30.04.1976
Sameinað þing: 82. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3423 í B-deild Alþingistíðinda. (2824)
Varamaður tekur þingsæti
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Ég skal verða við tilmælum hæstv. forseta um að vera afar stuttorður, en það eru tvö atriði sem mér finnst nauðsynlegt að vekja athygli á í framhaldi af þeim umr. sem hér hafa orðið. Raunar tel ég þær löngu umr. sem hér hafa orðið, alveg óvenjulega langar, leiða skýrt í ljós að það var full ástæða til þess að hv. þm. Eggert G. Þorsteinsson bæri fram þá fyrirspurn sem hann bar fram. En þau tvö atriði, sem ég vil nefna, eru þessi:
Ég tel að þessar umr. hafi ekki leitt til þeirrar niðurstöðu sem þjóðin á heimtingu á að þær leiði til. Þing og þjóð eiga heimtingu á því að á því fáist hlutlaus skýring hvernig á því stendur að verðlagshækkanir hafa orðið meiri en launþegar og vinnuveitendur í góðri trú gerðu ráð fyrir þegar samningarnir voru gerðir. Þess vegna vil ég beina því til hæstv, ríkisstj., — ég ætlast ekki til þess að lengja þessar umr. með því að fá neitt svar við því á þessari stundu, — að hún gefi út skýrslu um hvað aðilum vinnumarkaðarins var sagt um væntanlegar verðhækkanir, sem auðvitað eru áætlun, við samningaborðið og það sé borið saman við það sem raunverulega hefur orðið að mati hæstv. ríkisstj. Ég held að það sé svo mörgum kunnugt, að alveg óhætt sé að segja það, að þeim helstu embættisstofnunum, sem um málið fjölluðu, bar ekki alveg saman í áætlunum sínum um væntanlegar verðhækkanir. Við því er ekkert að segja. Allir aðilar treysta þeim ágætu embættismönnum sem þar var um að ræða, forstjóra Þjóðhagsstofnunarinnar annars vegar og hagstofustjóra hins vegar. Enginn dregur í efa að það, sem þeir sögðu aðilum vinnumarkaðarins, var byggt á bestu fáanlegum upplýsingum og samkv. bestu þekkingu og auðvitað af heilum hug. En reynslan hefur orðið önnur en þarna var gert ráð fyrir. Þing og þjóð á rétt á því og það ættu að vera hagsmunir allra aðila að það sé skýrt hvernig á því stendur að þetta hefur ekki orðið eins og þar var gert ráð fyrir.
Hitt atriðið, sem ég vil vekja athygli á, er að svo virðist sem tæpur fjórðungur þeirrar verðhækkunar, sem orðið hefur frá 1. febr. til 1. apríl, sé hækkun á opinberri þjónustu og tæpur helmingur hækkun búvöru. Þetta gerir það að verkum að óhjákvæmilegt er að beina þeim eindregnu tilmælum til hæstv. ríkisstj. að hún efni það fyrirheit sitt sem hún gaf, þegar hún tók við völdum, að láta endurskoða frá grunni þá aðferð sem nú er beitt við verðlagningu landbúnaðarvöru. Nefnd hefur verið skipuð í þessu efni, en hún hefur ekki hafið störf. Það, sem gerst hefur nú alveg nýlega varðandi verð búvöru og Alþýðusambandið dregur sterklega í efa að hafi verið rétt, mér skilst að lögsókn sé hafin eða væntanleg, gerir það að verkum að þetta má ekki dragast. Og ég vil nota þetta tækifæri til þess að hvetja ríkisstj. eindregið til þess að leiða þetta mál sem fyrst til lykta.
Það voru þessi tvö atriði sem ég tel nauðsynlegt að komi inn í þessar mjög svo löngu umr. sem orðið hafa.