sama eining á 2.35 kr.?
Það, sem kallað er aftur á móti forgangsorka til Alusuisse, — það sem þar er kallað forgangsorka nýtur allt annars konar trygginga. Í samningum við Alusuisse er afhending þeirrar orku raunverulega tryggð með því ákvæði að orkan skuli afhent, hvort sem hún er til í kerfi Landsvirkjunar eða ekki, og framleidd þá í dísilstöð á kostnað Landsvirkjunar.
Hér er um að ræða í þessum samningi sölu á 60% þessara 20 mw. með sömu skilyrðum og við lútum um forgangsorku og forgangsorkuverð, en afgangurinn, 40%, sem kallast forgangsorka í þessum viðbótarsamningi, er tryggður með sömu skilmálum og forgangsorkan í gamla samningnum, þ.e.a.s. að hún skuli afhent hvort sem hún er til í kerfinu eða ekki og þá með því að keyra dísilstöðvar. Hér er ekki aðeins um það að ræða að við séum að auka við mjög svo óhagstæðan orkusölusamning við svissneska auðhringinn án þess að fá á honum neinar verulegar breytingar til úrbóta, heldur er um hitt að ræða í þessum samningi, verði hann samþ. hér á hv. Alþ., að við aukum umfang óhagstæðra viðskipta við svissneska álhringinn, aukum tap okkar af viðskiptum við hann og ítrekum staðfestingu á þessum samningi sem bindur okkur fram til ársins 1997.
Í upphafi máls míns komst ég svo að orði, að telja mætti e.t.v. þessum viðbótarsamningi það til gildis, að breytingar á skattgreiðslu- og framleiðslugjaldákvæðunum miðuðu í þá átt að fella ákvæði fyrra samnings inn í þess háttar ramma sem sveigjanleg réttlætiskennd hefur sætt sig við fyrir þrýsting margra ára rangsleitni. Hér er ekki verið að leiðrétta rangsleitnina sem felst í því að við látum þessum erlenda auðhring í té orku og vinnuafl og aðra framleiðsluaðstöðu langt undir sanngirnisverði, heldur er aðeins verið að færa það í lög að þetta megi gera, þetta skuli gert.
Ég andmæli því að þessi samningur verði gerður. Ég held því fram að frekari viðskipti við ÍSAL komi ekki til greina eins og staðan er nú í skjóli fyrra samnings á jafnhrapalegan hátt og raun ber vitni. Við höfum nóg að gera við þau 20 mw. raforku sem hér er um fjallað. Ég vil aðeins vitna í ummæli forustumanna íslensks iðnaðar á þá lund að fengju þeir raforku með hliðstæðum kjörum og útlendingar hér á landi þá yrði þeim ekki skotaskuld úr því að gera starfsemi sína að hálaunaiðnaði í stað þess að nú væru þeir neyddir til þess að gjalda fólki sínu óhæfilega lágt kaup, og þeim yrði þá ekki heldur skotaskuld úr því afl greiða skatta og opinber gjöld. Fyrir liggja staðhæfingar frá forustumönnum íslensks iðnaðar að ef þeir nytu sams konar kjara og erlendum stóriðjufyrirtækjum er ætluð á Íslandi um kaup á raforku, þá yrði íslenskum iðjuverum ekki skotaskuld úr því að hefja útflutning á íslenskum iðnaðarvörum til annarra landa. Svo kemur náttúrlega enn eitt sem skiptir ekki litlu máli. Rafmagnsveita Reykjavíkur kaupir sem sagt raforku á heildsöluverðinu 2.35 kr. kwst., samtímis því sem ÍSAL kaupir hana á röska 50 aura að meginhluta til, en fyrrgreind 20 mw. á meðalverðinu 97 aurum.
Ég fæ ekki betur séð en munað gæti allverulega um það í rekstrarkostnaði heimilanna á Landsvirkjunarsvæðinu öllu, að Reykjavík meðtalinni, ef Rafmagnsveita Reykjavíkur fengi orkuna selda á sama verði og ÍSAL fær hana. Oft var þörf, en nú er óumdeilanleg nauðsyn að neyta til þess allra ráða að lækka framfærslukostnað í landinu. Og ég fæ ekki séð með hvaða hætti jafnvel þeir, sem sjá mjög góðan gest í ÍSAL hér á landi og miklu betri viðskiptavin en ég þykist sjá í því fyrirtæki, — ég fæ ekki skilið að þeir geti andmælt því, að íslensku rafmagnsveiturnar, þessar innkaupastofnanir þegnanna á raforku til heimilisnota, eigi rétt á því að njóta a.m.k. jafngóðra viðskiptakjara og þessir erlendu auðhringir. Ég vitna enn í ummæli Gísla Jónssonar prófessors sem staðhæfir í blaðaviðtali í dag að ÍSAL greiði 87% of lítið fyrir það rafmagn sem fyrirtækið fær hjá Landsvirkjun, en íslensku rafmagnsveiturnar, innkaupafyrirtæki borgaranna á raforku, borgi 40% of mikið.
Ég kom lítillega inn á það í upphafi hversu ÍSAL hefur þráast við, allar götur frá því að fyrirtækið byrjaði að vinna hérna, að setja hreinsitæki á verksmiðjuna sams konar þeim sem tíðkast hvarvetna á byggðu bóli þar sem komið hefur verið upp álbrennslum síðustu 30 árin. Ég hef enn ekki vikið að hagsældinni, hvernig nánustu grönnum þessa fyrirtækis, mönnum sem helst líða fyrir mengunina sem frá fyrirtækinu stafar, hefur vegnað í öðrum viðskiptum við það. Til sanns vegar má færa að tilkoma álversins hafi kippt stoðunum undan atvinnuháttum hafnfirðinga og menningarlegri afkomu á ýmsan handa máta. Ég vil vekja athygli á því í beinum tengslum við það, sem áður hefur verið sagt um sérréttindi þessa fyrirtækis hér á landi, að fyrir skemmstu voru gerðir kjarasamningar, nýir kjarasamningar, við ÍSAL, þetta fyrirtæki sem fær raforku frá Landsvirkjun fyrir verð sem nær ekki hálfu framleiðslukostnaðarverði. Þetta fyrirtæki gerði nýlega nýja kjarasamninga við íslendinga. Þeir hafa ekki fengist birtir, en hitt hefur verið staðhæft, að þar hafi verið samið um miklu betri kjör við starfsfólk álversins heldur en þau sem fólk í samsvarandi starfsgreinum utan álversins fékk í sínum nýafstöðnu samningum eftir langt verkfall. Það vita allir, sem vita vilja að ein af meginástæðunum fyrir því, hvernig ástatt er nú um útgerð í Hafnarfirði og aðra iðju þar, er sú að þessu ríki í ríkinu, ÍSAL, suður við Straum er gert kleift að kaupa starfsfólk burt frá útgerðinni, burt frá öðrum iðngreinum.
Hv. þm. Steingrímur Hermannsson, frsm. meiri hl. iðnn., sagði í upphafi framsögu sinnar með frv. þessu að margir sérfræðingar hefðu lagt mikla vinnu og erfiði í samningu; þessa frv. Ég vil í lok míns máls vekja athygli á því að það er ekki í fyrsta sinn sem þessir sömu sérfræðingar komast með miklum erfiðismunum að rangri niðurstöðu.