08.04.1976
Efri deild: 88. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3135 í B-deild Alþingistíðinda. (2583)

236. mál, skotvopn

Bragi Sigurjónsson:

Herra forseti. Ég vil í fyrsta lagi leyfa mér að þakka dómsmrh. fyrir það að leggja fram þetta frv. sem er við fljótan yfirlestur miklu ítarlegra og veitir miklu meira aðhald um þessi efni heldur en verið hefur, Hins vegar vil ég leyfa mér að tilkynna það hér að við alþfl.- menn munum bera fram nokkrar brtt. við frv. Það er skammt síðan frv. kom fram og því miður hef ég ekki getað fengið þær breyt. nægilega undirbúnar sem ég hef hug á að komi fram, en það skal verða eins fljótt og kostur er á. Ég hef fullan hug á því að það tefji ekki fyrir afgreiðslu málsins.

Það, sem ég vil vekja athygli á við 1. umræðu, er að mér finnst að það hafi verið allt of rúmar hendur um það hverjir hefðu byssuleyfi eða skotleyfi. Ég sé að það er takmarkað og hert mjög eftirlit með því. En að öðru leyti er líka allt of frjálst að minni hyggju hverjir megi selja þessi skotvopn og eins allt of mikið gert að því að auglýsa þau, því að þau eru háskaverkfæri í höndum þeirra sem kunna ekki með að fara. Þetta höfum við dæmin um, bæði ný og forn, og m.a. hvað auðvelt er fyrir unglinga að ná í þessi vopn löngu áður en þeir eru menn til og hafa ábyrgðartilfinningu fyrir því að bera þau.

Það er töluvert mikil verslun sem hér er um að ræða. T.d. hef ég fengið upplýsingar um að af vopnum, skotfærum og hlutum til þeirra hafi verið innflutt um 76.4 tonn árið 1974, að cifverðmæti upp á 40 millj. kr., og af sprengiefnum, flugeldum og skrauteldum 460 tonn og cifverð 50.9 millj. kr. Hér er því um allmikla verslun að ræða og kann að vera að sú till., sem við höfum á prjónunum, alþfl.-menn, mæti þess vegna nokkurri andspyrnu. En okkur sýnist ráðlegast með svona vopn og ýmislegt í sambandi við þau að ríkið hefði einkasölu á því, og um breyt. í það horf munum við flytja tillögur. Í öðru lagi, svo ég nefni annað atriði, er að okkur sýnist mjög varhugavert að þessi vara sé auglýst svo sem verið hefur, og í þriðja lagi að hún sé á slíkum glámbekk sem okkur hefur sýnst hún vera.

En erindi mitt hingað upp var fyrst og fremst að þakka það, að þessu máli er hreyft og það tekið til endurskoðunar, og tilkynna að við munum flytja við frv. nokkrar brtt., þó að við að öðru leyti séum málinu mjög fylgjandi.