06.11.1975
Neðri deild: 14. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 434 í B-deild Alþingistíðinda. (272)
33. mál, ríkisreikningurinn 1973
Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen) :
Herra forseti. Frv. til l. um samþykkt á ríkisreikningi fyrir árið 1973 liggur hér fyrir á þskj. 36. Einnig hefur verið lagt fram frv. til fjáraukalaga vegna sama árs og verður gerð sérstök grein fyrir því í Sþ.
Aðalyfirlit A-hluta ríkisreiknings fyrir árið 1973 var afhent þm. vorið 1974 og ríkisreikningurinn í heild með sundurliðuðum yfirlitum A-hlutans og öllum yfirlitum B-hlutans frágenginn af hálfu ríkisbókhaldsins til meðferðar hjá yfirskoðunarmönnum Alþ. afhentur þm. í okt. 1974. Yfirskoðunarmenn gerðu fyrirspurnir í 7 liðum og birtu auk þeirra yfirlit um viðskipti embætta við ríkissjóð samkv. bókhaldi ríkisbókhaldsins fyrir árið 1973 með hliðstæðum hætti og áður hefur verið gert. Svör við þeim fyrirspurnum telja yfirskoðunarmenn ýmist fullnægjandi eða rétt að viðkomandi atriði verði til athugunar. Till. sínum skiluðu yfirskoðunarmenn í maímánuði s. l. og vannst því ekki tími til þá að taka reikninginn til meðferðar hér á Alþ., en honum var hins vegar dreift meðal þm. Ég leyfi mér að vísa í aths. og till. yfirskoðunarmanna í ríkisreikningi og tel ekki ástæðu að svo stöddu til að gera sérstaka grein fyrir þeim.
Við 1. umr. fjárlagafrv. fyrir árið 1975 gerði ég grein fyrir afkomu ríkisjóðs á árinu 1973 samkv. ríkisreikningi og lagði jafnframt fram grg. ríkisbókhaldsins þar um. Með fyrrnefndu frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1973 verður gerð grein fyrir helstu frávikum reikningsins og fjárlagaársins 1973 og því ekki ástæða til þess að rekja efni þess frv. að öðru leyti en því, að geta stærstu liða A-hluta ríkisreikningsins.
Ég vil vekja athygli á tveimur meginreglum við uppgjör A-hluta ríkisreikningsins samkv. núgildandi lögum, nr. 52 frá 1966, um ríkisbókhald, gerð ríkisreiknings og fjárlega, eins og ég reyndar gerði einnig við afgreiðslu ríkisreiknings fyrir árið 1972 fyrr á þessu ári. Önnur er sú, að álagðar tekjur og áfallin gjöld eru lögð til grundvallar við uppgjör rekstrarreikningsins, en ekki greiðsluhreyfing þessara líða, þ. e. innheimta tekna og útgreiðsla gjalda. Af því leiðir að í efnisyfirliti eru óinnheimtar tekjur meðal eignarliða og ógreiddar gjaldskuldbindingar meðal skuldaliða. Hin meginreglan er sú, að fjárfestingarútgjöld A-hlutans eru talin með gjöldum þess árs þegar til þeirra er stofnað, en þeim ekki dreift með afskriftum á þann árafjölda sem gert er ráð fyrir að fjárfestingin endist, eins og gildir um uppgjör fyrirtækja og sjóða ríkisins í B-hluta reikningsins.
Heildarniðurstaða rekstrarreiknings A-hluta ríkisreiknings fyrir árið 1973 var sú að gjöld námu 252 millj. 987 þús. kr. umfram tekjur. Gjöld rekstrarreiknings námu 25 milljörðum 129 millj. 413 þús. kr. Tekjur námu 24 milljörðum 876 millj. 426 þús. kr. Endurmatsjöfnuður var hagstæður um 28 millj. og 900 þús. kr. Samtala jafnaðarrekstrar og endurmatsreikninga var því óhagstæð um 224 millj. 87 þús. kr. og samsvarar aukningu skuldaliða umfram aukningu eignaliða í efnahagsreikningi án efnislegra fjármuna. Sú breyting kom fram í vergri stöðu sjóðs og óbundinna bankareikninga í ársbyrjun um 615 millj. 794 þús. kr., en um 301 millj. 96 þús. kr. að meðtöldum lánahreyfingum við Seðlabankann. Bætt staða annarra greiðslujafnaðarliða nam nettó 756 millj. 17 þús. kr. Í þeirri fjárhæð kemur fram aukning óinnheimts tekju-og eignarskatts um 471 millj. og 6 þús. kr. og söluskatts um 216 millj. 452 þús. kr. Á móti þessum greiðslujafnaðarliðum kemur lánajöfnuður. Hann fól í sér hækkun hlutabréfaeignar og stofnfjárframlaga um 52 millj. og 291 þús. kr. og skuldaaukningu vegna nýrra lántaka umfram afborganir og hreyfingu veittra lána um 731 millj. 299 þús. kr., ef áðurgreindur lánajöfnuður við Seðlabankann er talinn með greiðslujöfnuði.
Um það bil helming gjalda ríkisreiknings má rekja til þriggja þátta: Í fyrsta lagi framlög til Tryggingastofnunar ríkisins og Atvinnuleysistryggingasjóðs að fjárhæð 8 milljarðar 95 millj. 315 þús. kr. og eru þá markaðar tekjur meðtaldar, að fjárhæð 729 millj. 379 þús. kr. Í öðru lagi niðurgreiðslur á vöruverði 2 milljarðar 142 millj. 48 þús. kr. auk uppbóta á útfluttar landbúnaðarafurðir 518 millj. 340 þús. kr. eða samtals 2 milljarðar 660 millj. 388 þús. kr. Í þriðja lagi gjöld til vegamála 2 milljarðar 112 millj. kr. Þessir þrír þættir námu samtals 12 milljörðum 867 millj. 703 þús. kr. eða 51.2% af gjöldum A-hlutans. Gjöld skóla- og fræðslumála, er falla undir menntmrn., auk bændaskólanna námu 3 milljörðum 826 millj. 460 þús. kr. eða um 15% heildargjalda. Þessir 4 þættir námu því 2/3 hlutum gjalda A-hluta ríkisreiknings fyrir árið 1973.
Þrír stærstu liðir tekna á árinu 1973 voru almenn aðflutningsgjöld 6 milljarðar 328 millj. 139 þús. kr., söluskattur 5 milljarðar 715 millj. 793 þús. kr. og tekjuskattur 5 milljarðar 333 millj. 316 þús. kr., eða samtals 17 milljarðar 377 millj. 248 þús. kr., sem svarar til um 70% heildartekna A-hluta ríkisreikningsins árið 1973.
Ég mun ekki gera nánari grein fyrir niðurstöðutölum ríkisreiknings fyrir árið 1973. Fráviki reiknings og fjárlaga mun gerð grein fyrir við umr. um fjáraukalög í Sþ., eins og ég gat um áðan.
Ég leyfi mér, herra forseti, að leggja til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.