08.04.1976
Efri deild: 88. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3132 í B-deild Alþingistíðinda. (2580)

234. mál, meðferð einkamála í héraði

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Eins og ég drap á í framsöguræðu minni áðan er þetta frv. fylgifiskur frv. um norræna vitnaskyldu og varðar tvö atriði sem ég drap þá á, sem sagt fjarlægðarmörk að því er vitnaskyldu varðar og í öðru lagi um vitnaþóknun sem 2. gr. fjallar um.

Ég sé ekki ástæðu til, herra forseti, að fjölyrða um þetta frv., en vænti þess að það fylgi hinu frv. eftir. Ég leyfi mér að óska þess að það verði að lokinni þessari 1. umr. vísað til 2. umr. og hv. allshn.