08.04.1976
Efri deild: 88. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3131 í B-deild Alþingistíðinda. (2578)
233. mál, norræn vitnaskylda
Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti.
Frv. það um norræna vitnaskyldu, sem hér er lagt fyrir hv. Ed., er byggt á samþykkt Norðurlandaráðs frá 1968 um að beina því til ríkisstjórna Norðurlandanna að beita sér fyrir því að sett verði löggjöf í löndunum sem komi á gagnkvæmri skyldu manna í ríkjunum öllum til þess að mæta sem vitni fyrir dómstólum á öðrum Norðurlöndum. lög um þetta efni hafa verið sett í Danmörku og Svíþjóð, en lagafrv. hafa verið lögð fyrir þjóðþingin í Finnlandi og Noregi. Þess má geta að almenn samstaða var um þetta mál í Norðurlandaráði.
Það er augljóst, svo sem á er bent í grg. frv., að vitnaskyldan mun ekki verða mikið notuð í samskiptum Íslands við hin löndin vegna fjarlægðar og minni samskipta sem því svarar. Jafnframt skal á það bent að samkvæmt ákvæðum frv. skal því aðeins beita henni að vitnisburður kunni að hafa verulega þýðingu fyrir úrslit más. Er þessi regla í og með sett með hlíðsjón af reglum norskra og íslenskra laga um fjarlægðarmörk í sambandi víð vitnaskyldu.
Tvær smávægilegar breytingar þarf að gera í lögunum um meðferð einkamála í héraði samfara þeim reglum sem ætlað er að setja með þessu frv. Er um það efni flutt sérstakt lagafrv., sem fylgir þessu frv. um norræna vitnaskyldu, og kemur fyrir hér á eftir. Varðar annað atriðið fjarlægðarmörkin, en hitt snertir ákvörðun á greiðslum í sambandi við framkvæmd vitnaskyldunnar.
Að öðru leyti leyfi ég mér, herra forseti, að vísa til grg. frv. og vil óska þess að frv. verði að umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. allshn.