08.04.1976
Neðri deild: 89. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3173 í B-deild Alþingistíðinda. (2638)

229. mál, almannatryggingar

Karvel Pálmason:

Virðulegi forseti. Það eru aðeins örfá orð nú við 1. umr. þessa máls. Það er vissulega ástæða til þess að fagna þessu frv. Hér er lagt til að lögfesta hluta samkomulags sem gert var í nýafstöðnum kjarasamningum á milli aðila vinnumarkaðarins. Þetta er mál sem lengi hefur verið til skoðunar. Frá því að þetta kom til framkvæmda árið 1971 hafa, að ég held, farið fram umr. um að hér þyrfti um að breyta. Það hefur sem sagt komið í ljós og menn almennt, að ég held, eru sammála um að það mark, sem sett var og er í gildandi lögum, sé of lágt. Hér er lagt til að þær tekjur, sem viðkomandi einstaklingar mega hafa umfram það sem almannatryggingabætur segja til um, séu hækkaðar úr 41 þús. rúmu upp í 120 þús. fyrir einstaklinga og 168 þús. fyrir hjón, þ.e.a.s. frá 1. júlí 1976. Um þetta mál eru sem sagt allir sammála.

Ég vil aðeins vegna þessa minna á það, að á þinginu 1974–1975 flutti ég frv. einmitt þessa efnis, um að hækka þetta tekjumark sem mætti vera hjá þeim einstaklingum, sem hefðu tiltölulega litlar tekjur umfram það sem almannatryggingar og örorkulífeyrir gera ráð fyrir, án þess að um skerðingu yrði að ræða. Ég lagði þá til að þetta yrði hækkað í 96 þús. kr. Á því þingi fékk þetta frv. hægt andlát hjá hæstv. ríkisstj. sem því var vísað til. Þó skal það tekið fram að hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson stóð með því að samþykkja þetta frv., sem þá var til umr., en var, eins og ég sagði áðan, svæft hjá hæstv. ríkisstj. En því ber að fagna að sinnaskipti hafa orðið. Þó að það hafi tekið rúmlega ár að fá fram slík sinnaskipti og það hafi þurft að gerast í gegnum aðila vinnumarkaðarins, þá ber eigi að síður að fagna því og er full ástæða til að gera það. Ég skal ekki hafa um þetta fleiri orð, en ég vildi við þetta tækifæri, með hliðsjón af því sem áður hafði gerst, koma þessu hér að.