29.04.1976
Efri deild: 92. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3359 í B-deild Alþingistíðinda. (2776)

210. mál, orlof

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Við höfum einróma í þessari hv. d. samþ. afbrigði um brtt. bornar fram af hv. þm. Albert Guðmundssyni, of seint fram komnar. Þar með ætla ég að við höfum fallist á að það sé við hæfi að við ræðum þær og þær fái þinglega meðferð.

Ég sætti mig ekki við að það bindi hendur hv. Alþ. hvers konar samkomulag hefur verið gert á milli aðila vinnumarkaðarins um einstök mál, um einstök atriði lagafrv., áður en þau koma hér til meðferðar.

Séu brtt., sem lagðar eru fram við frv., þó stjórnarfrv. séu, sem aðilar vinnumarkaðarins hafa komið sér saman um, — séu þessar brtt. að okkar dómi til bóta, þá eigum við ekki að þurfa að hafa áhyggjur af því hvers konar skuldbindingar ríkisstj. hefur tekist á herðar varðandi afgreiðslu þessara mála. Það er hugsanlegt að ríkisstj., svo sem eins og sú sem nú situr eða aðrar álíka, takist á herðar skuldbindingar sem hv. Alþ. þykja óhæfilegar og ósæmilegar.

Ég hafði hugsað mér, þegar ég bað um orðið, að fara þess á leit að þessari hv. d. gæfist frestur til þess að athuga brtt. Alberts Guðmundssonar fyrst búið er að taka bær til greina hér með afbrigðum. Að vísu skal ég játa að hv. síðasti ræðumaður, Helgi F. Seljan, hann skýrði þær að verulegu leyti fyrir mér í ræðu sinni áðan. En eigi að síður fer ég nú þess á leit að okkur gefist tími til þess að hugleiða þessar brtt. Alberts.