28.04.1976
Neðri deild: 91. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3321 í B-deild Alþingistíðinda. (2752)

99. mál, skráning og mat fasteigna

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Virðulegi forseti. Frv. það, sem hér er til umr. um skráningu og mat fasteigna, er fjórða tilraunin sem gerð hefur verið til samningar lagafrv. um málefni fasteignamats og skráningar í landinu, og er þetta í annað skipti sem frv. um þetta efni er lagt fyrir Alþ. Var hliðstætt frv. þessu lagt fyrir hæstv. Alþ. haustið 1973, en fékkst ekki afgr. úr þessari hv. d. fyrir lok þingsins vorið 1974, enda þótt ekki virtist á þeim tíma teljandi efniságreiningur um þá stefnu sem mörkuð var í því frv. Þess er nú fastleg.i vænst, ef frv. þetta verður að lögum, að það leysi til nokkurrar frambúðar úr þeim hnút sem málefni fasteignamatsins hafa verið í síðustu missiri.

Núgildandi aðalmat fasteigna 1970, sem þáv. fjmrh. staðfesti á árinu 1971, var gert skv. lögum nr. 28/1963, um fasteignamat og fasteignaskráningu. Skipulagslega var allur undirbúningur og framkvæmd aðalmatsins 1970 allt annað en verið hafði við fyrri möt, einkum hvað snerti gagnasöfnun sem var mun umfangsmeiri og viðtækari en áður hafði þekkst, sérstaklega í Reykjavík. Auk þess var gerð alvarleg tilraun til að láta matsfjárhæðir spegla raunverulegt gangverð eigna á þeim tíma sem matið miðaðist við, sem var og er gangverð fasteigna miðað við verðlag á fasteignum um áramótinu 1969 og 1970. Það, sem gerði kleift að ráðast í þá umfangsmiklu upplýsingasöfnun, sem áður hafði verið lýst, var að nýjasta tækni við vörsla og vinnslu slíkra gagna hafði gert meðhöndlun svo mikils magns upplýsinga viðráðanlega, bæði tæknilega og fjárhagslega. Hefur í framhaldi af því verið leitast við að halda við þessu upplýsingasafni eftir því sem frekast hefur verið kostur.

Lengi hafði þó verið ljóst að lagagrundvöllur aðalmats fasteigna 1970, þ.e.a.s. lög 28/1963, um fasteignamat og fasteignaskráningu, gæti ekki dugað sem frambúðarstefna um þróun þessa viðfangsefnis sem hefur geysimikla þýðingu fyrir fjölmarga aðila, þeirra á meðal sveitarfélögin í landinu, en upplýsingasafn þetta hefur m.a. verið grundvöllur álagningar fasteignaskatta skv. lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Var því hafist handa um tilraunir til samningar lagafrv. um þetta efni, eins og fyrr segir, og vonast ég fastlega til að árangur þeirra tilrauna, sem hér liggur fyrir í frv.-formi, hljóti samþykki Alþ. með þeim breyt. sem Alþ. telur rétt að gera á frv.

Öll þau verk, sem unnin hafa verið á þessu sviði, hafa átt þátt í að móta þá stefnu fjmrn. sem fram kemur í þessu frv. Er frv. að meginstofni til byggt á fyrra frv. um sama efni, sem fyrr var að vikið, en þó er í nokkrum atriðum um frávik að ræða, aðallega hvað snertir framkvæmd matsins sjálfs. Ég vil hins vegar undirstrika að þar sem frv. er nýsmíði á kerfi sem ekki hefur verið reynt, verður reynslan að skera úr um hvort einhverjar breytingar verði nauðsynlegar til að hin nýja tilhögun skili þeim árangri sem að er stefnt með frv. þessu.

Ég vil nú leyfa mér að fara nokkrum orðum um efnisinníhald frv. eins og það var lagt fram. Frv. felur í sér einfalt kerfi til að viðhalda og leiðrétta fasteignaskrá eins og hún er á hverjum tíma. Er framkvæmd skráningarinnar í meginatriðum látin byggjast á gagnasöfnun aðila sem þegar eru starfandi á því sviði og þurfa að skrá hjá sér sambærilegar upplýsingar hvort sem er. Er með þessu móti leitast við að komast hjá því að í landinu séu starfandi tvö upplýsingaöflunarkerfi sem hvort tveggja leitar fanga eftir sömu upplýsingum.

