08.04.1976
Efri deild: 88. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3161 í B-deild Alþingistíðinda. (2602)
198. mál, Búnaðarbanki Íslands
Jón G. Sólnes:
Herra forseti. Aðeins örfáar athugasemdir í sambandi við það frv. sem hér er til umr.
Ég tel ekki óeðlilegt, jafnumsvifamikill banki og Búnaðarbanki Íslands er orðinn, — hann mun vera orðinn annar stærsti af svokölluðum ríkisbönkum, — að það komi í sambandi við stjórn hans fram óskir um að yfirstjórn bankans geti verið á svipaðan veg og er háttað hjá hinum bönkunum, að það séu þrír bankastjórar og heimild sé til þess að ráða aðstoðarbankastjóra. Það er ekki nema eðlileg ósk. En það, sem vekur nokkrar efasemdir í mínum huga, er að hér er flutt frv. um l. um Búnaðarbanka Íslands, allviðamikið frv. sem er í nokkrum köflum og ekkert bendir til að eigi að verða breytingar á á næstunni. En ég er sammála þeim aðilum sem hér hafa talað og bent á að nauðsyn er á því að heildarlöggjöf þjóðarinnar í sambandi við bankamál sé tekin til rækilegrar endurskoðunar. Og þar mundu mjög mörg atriði koma að mínum dómi til athugunar.
Í sambandi við þetta frv. get ég einnig fallist á þá athugasemd, sem hér hefur verið gerð, að það er ákaflega óeðlilegt ákvæði, sem er í 8. gr. þessa frv. um að yfirstjórn þessa banka sé í höndum annars ráðh. heldur en fjallar almennt um bankamál. Það er náttúrlega alveg sjálfsagt að í heildarlöggjöf um bankamál þjóðarinnar sé ákveðið að hver sú stofnun, hvert það fyrirtæki, sem lagalega hefur fengið viðurkenningu á því að heita banki og mega reka almenna bankastarfsemi í landinu, fái með slíkum réttindum réttindi til þess að veita almenna þjónustu sem felst í því að versla með erlendan gjaldeyri.
Það er svo margt annað sem þyrfti að koma inn í allsherjar bankalöggjöf. Það virðist vera ríkjandi og eiga allmiklu fylgi að fagna meðal þingmanna og annarra sú gagnrýni að bankakerfið sem slíkt sé orðið allt of umfangsmikið og víðfeðmt. Ég skal nú ekki fara að leggja beinlínis dóm á það. Á hinn vil ég hins vegar vekja athygli, hvort ekki væri ástæða fyrir okkur að haga bankalöggjöf og fyrirmælum og ákvæðum um almenna bankastarfsemi í landinu eitthvað í samræmi við það sem gildir hjá öðrum þjóðum, t.a.m. á Norðurlöndum. Það er eitthvað svo fastbundin og víðtekin regla hér á landi að miða bankastarfsemi við ákveðið verkefni, að þessi og þessi banki eigi öðrum verkefnum frekar að sinna málefnum ákveðinna tegunda, ákveðinna starfsgreina, ákveðinna atvinnugreina o.s.frv. Ég held að það væri fyllilega þess virði að athuga þau ákvæði sem nú gilda t.a.m. í alveg nýrri löggjöf sem tekið hefur gildi í Danmörku um banka og starfsemi þeirra. Hún er fyrst og fremst bundin og háð ákveðnum skilyrðum, þannig að þær skuldbindingar, sem bankastofnanir takast á hendur, verða að vera í ákveðnu hlutfalli við eigið fé. Það held ég að væri atriði sem væri rétt fyrir okkur að gefa meiri gaum að. Við ættum að samræma löggjöf um starfsemi og rekstur banka í heild eitthvað á þann veg, sem ég hef verið að lýsa. Ég held að við mundum fá miklu heilbrigðari almenna bankastarfsemi og bankaþjónustu í þjóðfélaginu með því að hafa þessi sjónarmið fyrir augum. Ég veit ekki hvort það er endilega svo aðkallandi að bönkum, verði fækkað. Það er atriði út af fyrir sig.
Ef okkur gæti tekist að hafa betri heildarstjórn á hvernig almennri bankaþjónustu í landinu er háttað og við gætum verið öruggir um að hún væri ávallt innan þess ramma, sem talinn er eðlilegur um starfsemi slíkra fjármálastofnana að sjálfsögðu undir hinu opinbera bankaeftirliti sem á að vera í höndum Seðlabankans, eins og það er nú hjá okkur, þá væri mikið unnið. Ég vil einnig benda á að í slíkri löggjöf mættu gjarnan vera ákvæði sem leyfðu almenna starfsemi fjármagnsmiðlara sem er almennt viðurkennd frjáls og eðlileg atvinnugrein í nágrannalöndum okkar. Slík starfsemi getur átt fyllsta rétt á sér og getur verið þjóðfélaginu og þegnum þess til mikils hagræðis. Að sjálfsögðu á slík starfsemi að vera háð lögskipuðu eftirliti bankakerfisins. En hún á undir öllum kringumstæðum rétt á sér og á að vera gert ráð fyrir henni í starfsemi hins almenna bankakerfis.
Ég hefði talið hægast og eðlilegast, eins og nú er málum háttað, að þetta frv., sem hér er til afgreiðslu verði heimild í þá átt að fjölga bankastjórum Búnaðarbankans og enn fremur að veita heimild til ráðningar aðstoðarbankastjóra. Mín vegna hefði einnig mátt taka af allan vafa um það og ákveða með lögum að bankanum yrðu veitt fullkomin gjaldeyrisréttindi, en að öðru leyti yrði ákvæðum þessa frv. frestað, því að með slíku háttalagi um afgreiðslu málsins væri Alþ. að staðfesta þá ætlun sína að innan tiltölulega skamms tíma ætlaði Alþ. að gegna þeirri skyldu, sem ég tel að það hafi, að taka hina almennu löggjöf um alla bankastarfsemi í landinu til gagngerrar endurskoðunar.