26.04.1976
Efri deild: 90. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3244 í B-deild Alþingistíðinda. (2669)
73. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins
Helgi F. Seljan:
Herra forseti. Ég skrifaði undir þetta nál. með fyrirvara. Ég hefði að sjálfsögðu sem fyrri flm. þessa frv. kosið að fá það samþ. Ég geri mér hins vegar ljóst og hef tekið það skýrt fram, þegar ég hef flutt framsögu fyrir þessu máli, að hér er um veigamikla breytingu að ræða og áreiðanlega ekki að henni hlaupið. Ég fagna því hins vegar að þetta er í fyrsta sinn sem þetta mál fæst afgr. héðan úr d., þó með þessum hætti sé. Það stafar auðvitað af því að þetta er í fyrsta sinn, sem húsnæðismálastjórn hefur svarað félmn. og afgr. frá sér sitt álit til hennar um þetta frv.
Ég hlýt að fagna því að húsnæðismálastjórn hefur þarna vaknað til umhugsunar um þetta mál. Ég segi: vaknað, vegna þess að það kemur í ljós af því, sem formaður félmn., hv. þm. Þorv. Garðar Kristjánsson, las hér upp áðan, að húsnæðismálastjórn er út af fyrir sig jákvæð gagnvart hugmyndinni sem slíkri, og ég veit reyndar öllu meira um það en það sem segir í þessu bréfi, því að ég veit að uppi eru mjög ákveðnar hugmyndir hjá húsnæðismálastjórn um a.m.k. tvö útibú frá stofnuninni sem tilraun, þó að þau yrðu ekki í sama formi og ég gerði ráð fyrir og yrðu miklu takmarkaðri. Ég vil hins vegar segja það varðandi þá endurskoðun sem hér er vitnað í, að hún hefur nú gengið ansi hægt fyrir sig og ég hef ekki trú á því að henni verði lokið fyrir næsta þing og þá er auðvitað alltaf möguleiki á að vekja þetta mál upp að nýju. En reyndar sáum við það nú í bréfi félmrh. í morgun, að þar var gert ráð fyrir því, að mig minnir, að þessari endurskoðun yrði lokið í sumar eða í haust. Við skulum vona að það verði og húsnæðismálastjórn hafi þá sent þetta mál það jákvætt til þessarar endurskoðunarnefndar og hún svo aftur verði það jákvæð gagnvart þessari útibúahugmynd að eitthvað a.m.k. komi út úr till. n. sem ég og aðrir, sem höfum barist fyrir þessu máli, getum sætt okkur við.
Ég vil aðeins taka það fram, þar sem kom fram ábending frá húsnæðismálastjórn um að það væri eðlilegt að tengsl yrðu við aðra opinbera þjónustu, að það hef ég vitanlega alltaf talið sjálfsagt. Ég tel að þessi útibú ein sér standi sig ekki nægilega vel, skipulagsmál og ýmislegt fleira þurfi þarna að koma inn líka. Það er einmitt tekið fram í frv. sjálfu og í grg. með frv. að þetta skuli framkvæmt þannig, svo að ég held að húsnæðismálastjórn þurfi engar áhyggjur af því að hafa að við höfum hugsað okkur þetta sem einangruð fyrirbæri sem ynnu að húsnæðismálunum eingöngu, heldur yrðu alveg sérstaklega skipulagsmálin og verkfræðiþjónusta ýmiss konar tekin þarna inn í um leið.
Ég sem sagt fagna því út af fyrir síg að n. hefur afgr. málið frá sér. Ég þekki góðan hug formanns n. til málsins og þykist vita þegar, ef þetta mál kemur jákvætt frá endurskoðunarnefndinni, að þá muni hann verða fyrstur manna til að greiða fyrir því að þetta mál náist í gegn hér á þingi. Ég sem sagt mun sitja hjá við atkvgr. um málið. Ég hefði að sjálfsögðu viljað fá frv. samþ., en sá ekki ástæðu til þess að óska eftir því í sérstöku nál.