05.11.1975
Neðri deild: 13. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 402 í B-deild Alþingistíðinda. (262)

2. mál, Framkvæmdastofnun ríkisins

Ingvar Gíslason:

Virðulegi forseti. Það er ekki óeðlilegt þó að talsverðar umr. verði af og til um Framkvæmdastofnun ríkisins. Ég tel að það sé í rauninni mjög heppilegt að umr. fari fram hér á hv. Alþ. við og við um málefni stofnunarinnar, enda er það gert og skylt raunar samkv. lögum þar um að svo sé. Hins vegar verð ég að segja það, að það væri æskilegra að umr. væru málefnalegri og sanngjarnari en verið hefur nú í þeirri hrinu sem gengið hefur yfir okkur undanfarna daga, þar sem til umr. hefur verið það frv. sem hér er nú á dagskrá og til umr. flutt af hv. 9. þm. Reykv. o. fl. Mér satt að segja finnst að það hafi gengið á ýmsu um það hversu málefnalega menn hafa talað í þessu máli.

Ég hygg að tilgangur flm. sé nokkuð augljós. Hann virðist fyrst og fremst vera sá að etja saman sjálfstæðismönnum sem sumir hverjir a. m. k. hafa sýnt Framkvæmdastofnuninni vissa andstöðu frá fyrstu tíð, þó að ég telji að það hafi mjög dregið úr andstöðu úr þeirri átt nú að undanförnu, þannig að sjálfstæðismenn hafa tekið fullan þátt í störfum stofnunarinnar, eins og sést á því að nú er hv. 1. þm. Suðurl., Ingólfur Jónsson, formaður stjórnar Framkvæmdastofnunarinnar og annar af framkvæmdastjórum hennar er hv. þm. Sverrir Hermannsson. Ég held því að hv. flm. hafi ekki tekist að etja sjálfstæðismönnum svo mjög saman í þessu, og ég vona yfirleitt að ekki komi annað til greina en að meiri hl. Alþ. haldi áfram að styðja Framkvæmdastofnunina og stuðla að því að hún eflist á næstu árum, þannig að hún fái gegnt því hlutverki sem henni er ætlað; m. a. á sviði áætlanagerðar og landsbyggðarmála sem ég held að flestir verði sammála um að séu meðal mikilvægustu verkefna stofnunarinnar.

Um það frv. sem hér liggur fyrir, þá sýnist mér það vera næsta rýrt í roðinu, hvernig sem á það er litið. Sýnist mér alveg augljóst að þó að það yrði að lögum, þá skipti það engum sköpum fyrir starfsemi stofnunarinnar. Ég sé ekki betur en að það, sem í þessu frv. er, sé alger formalismi. A. m. k. snertir það sáralítið sjálft inntak Framkvæmdastofnunarinnar eða efnislega hlið þeirrar stofnunar. Ég býst ekki við því raunar að það yrði starfi Framkvæmdastofnunarinnar til neins sérstaks hnekkis þó að framkvæmdastjóri hennar yrði einn í stað tveggja eða þriggja eins og verið hefur, en ég sé ekki heldur að það bæti neitt starf hennar. Þannig lít ég á þessa brtt., að mér þykir hún vera fremur lítilfjörleg efnislega, og ég sé ekki mikla ástæðu til þess að fara um hana öllu fleiri orðum. Hins vegar kemst ég ekki hjá því að víkja hér nokkuð að þeim umr., sem orðið hafa í sambandi við þetta frv., og það verð ég að segja, eins og ég hef áður sagt hér, að þar hefur gengið á ýmsu.

Ég ætla ekki að fara að gera neina úttekt á ræðuhöldunum, en ég vil segja það, að það eru fyrst og fremst tvær ræður sem eru mér sérstaklega í minni af þeim sem hér hafa verið haldnar. Því miður hef ég ekki haft aðstöðu til að fylgjast með alveg öllum þessum umr. Og báðar þessar ræður voru fluttar af samflokksmönnum mínum, hv. 4. þm. Austurl., Tómasi Árnasyni, og hv. 4. þm. Reykn., Jóni Skaftasyni.

