08.04.1976
Neðri deild: 89. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3170 í B-deild Alþingistíðinda. (2630)

144. mál, flokkun og mat á gærum

Frsm. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Landbn. hefur fjallað um þetta mál á nokkrum fundum og orðið sammála um að mæla með samþykkt þess með svolítilli breytingu sem till. er um á sérstöku þskj. Breytingin er í því fólgin fyrst og fremst að ráðh. gefi út reglugerð um meðferð á gærum, og það er eiginlega eina efnisbreytingin. Þetta frv., sem áðan var afgr. sem lög frá Alþ., um flokkun og mat ullar, urðu hér samferða og eru mjög lík frv. að því leyti að það er verið að taka upp á þessum vörum strangara mat en áður hefur verið í ljósi þess að okkar iðnaður, sem byggist að verulegu leyti á þessum vörutegundum, það er sýnilegt að hann á mikla framtíð fyrir sér. F.n það þarf líka að vanda meira en hingað til hefur verið sjálft hráefnið, og þessi frv. eiga að stuðla að því að það náist.

Það má segja að í sambandi við þetta frv. um flokkun og mat á gærum sé dálítið stefnumarkandi 1. gr., þar sem á að fara að meta gærurnar á lifandi kindum, áður en þeim er slátrað, og er stuðlað að því að slík framkvæmd komist á innan þriggja ára.

Það var svolítið rætt um í n. að það á að setja matsformenn og. síðan eiga að koma yfirmatsmenn, fjórir á öllu landinu. Eftir frv. er ætlast til að það séu sérstakir gærumatsmenn og sérstakir ullarmatsmenn. En það er hæstv. landbrh. sem á að skipa þessa matsmenn, og vil ég beina því til hans hvort það væri ekki jafnvel rétt, þar sem þetta er svo svipað starf, að það væru sömu mennirnir. Þó að frv. í raun og veru geri ráð fyrir að þetta séu sérstakir matsmenn, þá er samt sem áður ekkert sem hindrar að þarna gæti verið um sömu matsmennina að ræða, og mér fyndist það eðlilegra. En þetta er á valdi ráðh.

Það er enginn vafi á því að það þarf mjög að herða eftirlit í þessum málum. Ég hef rætt við t.d. menn sem eru að ferðast um nú og meta og athuga gærur, og það kemur í ljós að í sumum sláturhúsunum er kannske allt upp í 60 % af þeim skemmdar vegna þess að það hefur ekki verið t.d. fjarlægð fita úr gærunum áður en þær voru saltaðar, þær hafa ekki verið kældar nógu vel, fyrirristan hefur ekki verið framkvæmd á réttan hátt og geymsluhúsin eru ekki þannig að þau geti varið þessa vöru fyrir skemmdum. Af þessum ástæðum er það sem n. leggur til að það verði sett í reglugerð ákvæði um hvernig skuli með gærurnar farið.

Ég sé svo ekki ástæðu til þess að ræða þetta frekar. Ég hef trú á því að þessi frv. muni stuðla að mjög aukinni vöruvöndun, ef rétt er farið að, á þessum þýðingarmiklu framleiðsluvörum bændanna og þá er vel.