05.11.1975
Neðri deild: 13. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 424 í B-deild Alþingistíðinda. (266)
2. mál, Framkvæmdastofnun ríkisins
Tómas Árnason:
Hæstv. forseti. Ég ætla fyrst að svara spurningu, sem hv. 9. þm. Reykv. beindi sérstaklega að okkur framkvæmdastjórunum í Framkvæmdastofnuninni varðandi okkar launakjör. Þegar ég var kjörinn alþm. á s. l. sumri var ég framkvæmdastjóri í Framkvæmdastofnuninni og var það raunar ásamt tveimur öðrum mönnum. Þegar það hafði skeð gaf ég þau fyrirmæli í stofnuninni að launakjör mín ættu að hlíta sömu reglum og annarra opinberra starfsmanna, og það hefur verið gert frá þeim degi. Hins vegar að sjálfsögðu voru hinir framkvæmdastjórarnir, sem störfuðu með mér nokkra mánuði, á fullum launum eins og vera ber. Síðan hv. 3. þm. Austurl., Sverrir Hermannsson, tók sæti í framkvæmdaráðinu, hafa að sjálfsögðu sömu reglur gilt um hans launakjör. Þessu vildi ég svara þegar í upphafi ræðu minnar.
Það hefur komið margt fram í þessum umr., sem væri ástæða til að minnast á, en ég mun ekki tína það til, heldur snúa mér að einu alveg ákveðnu atriði sem hefur verið verulega til umr., og það er sá þáttur í ræðu hv. 4. þm. Reykn., sem hv. 9. þm. Reykv. minntist á í ræðu sinni. Ég vil víkja nokkuð að þeim þætti í ræðu hans sem snertir ársskýrslu Framkvæmdastofnunar ríkisins. Þessi ræða hefur verið birt með fyrirsögnum í Tímanum s. l. þriðjudag og þessi kafli ber fyrirsögnina: „Þeirra eigin dómur.“ Þessi kafli í ræðu hv. 4. þm. Reykn. hefst á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:
„Annað og sennilega veigamesta verkefni Framkvæmdastofnunarinnar er gerð áætlana um þróun þjóðarbúskaparins.“ Hvar stendur það í lögum um Framkvæmdastofnun ríkisins að Framkvæmdastofnunin eigi að gera áætlun um þróun þjóðarbúskaparins? Við skulum líta á lögin og við skulum líta á þau ákvæði sem um þetta gilda.
Í 7. gr., um áætlanadeildina sérstaklega, segir svo, með leyfi hæstv. forseta: „Áætlanadeild gerir áætlanir um uppbyggingu og þróun mikilvægustu atvinnugreina og um heildarþróun atvinnulífsins.“
Í 9. gr. segir svo: „Heildin gerir áætlanir fyrir rn. og opinberar stofnanir um framkvæmdir ríkisins og aðrar opinberar framkvæmdir eftir því sem um semst“ — m. ö. o. eftir því, hvort ríkisstj. felur Framkvæmdastofnuninni að gera slíkar áætlanir um opinberar framkvæmdir.
Það er því ekki rétt, sem hér kemur fram, að það sé verkefni Framkvæmdastofnunarinnar, nema henni sé falið það, að gera áætlun um þróun þjóðarbúskaparins. Það er miklu víðtækara verkefni en varðandi skyldu áætlanadeildar Framkvæmdastofnunarinnar. En á þessu upphafi er í raun og veru þessi kafli ræðu hv. þm. byggður. Og það vill svo einkennilega til að hann vitnar til ársskýrslu Framkvæmdastofnunarinnar sem var gefin út af stofnuninni sjálfri og ég að sjálfsögðu ber ábyrgð á og framkvæmdaráðið fullkomlega og ég er ekki að skorast undan því, alls ekki. Það vill svo til að túlkun hans á þessum skrifum í skýrslunni er í raun og veru það sem hann er að gagnrýna sjálfur. Þessi kafli er tekinn innan úr skýrslunni og hann lýkur ekki að gera grein fyrir því hvernig niðurlag kaflans er í skýrslunni, og það er mikill galli, vegna þess að það skýrir í raun og veru þann misskilning sem um er að ræða í hans ræðu. Skýrsla Framkvæmdastofnunarinnar að þessu leyti til fjallar einmitt um að það er kvartað yfir því að það skuli ekki vera tök á að gera heildstæða áætlun, og þar er átt við einmitt áætlun um þróun þjóðarbúsins, ekki aðeins atvinnulífið í landinu, heldur einnig opinberar framkvæmdir. Þetta er nákvæmlega sama atriðið og ég hef verið að lýsa hér í ræðum mínum og greinum sem ég hef skrifað um Framkvæmdastofnunina, að það sé þörf á því við endurskoðun laganna einmitt að setja ákvæði um gerð sérstakrar fjárfestingaráætlunar, sem sumir hafa kallað þak, setja þak yfir framkvæmdir, gera áætlun til eins árs og jafnvel e. t. v. áætlanir til lengri tíma um heildarframkvæmdir í landinu. Án þess að ég ætli við þetta tækifæri að fara að ræða nánar um þá endurskoðun, sem stendur yfir á löggjöfinni um Framkvæmdastofnunina, og þær till., sem við fjórir þm., sem vorum tilnefndir af hálfu ríkisstj. til þess að gera till. — án þess að ég ætli að ræða sérstaklega um það mát vil ég þó geta þess að það eru einmitt till. af okkar hálfu í þessa átt, í okkar till. sem eru til meðferðar hjá ríkisstj.