Mér er kunnugt um það að ræða hv. 4. þm. Austurl. vakti óskipta athygli þdm. og þeirra sem hafa aðstöðu til að fylgjast með efni hennar, vegna þess að sú ræða var bæði efnismikil og mjög hófsöm að allri framsetningu. Hv. þm. sagði þar kost og löst á Framkvæmdastofnuninni og sýndi fram á það m. a. að Framkvæmdastofnunin hefur unnið mjög merkilegt starf þau rúm 3 ár sem hún hefur verið að störfum. En hitt er líka jafnljóst, að stofnuninni hafa ekki verið búin fullnægjandi starfsskilyrði, sem er annað mál. Það kom líka mjög greinilega fram í ræðu hv. 4. þm. Austurl. að Framkvæmdastofnunin er engin alræðisstofnun í þjóðfélaginn og allt tal um ofurvald pólitískra framkvæmdaráðsmanna er einber þjóðsaga eða réttara sagt, það er heilafóstur örfárra manna sem sjálfir eru þannig innréttaðir að þeir ætla öðrum að vera eins og þeir sjálfir, enda segir gamalt máltæki að margur haldi mann af sér.

Ég held að það sé rétt að hv. þm. Tómas Árnason hafi sýnt fram á að í ræðu sinni að framkvæmdaráðið hefur hvorki samkv. lögum né samkv. starfsvenju nein alræðisvöld. Í því sambandi ættu menn að líta í 4. og 5. gr. laganna um Framkvæmdastofnunina. Ég held að 4. og 5. gr. sýni, svo að ekki verði um villst, að framkvæmdaráðið hefur ekki, hvorki að lögum né á annan hátt, það alræðisvald sem oft er talað um. Í 4. gr. segir með leyfi hæstv. forseta:

„Ríkisstj. skipar 3 manna framkvæmdaráð er annast daglega stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins. Framkvæmdaráð má leysa frá störfum með mánaðar fyrirvara og eiga þá framkvæmdaráðsmenn rétt til óskertra launa í 3 mánuði. Stjórn Framkvæmdastofnunarinnar tekur ákvörðun fyrir hönd stofnunarinnar um launakjör framkvæmdaráðs, forstöðumanna deilda og annarra starfsmanna.“

Þetta er það sem segir í 4. gr. um framkvæmdaráðið. Og í 5. gr. segir um verkefni framkvæmdaráðs:

„1) að láta gera áætlanir á vegum stofnunarinnar og leggja þær fyrir stjórn hennar;

2) að gera till. til stjórnarinnar um rekstraráætlanir og starfsáætlanir fyrir stofnunina;

3) að gera till. um árlega heildaráætlun fyrir Framkvæmdasjóð og Byggðásjóð svo og um einstakar lánveitingar úr þeim;

4) að ráða stofnuninni starfsfólk innan ramma fjárhagsáætlunarinnar, að fengnum till. forstöðumanna deilda, sbr. þó 3. gr. 1. tölul.“

Ég held nú að hverjum manni, sem les þetta með eðlilegu hugarfari, hljóti að vera ljóst að hér er ekki verið að búa til neitt ofurvald framkvæmdaráðs. Vald framkvæmdaráðs er ýmsum takmörkunum háð. Það er háð í fyrsta lagi stjórn stofnunarinnar um yfirleitt allar sínar veigamestu ákvarðanir. Auk þess hefur það komið fram mjög greinilega í máli hv. 4. þm. Austurl. að ráðið hefur skapað sér þá starfsvenju að vinna öll mál í fullu samráði við starfsmenn stofnunarinnar, deildarstjórana, og raunar stjórn stofnunarinnar í heild að meira eða minna leyti,

