07.04.1976
Neðri deild: 88. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3129 í B-deild Alþingistíðinda. (2574)
108. mál, umferðarlög
Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Frv. það til ættleiðingarlaga, sem hér er lagt fyrir þessa hv. d., er samið af svokallaðri sifjalaganefnd sem unnið hefur undanfarið að endurskoðun á löggjöfinni um réttarstöðu barna og hefur verið unnið að frv. þessu í því samhengi. En frv. til almennra barnalaga mun verða lagt fyrir þingið nú alveg á næstunni. Það kemur fram í grg. með frv. hverjir það eru sem verið hafa í sifjalaganefnd.
Núgildandi ættleiðingarlög, sem sett voru árið 1953, eru sniðin eftir ættleiðingarlögum annarra Norðurlanda, sem sett voru á árunum 1920–1930. Hafði sú löggjöf lítið sem ekkert breyst er hin íslensku lög voru sett. Hins vegar voru á næstu árum þar á eftir gerðar ýmsar breytingar á hinum norrænu lögum og er í þessu frv. m.a. höfð hliðsjón af þeim breytingum. Jafnframt hefur í ýmsum efnum verið leitast við að gera ákvæði laganna skýrari og gera reglur um undirbúning og framkvæmd ættleiðingar traustari og markvissari, Í heild verður hins vegar ekki sagt að breytingar þær, sem frv. er ætlað að gera á núgildandi lögum séu veigamiklar eða líklegar til þess að valda ágreiningi. Ég vil því fyrst og fremst vísa til hinnar ítarlegu grg. er frv. fylgir. En ég get aðeins rifjað upp í örstuttu máli hverjar helstu efnisbreytingar það eru sem í frv. þessu felast.
Í fyrsta lagi er lagt til að ættleiðingarleyfi verði gefið út af dómsmrh.
Í öðru lagi er það svo að samkvæmt frv. er ekki þörf á samþykki foreldra til ættleiðingar ef unglingur er 18 ára eða eldri, sá sem ættleiða á, í stað þess að í gildandi lögum er miðað við 20 ára aldur.
Í þriðja lagi er það, að samkvæmt frv. er því haldið að áskilin er umsögn barnaverndarnefndar, en fellt niður að umsögn sóknarprests sé lögmælt.
Í fjórða lagi að lögræðissviptan mann er unnt að ættleiða samkvæmt frv. þótt eigi komi til samþykki lögráðamanns, en leita ber umsagnar hans.
Í fimmta lagi eru svo höfuðbreytingarnar sem varða samþykki til ættleiðingar: 1) Áskilið er að samþykki sé skriflegt, og má mæla fyrir um að það sé ritað á eyðublað sem rn. leggur til. 2) Samþykki á að staðfesta í viðurvist starfsmanns rn. eða annars opinbers starfsmanns sem löggiltur er í þessu skyni. 3) Samþykkjandi skal fá fræðslu um réttaráhrif ættleiðingar. 4) Samþykki án greiningar á væntanlegum kjörforeldrum er yfirleitt ekki gilt nema barnaverndarnefnd ráðstafi barni til ættleiðingar eða hafi milligöngu um það. 5) Samþykki er ekki gilt nema það sé staðfest hið fyrsta 3 mánuðum eftir fæðingu barns. 6) Ákvæði eru í frv. um afturköllun samþykkis, og verður ættleiðingarleyfi þá yfirleitt ekki veitt, en undantekning er þó frá því, einkum ef barn hefur verið lengi í fóstri hjá ættleiðingarbeiðanda.
Þetta, sem ég rakti nú síðast, varðandi breytingar sem eru gerðar varðandi samþykki til ættleiðingar. En svo er það, ef haldið er áfram þessari upptalningu á þeim meginbreytingum sem felast í þessu frv., að veitt er heimild til að ættleiða barn þótt samþykkjendur fallist ekki á það ef barnaverndarráð samþykkir þá skipan, en þar er einkum átt við hin svonefndu gleymdu börn á stofnunum. Fyrirmyndin er nýju norrænu ættleiðingarlögin og ensku ættleiðingarlögin. Réttaröryggisákvæði um dómsmál tengjast þessu ákvæði sem gert er ráð fyrir að sjaldan yrði beitt. Og trúlega er það svo, að þetta er ekki mjög raunhæft miðað við íslenskar aðstæður.
Réttaráhrifin eru hin sömu og nú í flestum greinum. Þó er t.d. mælt fyrir um nafnbreytingu á kenningarnafni nema fyrirvari sé gerður um annað í ættleiðingarbeiðni.
Um niðurfellingu ættleiðingar er lagt til að afnumið sé það ákvæði að unnt sé að fella niður ættleiðingu vegna óhæfilegrar framkomu kjörbarns í garð kjörforeldra. Veitt er svigrúm til að fella niður ættleiðingu ólögráða barns, ef slíkt þykir best henta þörfum barns. Hægt er og samkvæmt frv. að fella niður ættleiðingu ef kjörforeldrar eru látnir.
Loks eru svo í frv. rækileg ákvæði um réttaráhrif niðurfellingar ættleiðingar að því er varðar tengslin milli kjörbarns og kjörforeldra.
Ég hef, herra forseti, aðeins drepið á nokkrar höfuðbreytingar sem felast í þessu frv. frá núgildandi löggjöf. Ég fer ekki nánar út í frv., en leyfi mér, eins og ég sagði áðan, að vísa til hinnar ítarlegu grg., sem frv. fylgir, og óska eftir því að frv. verði að umr. þessari lokinni vísað til 2. umr. og hv. allshn.