Ég tel mjög þýðingarmikið að það verði komið á þeirri skipan að gera sérstaka fjárfestingaráætlun fyrir hvert ár í senn, sem sé byggð á því að ekki sé ráðist í meiri fjárfestingar í heild en framkvæmdageta þjóðarinnar stendur undir og fjármagn. Og ég tel eðlilegt að það séu nokkrar stofnanir sem hafi það verkefni með höndum að vinna þetta verk, þ. á m. Framkvæmdastofnunin, Þjóðhagsstofnunin sem gerir þjóðhagsspá fyrir næsta ár, eins og kunnugt er, eða þjóðhagsáætlun, fjmrn. sem hefur að sjálfsögðu með að gera opinberar framkvæmdir og Seðlabankinn sem kemur við sögu varðandi fjármögnun, lánsfjármögnun til slíkrar fjárfestingaráætlunar. En hún gengur út á það einmitt, greinin eða sá kaflinn sem er í skýrslu Framkvæmdastofnunarinnar og hér hefur verið vitnað til, að það sé þörf á heildstæðri áætlunargerð sem nái einnig yfir opinberar framkvæmdir. Sá hluti skýrslu Framkvæmdastofnunarinnar, sem hv. 4. þm. Reykn. sleppti úr sinni ræðu, e r svona, þ. e. framhaldið á eftir punktinum sem hann setti í sína tilvitnun:
„Játa ber að kerfi heildstæðrar áætlunargerðar verður aðeins byggt upp á alllöngum tíma og í samvinnu við fjölmarga hlutaðeigandi aðila og haga verður útfærslu þess af verulegum sveigjanleika og tilliti til lýðræðislegrar málsmeðferðar og sérstakra stjórnvalda hvers málaflokks. En einmitt þess vegna er brýnt að setja starfinu sem fyrst raunhæf markmið og taka það frá upphafi heildstæðum tökum, þótt síðar verði fyllt nánar upp í myndina.“ Og síðan segir: „Þrátt fyrir þá annmarka á aðstöðu áætlunargerðar, sem hér hefur verið að vikið, hefur verulegur árangur náðst í áætlunarstarfinu og verður nú gerð grein fyrir því í nánari atriðum.“
Ég tel miður að túlkun á þessum kafla í skýrslu Framkvæmdastofnunarinnar, sem er gerð á ábyrgð framkvæmdaráðsins, skuli verða á þessa leið og vek athygli á því að þessi kafli skýrslunnar fjallar einmitt um nauðsynina á að gerð verði heildstæð áætlun um þær framkvæmdir sem þjóðarbúið ræðst í í víðtækri merkingu á hverjum tíma. Það þarf svo ekki að eyða að því orðum að það, sem menn meina með gerð fjárfestingaráætlunar, er auðvitað að það sé undirbúningsverk sem síðan verði lagt fyrir ríkisstj., undirbúningsverk unnið til þess að auðvelda ríkisstj. að taka ákvörðun um hvað verði ráðist í miklar framkvæmdir á tilteknu tímabili, og þá jafnframt að leggja mat á það, úrslitamat, hvaða framkvæmdir skuli hafa forgang, því að ef menn hugsa sér að gera slíka áætlun eða setja þak á framkvæmdir, eins og það er orðað af ýmsum, þá fer ekki hjá því að jafnhliða verður að sjálfsögðu að taka ákvarðanir um það, hvað eigi að vera undir þakinu, hvað eigi að vera inni á áætluninni á tilteknum tíma.