Það sem sagt kemur hér í ljós að framkvæmdaráðið er háð stjórn stofnunarinnar, eins og eðlilegt er, og algjör óþarfi að vera að breiða það út að þarna sé um eitthvert ofurvald og óeðlilegt vald innan stofnunarinnar að ræða. Hitt er svo allt annað mál. að framkvæmdaráðið er í nánum tengslum við pólitíska valdið í landinu á hverjum tíma og á það vil ég benda að sjálfsögðu. Að mínum dómi er þetta enginn ágalli á skipulaginu, heldur held ég að þetta sé nauðsynjamál, eins og málum er háttað og eins og Framkvæmdastofnunin er gerð. Ég álít að Framkvæmdastofnunin eigi að vera lifandi stofnun, hún eigi að vera lífræn og lifandi stofnun. Og ég sé sé enga ástæðu til þess að gelda hana með æviráðningum eða pempíulegri hræsni um hlutleysi og grandvaraleik embættismannavaldsins. Það er ekkert nema hræsni og það er lýðskrum þegar fulltrúar í þessari hv. þd. ætla að gera sig stóra með því að upphefja embættisvaldið á kostnað stjórnmálamanna. Ég held að það væri nær að gefa gaum að því hvernig valdskiptingin er að verða í þessu landi, m. a. hvort Alþ. og alþm. séu ekki smám saman að missa völdin úr höndunum á sér og eitthvað út í buskann.

Ég hef hér minnst á ræðu hv. þm. Tómasar Árnasonar og ég hef einnig minnst á ræðu hv. þm. Jóns Skaftasonar. Ég geri þann reginmun á þessum tveimur ræðum, að ræða hv. 4. þm. Austurl. var hófsöm og efnismikil, en því miður verð ég að segja það, að ég get ekki gefið ræðu míns kæra vinar Jóns Skaftasonar sömu einkunn. Það er ekki það, að ég álíti að það sé ekki eðlilegt að gagnrýna störf Framkvæmdastofnunarinnar. Það er mjög eðlilegt og getur átt fullan rétt á sér. Framkvæmdastofnunin er mjög fjarri því að vera hafin yfir gagnrýni, og það er ekkert eðlilegra en að menn geti sett út á störf hennar. Hins vegar verð ég að segja það, að ég furðaði mig á því að þessi hv. þm., sem yfirleitt venur sig ekki á stóryrði, nema síður sé, hann var ótrúlega stórorður og ósanngjarn í dómum sínum um Framkvæmdastofnunina, að ekki sé meira sagt. Ég held að hann hafi rætt aðallega tvö atriði. Hann talaði mjög um almenna reynslu af Framkvæmdastofnuninni og hann talaði einnig alllangt mál um starfsemi Byggðasjóðs. Hv. þm. Jón Skaftason féll í þá gröf að gera mikið úr ofurvaldi framkvæmdaráðsins og hann talaði, held ég, um geysilegt vald þess. Ég hef dálítið svarað þessu hér áður og ég ætla ekki að endurtaka það, því að þessi þjóðsaga um alræðisvöld framkvæmdaráðsins stenst ekki ef lögin eru skoðuð og ef framkvæmd laganna er skoðuð. Eins og ég hef sagt frá, þá vinnur framkvæmdaráðið eða framkvæmdastjórarnir störf sín í samráði við starfslið og stjórn stofnunarinnar og eru yfirleitt í öllum meginatriðum háðir samþykki stjórnarinnar fyrir sínum gerðum.

