08.04.1976
Efri deild: 88. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3163 í B-deild Alþingistíðinda. (2604)

223. mál, Norræni fjárfestingarbankinn

Fram. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um frv. til l. um heimild fyrir ríkisstj. til þess að fullgilda fyrir Íslands hönd samning Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar um stofnun Norræna fjárfestingarbankans. N. hefur fjallað um þetta frv. og leggur einróma til að það verði samþ.

Það var á aukaþingi Norðurlandaráðs á s.l. ári að það var samþ. að stofna norrænan fjárfestingarbanka. Það var yfirgnæfandi meiri hl. Norðurlandaráðs sem samþ. þessa till. Allir fulltrúar Íslands frá öllum flokkum voru samþykkir því að stofna til þessa banka. Ég er ekki í nokkrum vafa um að stofnun þessa banka verður til hagsbóta fyrir íslendinga. Utanríkisviðskipti íslendinga við hin Norðurlöndin eru óhagstæð. Það er mjög mikill halli á vöruskiptajöfnuði okkar við hin Norðurlöndin, og ég er fullviss um að það er mikill skilningur fyrir því á hinum Norðurlöndunum að auka útflutning okkar til þeirra. Þessi banki ætti að geta stuðlað mjög að því að svo verði.