Síðan segir hv. 4. þm. Reykn. í sinni ræðu og lýkur sinni ræðu á því, með leyfi hæstv. forseta:
„Almennt talað vil ég segja að því miður hefði reynslan af starfi Framkvæmdastofnunar ríkisins ekki orðið sú sem ýmsir vonuðu í byrjun. Það er staðreynd að þótt hverfa hafi átt frá handahófskenndri uppbyggingu atvinnulífs í landinu, eftir að hún komst á fót, og hverfa til skipulegri vinnubragða, þá hefur geisað óðaverðbólga nær allan tímann, m. a. vegna þess að lítil sem engin stjórn hefur verið á heildarframkvæmdum í landinu undanfarin ár.“
Ég hef sagt það áður og vil gjarnan endurtaka það hér, að ég held að það sé rétt að íslendingar hafi færst of mikið í fang í einu. Ég er þeirrar skoðunar. Þess vegna einmitt álit ég þörf á að það verði horfið að því skipulagi að gera fjárfestingaráætlun sem miðist við framkvæmdagetu og fjáröflunarmöguleika.
En þegar rætt er um verðbólguna í landinu og einstakar stofnanir, þá fer náttúrlega ekki hjá því og er skylt að geta mjög örlagaríkra atriða sem hafa haft feiknaleg áhrif á verðbólguþróunina hér í landinu, þó að ein af þeim ástæðum sé sú að við höfum færst of mikið í fang í einu. Það verður að minnast á mál eins og t. d. Vestmannaeyjagosið, en Þjóðhagsstofnunin sagði í sínum Þjóðarbúskap árið eftir að Vestmannaeyjagosið hófst að það hefði haft mikil áhrif á þensluna í íslenskum efnahagsmálum. Það verður að minnast á mál eins og olíukreppuna. Ég hef látið rannsaka hvað ársnotkun af olíuvörum, ef undan er skilið flugvélabensin, kostar á árinu 1975 eða um þessar mundir, og gert samanburð á því hvað sama magn hefði kostað árið 1973, og niðurstöðutölurnar eru þessar: Árið 1973 hefði þetta tiltekna magn af olíuvörum kostað 19 millj. 201 þús. Bandaríkjadollara. Sama magn kostar nú á árinu 1975 53 millj. 499 þús dollara, og í íslenskum krónum er mismunurinn nærri því 6 milljarðar. Það kostar nærri því 6 milljörðum meira á þessu ári að kaupa sama magn of olíuvörum og á árinu 1973. Auðvitað fer ekki hjá því að þessi staðreynd hefur haft mjög mikil áhrif á verðbólguþróunina í landinu. Það er vert að geta þess einnig að afleiðingarnar af olíukreppunni, ekki aðeins hækkun á erlendum vörum til landsins, heldur einnig það sem gert hefur verið hér innanlands, hefur haft áhrif í þessum efnum. Menn hafa t. d. hraðað sér meira en áður var í því efni að byggja upp hitaveitur, hagnýta heita vatnið, til þess að minnka innkaup til landsins af olíuvöxtum. Og menn hafa einnig af þessum ástæðum hraðað meira en áður byggingu stórra raforkuvera í landinu, einnig til þess að tryggja það að við íslendingar verðum ekki eins háðir innflutningi á olíuvörum og áður hefur verið. Það er ekki hægt að ræða þessi málefni án þess að minnast á þessa stóru þætti sem hafa haft mjög mikil áhrif á þróun efnahagsmála í landinu á undanförnum missirum. Það er einnig ástæða til þess að minnast á kjarasamningana í febr. 1971, sem báðir aðilar hafa viðurkennt hreinskilnislega frammi fyrir allri þjóðinni í sjónvarpi að hefðu verið verðbólgusamningar og voru náttúrlega miklu, miklu hærri en efnahagstíf þjóðarinnar fékk risið undir.
Ég er sammála því, sem komið hefur hér fram, að það sé ástæða til að standa að enn meiri heildstæðri áætlunargerð en verið hefur, og það er einmitt það sem átt er við í skýrslu Framkvæmdastofnunarinnar þegar hún ræðir þessi málefni. En það má ekki taka einstaka kafla, eins og hv. 4. þm. Reykn. gerði, og slíta þá úr eðlilegu samhengi og túlka þá síðan á sína vísu.
Það væri ástæða til þess að minnast nokkuð sérstaklega á ræðu hv. 9. þm. Reykv., Gylfa Þ. Gíslasonar. Það kom margt fram í henni sem ég hefði ástæðu til þess að ræða. En með tilliti til þess að vonandi gefst tækifæri til að ræða þessi mál nánar þegar frv. ríkisstj. liggur fyrir hv. Alþ., mun ég aðeins minnast hér á eitt eða tvö atriði.