Í frv. felst m.a. sú breyt. frá gildandi lögum, að aðaláhersla væntanlegra laga hvílir á haldgóðri skráningu fasteigna og upplýsingum um þær, en mat á verðmæti þeirra kemur í annarri röð. Má segja að í gildandi lögum sé þessu öfugt farið, því að þar er ákvörðun um matsverðmæti fasteigna meginmarkmið laganna. Þessi áherslubreyting ber vott um að skráning upplýsinga um fasteignir hefur sívaxandi gildi fyrir æ fleiri aðila í nútímaþjóðfélagi, ekki einungis í sambandi við skattheimtu og fjármál, heldur og í vaxandi tengslum við önnur atriði, við stjórn málefna opinberra aðila, við áætlunargerð og skipulagsstarfsemi, í viðskiptum einkaaðila og við rannsóknir ýmiss konar. Með véltækri skráningu upplýsinga um fasteignir má fá margföld not af því upplýsingamagni sem safnað er um slíkar eignir, miðað við að slík vélvinnsla upplýsinganna væri ekki fyrir hendi.

Í stað þeirrar tilhögunar, sem ríkir skv. gildandi lögum, að fram fari aðalmat fasteigna á vissu árabili, sem haldið sí uppi af millimatskerfi þess á milli, gerir frv. þetta hins vegar ráð fyrir sífelldri matsstarfsemi, þ.e.a.s. að eignir skuli teknar til mats jafnharðan og þær verða til eða breytast. Þess er vænst að slík samfelld matsstarfsemi leiði til þess að skráning og verðmætismat fasteigna sé á hverjum tíma eins nálægt sanni og kostur er, auk þess sem hún gerbreytir upplýsingagildi matsins og verður nánast að teljast kostur í sjálfu sér. Er með því jafnframt opnaður sá möguleiki að fasteignamatið geti komið í stað annarra mata á ýmsum sviðum sem fram fara í þjóðfélaginu og hægt verði að nota það í verðmætissviðunum öðrum en þeim sem hefðbundin notkun fasteignamatsins hefur hingað til takmarkast við.

Af þessu leiðir að horfið er frá því millimatskerfi sem gilt hefur skv. ákvæðum eldri laga, en í stað þess er gert ráð fyrir að Fasteignamat ríkisins annist mat fasteigna. Á hinn bóginn er gert ráð fyrir heimild ráðh. til að komið verði á fót sérstöku trúr.aðarmannakerfi eftir kjördæmum sem aðstoði Fasteignamat ríkisins við mat eða skoðun fasteigna. Eru allar líkur á því að nauðsynlegt sé að koma á fót slíku kerfi. En rétt þótti að binda ekki uppsetningu um of í lögum, heldur hafa möguleika á vissum sveigjanleika í þessum efnum eftir því sem .þörf krefði og reynslan skæri úr um.

Sú breyting er og í frv. frá ákvæðum gildandi laga hvað snertir skipun yfirfasteignamatsnefndar, að í stað þess að n. skuli skipuð af ráðh. beint er gerð tillaga um að skipun fari þannig fram, að ráðh. skipi n. úr hópi 10 manna sem Hæstiréttur tilnefnir. Felur þessi breyt. í sér tilraun til þess að flytja matsstarfsemi með þessum hætti á einn tað í stað þeirra fjölmörgu aðila sem fást við mat fasteigna með mjög ósamræmdum hætti eftir sérstakri dómkvaðningu hverju sinni.

Ekki er gert ráð fyrir að kostnaður ríkissjóðsins vegna starfsemi Fasteignamatsins aukist frá því sem verið hefur. Þó má búast við auknum kostnaði vegna sérskráningar sérgreindra eignarhluta fasteigna skv. 2. gr. frv., en Alþ. hefur sýnt á því áhuga að af því geti orðið og er slík sérskráning sérgreindra eignarhluta forsenda álagningar fasteignagjalda eftir eigendum. Á móti kemur hins vegar að kostnaður við millimatskerfi fellur niður. Það, sem hins vegar ætti að tryggja að kostnaður við rekstur stofnunarinnar fari ekki fram úr því sem fjárlög gera ráð fyrir, er sérstakt ákvæði sem kveður á um að verðlagning á þjónustu Fasteignamatsins skuli miðast við að endurheimta kostnað stofnunarinnar að því marki sem fjárlög á hverjum tíma gera ráð fyrir. Skv. fjárlögum ársins 1976 er gert ráð fyrir að kostnaður Fasteignamatsins nemi 31 millj. kr.