En það, sem, mér blöskraði mest og féll verst í málflutningi hv. þm. Jóns Skaftasonar, var sú ásökun að kenna Framkvæmdastofnun ríkisins um óðaverðbólguna innanlands. Mál hans varð eiginlega ekki skilið öðruvísi en að það væri Framkvæmdastofnun ríkisins að kenna hvernig komið væri í efnahagsmálunum og einkum hvað snerti þá miklu verðbólgu sem nú er í landinu. Nú veit hv. þm. að þetta getur ekki staðist. Hann er, að ég held, með þessu að gefa í skyn að Framkvæmdastofnunin sé og eigi að vera einhvers konar yfirríkisstj. í landinu, hún eigi að vera yfirbjóðandi Alþ. og ríkisstj. og annarra áhrifaafla í þjóðfélaginu. Það er þetta sem hv. þm. er að gefa í skyn með þessu. Að vísu kann að vera rétt, að Framkvæmdastofnuninni hafi verið ætlað og sé ætlað mikið hlutverk samkv. lögum, einkum í sambandi við fjárfestingarmál, lánveitingar og stefnumótun í efnahags- og atvinnumálum. Þessi atriði eru mjög skýrt afmörkuð í 1. gr. laganna, þannig að það er ljóst að Framkvæmdastofnunin getur haft mikið vald. Það er hægt að ætla henni mikið vald. En hins vegar var henni aldrei ætlað að taka fram fyrir hendur ríkisvaldsins. Henni var aldrei ætlað að að taka fram fyrir hendur ríkisvaldsins, heldur að vera ríkisvaldinu til aðstoðar. Samkv. lögunum um stofnunina á hún að vera til aðstoðar ríkisstj., en hún á ekki að vera neinn yfirboðari hennar eða yfirbjóðandi hennar. Framkvæmdastofnunin getur aldrei sagt ríkisstj, fyrir verkum, hún hefur enga möguleika til þess. Hins vegar held ég að það sé ljóst að Framkvæmdastofnunin er fús til þess að aðstoða ríkisstj. og leggja henni ráð ef eftir því er leitað.

Og nú langar mig til að koma hér að býsna mikilvægu atriði í sambandi við störf Framkvæmdastofnunarinnar og ég bið menn um að taka eftir þessum orðum mínum. Það kann að vera að það, sem ég segi nú, megi skoða sem gagnrýni á ráðh. og á ríkisstj., raunar tvær ríkisstj., bæði vinstri stjórnina og núv. ríkisstj. Báðar þessar ríkisstj. eiga það sammerkt að hafa gengið um of fram hjá Framkvæmdastofnuninni í mikilvægum málum, eða réttara sagt, þær hafa ekki kunnað að notfæra sér til hlítar þá möguleika sem fyrir hendi eru hjá stofnun eins og Framkvæmdastofnun ríkisins. M. a. hefur Framkvæmdastofnuninni aldrei verið sköpuð aðstaða til þess að hafa nein úrslitaáhrif á heildarstefnu í fjárfestingar og lánamálum, hvað þá efnahagsmálum almennt, og þetta veit ég að hv. 4. þm. Reykn. veit. En þó að ég segi þetta, þá tek ég ekki undir þá ásökun að reynslan af störfum Framkvæmdastofnunarinnar sé slök. Verk hennar eru þrátt fyrir allt mikil að vöxtum og hún hefur víða markað spor í þjóðlífinu. Menn ættu t. d. að vita að Framkvæmdastofnunin heldur uppi mjög lífrænu sambandi við forustumenn atvinnulífs og félagsmála úti um byggðir landsins og stofnunin lokar sig ekki inni í neinum fílabeinsturni. Framkvæmdastofnunin starfar, að ég hygg, meira fyrir opnum tjöldum, ef svo má segja, heldur en algengt er um valda- og fjármálastofnanir í þessu landi. Það kom því úr hörðustu átt þegar hv. 4. þm. Reykn. efaðist um, að Framkvæmdastofnunin nyti trausts landsmanna. Raunar veit hv. þm. ekkert um þetta – eða hvernig getur hann vitað um það? Það hefur ekki verið gerð nein úttekt á því hvernig varið er vinsældum Framkvæmdastofnunarinnar eða hvaða traust menn bera til Framkvæmdastofnunarinnar. Engin skoðanakönnun hefur verið gerð á því máli. En hitt veit ég, að Framkvæmdastofnunin stendur í lífrænu sambandi við atvinnulífið í landinu. Ég hef ekki orðið var við það að menn bæru almennt minna traust til Framkvæmdastofnunarinnar en margra annarra opinberra aðila, nema síður sé, því að ég hygg að það séu ótrúlega margir aðilar úti um landið, sem eru að berjast með vandasaman atvinnurekstur og annað sem má verða byggðunum til þrifa, sem einmitt setja traust sitt á Framkvæmdastofnunina og meira en á ýmsar aðrar stofnanir í þessu landi.

