08.04.1976
Efri deild: 88. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3147 í B-deild Alþingistíðinda. (2592)

238. mál, ferðamál

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Ég hef ekki fylgst nákvæmlega með störfum Ferðamálaráðs, en ég veit ýmis dæmi þess um skólabyggingar, sem eru að rísa nú, að það hefur verið vilji manna að hægt væri að nota skólann sem gistirými fyrir ferðamenn, en það hefur enginn verið reiðubúinn til að leggja fram fé til að gera þetta kleift, því að viðkomandi sveitarfélög, sem í þessum tilvikum hafa verið sveitahreppar, hafa ekki talið sig hafa fjármagn til þess að kosta þá viðbótarfjárfestingu sem þarna var um að ræða. Þar sem vandamálið virðist sem sagt vera þess eðlis, þá er að minni hyggju mjög brýnt að tryggja að þetta komist í framkvæmd og að það sé ætlað sérstakt fé í þessu skyni. Ég rak mig líka á það í viðræðum vill Ferðamálaráð að það taldi sig ekki hafa fé aflögu í þessu skyni, og það var með þetta í huga sem till. var flutt á sínum tíma. Það má að vísu segja að ef allir aðilar eru mjög samstarfsfúsir, bæði menntmrn. og viðkomandi sveitarfélög, þá er þetta tiltölulega einfalt mál. Þá er hægt að framkvæma þetta án beinnar lagaíhlutunar. En mér sýnist á öllu að það væri æskilegt að koma þessu í fast skipulag og þess vegna er till. flutt.