29.04.1976
Efri deild: 92. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3361 í B-deild Alþingistíðinda. (2778)
210. mál, orlof
Utanrrh. (Einar Ágústsson):
Herra forseti. Hér hafa nú orðið allathyglisverðar umr. um frv. til l. um orlof og ég skal ekki tefja tíma deildarinnar óhæfilega með frekari umr. um það. En ég hefði gjarnan kosið að þessar till. hefðu komið fyrr fyrir augu mín og kannske okkar fleiri svo að okkur hefði gefist tóm til að hugleiða það sem í þeim felst. Hér hafa verið gefnar skýringar á því hvers vegna það var ekki, og ég blanda mér ekki í þær deilur og gagnrýni það ekki heldur á neinn hátt að við 3. umr. máls komi fram brtt., það er algengt. En hér eru allviðamiklar brtt. á ferðinni, og þess vegna hallast ég að því, sem hv. 5. þm. Norðurl. e. gerði að sinni till., að við þyrftum ekki endilega að greiða atkvæði um þessar till. í dag, við fengjum aðeins að skoða þær.
Hitt er svo annað mál, að við fljótlega yfirsýn er ég nú ekki samþykkur sumum þessara till. T.d. það, sem hv. 12, þm. Reykv. sagði um 13. gr. og 14. gr., það fellur ekki í þann farveg sem ég hafði hugsað mér að orlof ætti að vera í. Ég tel að orlofslögin séu til þess sett að fólk raunverulega taki leyfi, en ekki kaupuppbót, og þess vegna lít ég svo til, að þessar greinar séu eðlilegar, og vísa í því sambandi til ræðu sem ég hlýddi á hv. 7. landsk. þm. halda hér rétt áðan.
En það er fleira í þessum till., brtt. hv. 12. þm. Reykv., sem mér finnst athyglisvert, eins og t.d. það, að lausráðið starfsfólk fái orlof sitt greitt um leið og annað kaup, því að ella er hætta á því að vanskil verði og alla vega umsvifasamt og kannske nokkrum erfiðleikum háð að innheimta það síðar.
En aðalerindi mitt hingað var að fara þess á leit við hæstv. forseta að gefa okkur eins og dags frest til þess að hugleiða þær brtt. sem hér eru bornar fram. Að vísu er hér um stjórnarfrv. að ræða, og ég mun hafa fallist á það í þessari ríkisstjórn, svo að ég noti nú orðalag hv. 5. þm. Norðurl. e., að það yrði flutt eins og það var. En ég tek það ekki þannig að hafi ég þar með skilyrðislaust fallist á að samþykkja frv. óbreytt og hafna öllum brtt., hversu góðar sem þær kynnu að vera, enda hefur nú sú orðið raunin á, að við höfum þegar breytt. frv. frá því sem það var lagt fram. En þetta eru sem sagt tilmæli mín til hæstv. forseta, að við þurfum ekki að greiða atkvæði í dag um frv., því að ef að það verður tekið til atkvgr. nú, þá treysti ég mér ekki til að taka þátt í henni.