Hv. 4. þm. Reykn. gerði líka Byggðasjóð og störf hans að sérstöku umræðuefni, og það er ekki í fyrsta skipti sem hann talar um Byggðasjóð. Hann hefur látið í sér heyra, hv. þm., áður og lýst afstöðu sinni til Byggðasjóðs. Og ég verð að segja það, að afstaða hans nú sem fyrr er dálítið einkennileg. Satt að segja finnst mér að hv. þm. — sem er raunar ekki líkt honum, ég þekki hv. þm. það vel — það er eins og hann gangi þarna með einhverja þráhyggju. A. m. k. á yfirborðinu virðist þetta vera þráhyggja, þessi afstaða hans til Byggðasjóðs og starfa hans. En ég segi það, að þetta er ákaflega ólíkt vini mínum Jóni Skaftasyni, að ganga með einhverja þráhyggju, en í þessu máli held ég að hann geri það. Og þá kemur að því, að það er ákaflega erfitt að sannfæra þráhyggjumenn, og það er eitt af því sem ég hef aldrei lagt mig niður við á minni löngu ævi, býsna löngu, að reyna að sannfæra þráhyggjumenn, heldur sniðgeng ég þá og vil helst ekkert við þá tala. En hvað vin minn hv. 4. þm. Reykn. snertir, þá trúi ég því raunar ekki í hjarta mínu að hann sé nú svo mikill þráhyggjumaður að ekki sé hægt að tala um fyrir honum. (Gripið fram í: Er ekki rétt að reyna það núna?) En það, sem ég held að hafi gerst í þessu máli með hv. 4. þm. Reykn., er kannske ekki beint að hann sé haldinn mjög erfiðri þráhyggju. Ég held, að það, sem hefur gerst, sé það að hann hefur gerst svo ákafur málsvari kjördæmis síns að hann telur það forsvaranlegt að beita næstum því hvaða málflutningi sem er þegar hann ræðir um Byggðasjóð. Og ég vil segja að það er ekki forsvaranlegu: málflutningur þegar hv. þm. er að berjast fyrir því að höfuðborgarsvæðið og Reykjaneskjördæmi eigi tilkall til byggðasjóðslána almennt. Þetta er ekki forsvaranlegur málflutningur.

Hv. 4, þm. Reykn. og aðrir hv. þm., þ. á m. þm. Reykv. og þm. Reykn., vita að Byggðasjóði er ætlað að vinna að jafnvægi í byggð landsins. Þeir vita það líka að það væri hlægileg pólitík ef sjóðurinn væri almennt opnaður fyrir reykvíkinga og reyknesinga, og ég vil helst ekki þurfa að eyða orðum í slíka fásinnu. Hitt er annað mál, að það hefur verið látið undan þrýstingi um að lána til skipakaupa í Reykjaneskjördæmi. Að mínum dómi var það hæpin samþykkt sem ég stóð ekki að, en við það verður nú að una.

