08.04.1976
Efri deild: 88. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3136 í B-deild Alþingistíðinda. (2584)
236. mál, skotvopn
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Ég ætlaði, eins og síðasti ræðumaður, að þakka dómsmrh. fyrir þetta frv. og ræði þá einkum um kaflann sem að skotvopnum lýtur. Ég held að hér sé bætt að miklu leyti úr ýmsum göllum á fyrri löggjöf. Ég hlýt að segja, eins og hv. síðasti ræðumaður, að ég hef ekki fengið tíma til þess að velta einstökum atriðum þessa frv., einstökum greinum, nægilega vel fyrir mér, en ég þykist sjá, ef nokkuð er, að það muni fremur vanta inn í frv. ýmis atriði, sem ég tel persónulega mikilvæg, fremur en að hér sé ofgert.
Af ógætilegri meðferð á skotvopnum og umsýslu um þau getur stafað tvenns konar voði. Annars vegar, svo sem dæmin sanna, hafa menn af slysni, óláni og kunnáttuleysi orðið sér og öðru fólki að voða með þessum tækjum. Hins vegar er unnið stórtjón á dýralífi landsins með óleyfilegri stundum og í öðrum tilfellum tillitslausri meðferð þessara tækja. Að vísu hygg ég að sú hlið þessa máls, sem lýtur að notkun þessara veiðivopna annars vegar og verndun dýralífs landsins hins vegar, sé efni í annað mál. Okkur vantar löggjöf um skotveiði og strangar reglur um skotveiði hér á landi. En mér er kunnugt um það að á ýmsum svæðum landsins er fuglalíf nú í verulegri hættu — sérkennilegt fuglalíf — vegna skotglaðra manna. Og ég vil í beinu samhengi við þetta frv., sem hér hefur verið lagt fram, vekja athygli, sérstaka athygli á nauðsyn þess að vandlega verði um hnútana búið í nýrri löggjöf um skotveiði. Það er algjör óhæfa að mönnum skuli haldast það uppi að aka eftir þjóðvegum landsins og utan við þá um varptíma með skotvopn á þeim tíma þegar fuglarnir eru friðaðir, skjóta þá út um glugga og hafa sig síðan í burtu með særða fugla og dauða meðfram vegunum. En eins og ég segi, þetta er annað mál, hvernig að verður unnið við setningu nýrrar löggjafar um skotveiði hér á landi.
Það, sem ég sé kannske helst ábótavant við frv. sjálft, er ekki hverjum heimilt sé að flytja inn þessi tæki, en ég hefði gjarnan viljað sjá ákvæði um það — ströng ákvæði um það með hvaða hætti á að geyma skotvopn á heimilum. Ég hefði gjarnan viljað að kveðið væri á um það að þau mætti ekki geyma öðruvísi en í læstum hirslum og þannig um hnútana búið að börn eða unglingar undir lögaldri hefðu ekki greiðan aðgang að þeim.
Það er rétt að löggjöf sú, sem á sínum tíma kvað á um byssuleyfi, hún var góð á þeim tíma. Að vísu minnist ég þess að okkur unglingunum, sem vorum farnir að fara með byssu áður en þessi löggjöf kom, okkur þótti hún nokkuð hörð og hún varð okkur töluvert áfall. En ég er efalaus um það að hún var góð og náði árangri á sínum tíma. Hún er orðin úrelt núna, og því meiri höft innan skynsamlegra takmarka sem sett eru um útbýtingu byssuleyfa, því betra tel ég.
Þó ég víki ekki jákvætt að hugmyndinni um ríkiseinkasölu á skotvopnum sem kom fram hjá síðasta ræðumanni, þá tel ég hana alls ekki fráleita.
En við skulum í þessu sambandi viðurkenna þá staðreynd að fyrir ýmsa er skemmtileg íþrótt að veiða með byssu, og menn vilja gjarnan geta valið sér byssu við hæfi og ekki láta aðra kveða á um það hvaða tegund þeir noti. Ég gæti hugsað mér að svo kynni að fara, ef hægt væri að gera hagstæð innkaup á Bruno haglabyssum, að ríkisstofnunin mundi kaupa svo sem eins og 10 ára birgðir af þeim, og ég má nú eiginlega ekki til þess hugsa að Winchester væri ekki á boðstólum af þessum sökum. Sem sagt, ég vildi að ef væri ríkiseinkasala, þá væri kveðið á um það að tekið yrði svolítið tillit til vilja kaupenda.