29.04.1976
Neðri deild: 92. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3378 í B-deild Alþingistíðinda. (2807)
254. mál, Fiskveiðasjóður Íslands
Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Ég vit þakka hv. þm., sem hafa talað hér, fyrir góðar undirtektir við þetta frv. og jafnframt fyrirheit um góða afgreiðslu málsins í nefnd.
En varðandi það, sem hv. 4. þm. Austurl. sagði um stjórn sjóðsins, þá getur auðvitað alltaf verið matsatriði hverjir skuli tilnefna í stjórn. En ég hygg að það teljist allmikil bylting, frá því að stjórn er skipuð 5 bankastjórum og er 5 manna stjórn og enginn annar og ekkert annað sjónarmið, að gera nú þá breytingu að leggja til að hagsmunaaðilar í sjávarútvegi fái 3 fulltrúa og bankarnir 3, tveir höfuðviðskiptabankar sjávarútvegsins og Seðlabankinn, og svo einn fulltrúi frá ríkisvaldinu eða ríkisstj. Ég held að það fari ekki á milli mála að Fiskveiðasjóður hefur nú síðustu árin, eftir að útlán jukust svo mjög, verið oft í mikilli fjárþörf, hefur þurft að bíða eftir fjármagni sem hann hefur átt að fá að láni, og hann hefur því fengið oft mjög góða fyrirgreiðslu hjá Seðlabankanum í því sambandi. Ég dreg mjög í efa að sú fyrirgreiðsla hefði orðið jafngóð ef ekki hefðu verið tengsl með þessum hætti á milli Fiskveiðasjóðs og Seðlabankans. Hitt er alveg rétt hjá hv. þm., það sem hann vitnaði í lög um Seðlabankann. En þá er þar við að bæta að tengsl Seðlabankans eða bankastjóra hans eru viðar en við Fiskveiðasjóð, t.d. í sambandi við raforkumálin, formaður Landsvirkjunar er seðlabankastjóri, formaður Rafmagnsveitna ríkisins er bankastjóri, þannig að ríkisvaldið hefur mjög oft og á margan hátt leitað til þessara manna um að taka að sér forustu og stjórnun mjög mikilvægra fyrirtækja. En fyrir þessu er ekki gert ráð, ekki hvað snertir bankastjóra Seðlabankans, í seðlabankalögunum, nema síður sé, eins og hv. þm. gat réttilega um.
Það geta auðvitað alltaf verið um það skiptar skoðanir hvernig stjórn í slíkum sjóðum eins og þessum á að vera skipuð. En ég legg á það mjög mikla áherslu að það verði ekki gerð breyting á þeirri gr. frv., sem fjallar um stjórn sjóðsins, og ég vænti þess að samkomulag náist um að þessi viðamikla breyting, sem gerð er frá núgildandi lögum, nái fram að ganga. Við þurfum á að halda samstarfi við bankana, og ég hygg að það sé engin gleði þar með þessa breytingu, hvað þá heldur að ganga lengra, sem ég er fyrir mitt leyti andvigur.