Ég hlustaði með athygli á það, þegar hv. 9. þm. Reykv. var að ræða um að það hefði verið „prinsip“ hjá honum alla tíð að koma í veg fyrir að stjórnmálamenn tækju ákvarðanir um útlán. Ég man ekki betur en að við sætum saman í stjórn Framkvæmdasjóðs Íslands á sínum tíma, og þá var hann í ríkisstj. og mikill valdamaður. Og ég man ekki betur en þar væru samþykktar lánveitingar til einstakra aðila af eintómum stjórnmálamönnum, nema þá kannske helst mér, sem þá var ekki þm. Þar var hv. 9. þm. Reykv. í stjórn, þar var hæstv. fyrrv. forsrh. Jóhann Hafstein, þar var Eysteinn Jónsson, þar var Lúðvík Jósepsson og þarna var samþykkt — (Gripið fram í.) Ekki 20 ár síðan, þetta mun hafa verið 1968. Við skulum minnast á fleira, við skulum minnast á Atvinnujöfnunarsjóðinn. Stjórn Atvinnujöfnunarsjóðs var skipuð stjórnmálamönnum, ég held eintómum stjórnmálamönnum, og ég man ekki til þess að hv. 9. þm. Reykv. hafi gert sérstaka aths. við það á þeim tíma sem hann var valdamaður í landinu að það væri eitthvað sérstakt athugavert við að stjórn Atvinnujöfnunarsjóðs tæki ákvarðanir um útlán sjóðsins. (GÞG: Það gerði ég.) Það kann vel að vera. Ég man ekki til þess, en það kann vel að vera.
Varðandi framkvæmdaráðið sérstaklega og bankastjóra, þá er sá mikli munur á störfum bankastjóra og framkvæmdaráðsmanna að bankastjórarnir ákveða sjálfir útlán. Bankaráð þjóðbankanna koma þar hvergi nærri og hafa ekkert með útlán að gera. Aftur á móti í Framkvæmdastofnun ríkisins eru öll útlán samþykkt og ákveðin af stjórninni, en framkvæmdaráðið hefur tillögurétt. Ég skal viðurkenna það fúslega að það er mikill réttur fólginn í því að hafa tillögurétt, það er alveg rétt. En eigi að síður er þetta staðreynd, að þegar framkvæmdaráðsmenn gera till. eða undirbúa till., þá verða þeir að ganga fyrir stjórnina og leggja þar fram sín mál og gera grein fyrir sínum till. Stjórnarandstöðuflokkar eiga setu í stjórninni og hafa auðvitað tækifæri til þess að koma að gagnrýni og rökum í sambandi við hverja einustu till. um lánveitingu sem þar er borin fram. Á þessu er þess vegna reginmunur varðandi starf framkvæmdaráðsmanna og bankastjóra.
Hv. 3. þm. Austurl. gerði nokkra grein fyrir samanburði á útlánum Byggðasjóðs fyrr og nú. Sá samanburður stafar ákaflega mikið af þessu, að framlög til Byggðasjóðs á þessu ári nema frá ríkinu 860 millj., en hefðu numið að óbreyttu fyrirkomulagi 295 millj., þannig að það er ósköp eðlilegt að útlán Byggðasjóðs séu meiri á þessu ári en þau voru áður, eftir að hann hefur svo mjög verið styrktur, þannig að það er hæpið að gera samanburð á þessu tvennu án þess að gera því skil.
Varðandi samskipti lánadeildar Framkvæmdastofnunarinnar og viðskiptabankanna vil ég upplýsa að það eru mikil samskipti þar á milli, og í sambandi við lán úr Byggðasjóði fer fram veruleg samræming á þeim útlánum og útlánum annarra fjárfestingarlánasjóða, eins og t. d. Iðnlánasjóðs, Iðnþróunarsjóðs í sumum tilfellum, náttúrlega Fiskveiðasjóðs og Stofnlánadeildar landbúnaðarins. Það fer fram veruleg samræming á þessari starfsemi í mörgum tilfellu:n. Sama er að segja um þjóðbankana sjálfa, mikil samvinna, eins og vera ber, á milli þessara stofnana.
Hæstv. forseti. Ég held að ég láti máli mínu lokið, þó að það séu ýmis atriði sem ég hefði vissulega áhuga á að gera frekar að umræðuefni, en fæ e. t. v. færi á að gera það síðar.