Hæstv. forseti. Ég hef nú e. t. v. gerst fulllangorður um málflutning hv. 4. þm. Reykn., en það er fyrst og fremst vegna þess að hann stendur mér miklu nær persónulega en aðrir gagnrýnendur Framkvæmdastofnunarinnar og mig tekur miklu sárar til hans en annarra manna hér. En hins vegar vil ég ekki láta þessi orð hans standa ómótmælt, því að þau munu berast út um landið. Ég tel gagnrýni hv. þm. mjög ósanngjarna og þess vegna hef ég eytt nokkuð töngum tíma í að andmæla því sem hann hefur sagt hér. (Gripið fram í.) Ég skal nú aðeins koma inn á þetta atriði úr því að hv. þm. pantar það sérstaklega.

Það er alveg rétt, að það hefur komið fram veruleg gagnrýni hér nú í þessum umr. á starfsemi áætlanadeildarinnar, og ég verð að segja að þessi gagnrýni er að mörgu leyti mjög eðlileg. Það er engum ljósara en okkur, sem sitjum í stjórn Framkvæmdastofnunarinnar, og starfsfólki Framkvæmdastofnunarinnar að áætlanadeildin er um margt vanbúin, og það stendur ákaflega margt til bóta í starfi þeirrar deildar. Það er alveg rétt að áætlanadeildin er yfirhlaðin verkefnum og hún hefur ekki getað sinnt öllum þeim verkefnum sem henni hefur verið falið að inna af hendi.

En það, sem ég vil nú segja og er kannske endurtekning á því sem ég hef verið að segja í ræðu minni í dag, það er um hinn neikvæða tón í gagnrýninni, sem mér finnst vera. Ég vil segja við hv. 4. þm. Reykn. að þessi neikvæði tónn gefur ranga hugmynd um störf áætlanadeildar og annað áætlunarstarf sem í gangi er í landinu. Ég held að það sé rétt af okkur að skoða öll áætlunarmálin í heild. Það er hægt, og það veit ég að hv. 4. þm. Reykn. sér strax þegar hann áttar sig á því að það er hægt að fá þessa heildarmynd einmitt í ársskýrslu Framkvæmdastofnunar ríkisins árið 1974. Ef hann flettir upp í þessari bók þar sem rætt er um starfsemi áætlanadeildar 1374, á bls. 11 og þó einkum á bls. 12 og áfram, þá getur hann fengið heildarmynd af því hvað verið er að gera í áætlunarmálum. Þetta eru margar bls. í bókinni, sennilega yfir 10, kannske 15 bls. í bókinni, sem fjalla um þetta efni, og ég ráðlegg hv. þm. að lesa þetta gaumgæfilega. Með því fær hann heildarmynd af því hvað er verið að gera í þessum málum í landinu almennt. Ég er alveg viss um að ef hann gerir þetta með réttu hugarfari, en ekki eins og þegar skrattinn er að lesa Biblíuna, fær hann allt aðra skoðun um þessi mál.

Ég ætla ekki að þrátta við hv. þm. um stílbragðið á þessari skýrslu á bls. 11 sem hann las upp. Þar er kveðið býsna sterkt að orði um ástandið í áætlanadeildinni, og það er kannske vona að hv. þm. grípi þetta á lofti. Ég held samt sem áður að ef þetta er lesið rétt, þá sé það ekki annað en sönnun fyrir því, eins og ég hef greint hér frá og eins og hv. 4. þm. Austf. hefur sagt áður og kannske fleiri, að áætlanadeildin er um margt vanbúin og það stendur margt til bóta í hennar starfi.

Herra forseti. Það væri auðvitað freistandi, úr því að ég er kominn með þessa skýrslu í hendur og með þetta mikla yfirlit um áætlunarmálin — hef það hérna í höndunum, að vitna í það, en ég ætla ekki að eyða tíma í það. Hv. þm. geta sjálfir lesið þetta og verður kannske miklu þægilegra fyrir þá að gera það á þann máta. Ég held að ég hafi gert þær athugasemdir við málið nú, sem ég mun gera á þessu stigi, og læt máli mínu lokið.