Á þskj. 505 er að finna brtt. fjh.- og viðskn. Ed. sem gert hefur þó nokkrar breyt. á frv. að fenginni ítarlegri umsögn nokkurra aðila og í samráði við há aðila sem hafa að máli þessu unnið. Ekki er þó um neina grundvallarbreytingu að ræða, heldur fyrst og fremst breytingar sem miða að fyllri og skýrari ákvæðum, auk þess sem horfið er frá þeirri nafnbreytingu sem frv. gerði upphaflega ráð fyrir. Gert er ráð fyrir að nafn stofnunarinnar: Fasteignamat ríkisins, haldi sér í stað þess að taka upp nafnið Fasteignaskrá. En hér er fyrst og fremst e.t.v. um smekksatriði er að ræða sem ekki skiptir neinu meginmáli.

Ég vil nú drepa fáeinum orðum á helstu breytingar á frv. eins og það hefur borist frá hv. Ed. til hv. Nd.

Í 2. gr. frv. er gerð sú breyt. hvað snertir skráningu sérgreindra eignarhluta mannvirkja, að hví aðeins fæst sérgreindur eignarhluti skráður að fyrir liggi skipting og eignarhlutföll í þinglýstum heimildum. Þótti nauðsynlegt að setja inn þessa takmörkun af framkvæmdaástæðum.

Á 3. gr. er gerð sú breyt. að felld er niður úr frv. upptalning á þeim atriðum sem skráð skyldu um fasteignir, en í stað þess er gert ráð fyrir að skráningaratriði þessi verði talin upp í reglugerð sem selt verður. Ástæða þessarar breyt. var sú, að þó nokkrar aths. bárust hv. fjh.- og viðskn. Ed. Alþ. sem lutu ýmist að því að inn í upptalninguna vantaði atriði ellegar að skráningaratriðum væri ofaukið. Þótti rétt að tefja ekki framgang málsins, enda er hér fyrst og fremst um tæknileg atriði að ræða, að gera fyrrgreinda breyt. á 3. gr. Við setningu reglugerðar um þetta efni yrði tekið tillit til þeirra sjónarmiða sem fram hefðu komið, eftir því sem efni stæðu til.

Á 6. gr. frv. hefur verið gerð sú breyt. að ráðh. er fengin heimild til að fela öðrum opinberum aðila, þ. á m. einstökum sveitarfélögum eða samstarfsstofnunum þeirra, skráningu fasteigna skv. lögum þessum ef slík breyting þykir hagkvæm. Raunar var efnislega hliðstætt ákvæði í upphaflega frv., en rétt þótti að taka af öll tvímæli um heimild ráðh. til slíkra breytinga. Er þá einkum haft í huga að þéttbýlissveitarfélögin gætu hugsanlega tekið að sér skráningu á upplýsingum um fasteignir.

Í 8. gr. er gerð sú breyt. að fjölgað er þó nokkuð þeim aðilum sem eiga skuli sæti í ráðgjafanefnd þeirra aðila sem nýta eða nýtt geta skrána við starfsemi sína.

Í frv. hefur verið tekin ný gr., sem verður 16. gr. Fjallar greinin um eignir sem eru undanþegnar fasteignamati. Er greinin að mestu leyti samhljóða ákvæðum gildandi reglugerðar um þetta efni. En nauðsynlegt þótti til að fyrirhyggja allan misskilning síðar meir að kveðna nánar á um hvaða eignir væri um að ræða, auk þess sem ráðh. er veitt heimild með setningu reglugerðar til að undanþiggja ákveðnar fasteignir eða tegundir fasteigna fasteignamati.

Skv. brtt. þeim, sem Ed. hefur samþ., er í 17. gr. frv. fellt niður ákvæði sem fjallar um hlunnindamat, þ.e. hvernig ákveðin hlunnindi skuli metin. Í stað þess er gert ráð fyrir að ákvæði þar að lútandi yrðu sett af ráðh. í reglugerð svo og um önnur þau atriði sem nauðsyn krefur.

Virðulegi forseti. Ég hef nú nokkuð reifað aðdraganda, efnisinníhald og þær brtt., sem hv. Ed. hefur samþ. við frv. til l. um skráningu og mat fasteigna. Við meðferð málsins í Ed. voru haldnir sameiginlegir fundir í fjh.- og viðskn. beggja d. og ætti það að auðvelda og flýta fyrir afgreiðslu þessarar hv. d. á máli þessu. Vonast ég fastlega til og legg á það áherslu að mál þetta fáist afgr. áður en Alþ. það, er nú situr, lýkur störfum.

Ég legg svo til að frv. verði að þessari umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.