08.04.1976
Efri deild: 88. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3161 í B-deild Alþingistíðinda. (2601)

198. mál, Búnaðarbanki Íslands

Bragi Sigurjónsson:

Herra forseti. Ég var ekki kominn inn á þing þegar talað var fyrir þessu frv., og því miður gafst mér lítill tími til þess að kynna mér það áður en það var afgr. úr nefnd. En fyrirvari minn var aðallega miðaður við það að ég gæti komið hér örfáum athugasemdum að þó að ég vildi ekki á annan hátt bregða fæti fyrir frv. eins og það er að þessu sinni.

Ég vil í fyrsta lagi lýsa þeirri skoðun minni að mér finnst eðlilegt, fyrst ríkisbankarnir eru þrír, að þeir starfi eftir líkum lögum allir. Mér sýnist þetta frv. stefna að því, og fyrsta athugasemd mín er í raun og veru bundin því að mér finnst óeðlilegt að einn ríkisbankinn heyri undir annan ráðh. en hinir ríkisbankarnir. Þetta kemur fram í 8. gr., að Búnaðarbankinn á að lúta undir þann ráðh. sem fer með landbúnaðarmál, en mér fyndist eðlilegra, að hann lyti eins og hinir bankarnir undir bankamrh., og óska eftir því við afgreiðslu frv. að 8. gr. verði borin upp sérstaklega.

Í öðru lagi get ég tekið undir orð síðasta ræðumanns um það, að mér finnst a.m.k. tíminn, sem er valinn til að fjölga úr tveimur bankastjórum upp í þrjá ekki vel valinn, því að nú eru slíkir tímar að það væri réttara að spara útgjöld, en ekki auka þau. Af þeim ástæðum óska ég eftir því að 1. málsl. 10. gr. verði borinn upp sérstaklega.

Hinu er ég alveg sammála, að það sé eðlilegt að Búnaðarbankinn hafi leyfi til þess að versla með gjaldeyri alveg eins og Landsbankinn og Útvegsbankinn, hið sama gildi um alla ríkisbankana.

Loks langar mig að lýsa þeirri skoðun minni, að ég hef lengi verið á móti því hvað bankakerfið er orðið margþætt og útþanið hjá okkur og ég hefði kosið að bönkum væri fækkað. Hér kom einu sinni fram í þinginu að sameina skyldi Búnaðarbankann og Útvegsbankann, og það fannst mér stefna í rétta átt. En ég var þó enn róttækari en það. Ég hefði óskað eftir því að Verslunarbankinn, Samvinnubankinn og Alþýðubankinn væru lagðir niður og þeir látnir renna inn í hina bankana þrjá, þ.e.a.s. ríkisbankana, sem yrðu eftir það bara tveir hefði þetta orðið að lögum.

Þessari skoðun minni vildi ég koma hér á framfæri. En að öðru leyti mun ég fylgja þessu frv., nema ég óska eftir því að 8. gr. verði borin upp sérstaklega og 1. málsl. 10. gr., og hef lýst hvers vegna sú ósk er fram komin.