03.05.1976
Efri deild: 94. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3467 í B-deild Alþingistíðinda. (2857)

256. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins

Ingi Tryggvason:

Herra forseti. Það er nú vist skammur tími til ræðuhalda, en mig langar samt til að segja örfá orð í tilefni af frv. og ræðu hv. 12. þm. Reykv. Það er rétt, sem fram kom í máli hans, að ríkisstj. hefur að undanförnu framselt einkaleyfi til innflutnings á kartöflum til Grænmetisverslunar landbúnaðarins. Eftir því sem ég skil þetta frv., sem hér liggur fyrir, og málflutning flytjanda frv., þá er gert ráð fyrir að þetta einkaleyfi verði fellt niður og innflutningur á kartöflum og grænmeti gefinn frjáls.

Ég ætla mér ekki hér á þessum vettvangi að fara að deila almennt um hagkvæmni verslunarfrelsis og verslunartakmarkana. En ég vildi aðeins gera grein fyrir því hvers vegna þessi háttur er á hafður einmitt um kartöflurnar. Til þess liggja alveg sérstakar ástæður sem mér finnst nauðsynlegt að við höfum í huga þegar ákvarðanir eru teknar um þetta mál. Við vitum öll að Ísland liggur á norðurmörkum þess veðráttufars sem hentar til kartöfluræktar, þannig að kartöflurækt hér í landinu gengur mjög misjafnlega. Í góðum árum gengur hún vel, í lakari árum miður og jafnvel getur svo farið í einstökum árum að kartöfluuppskera bregðist hér að verulegu leyti. Þetta ástand veldur því auðvitað að kartöflurækt hér á undir ýmsum kringumstæðum erfiða samkeppnisaðstöðu við kartöfluræktarmenn í nágrannalöndum og þó lengra væri farið. Hins vegar er það svo, að einmitt þessi erfiða aðstaða veldur því líka að menn mundu alls ekki rækta hér kartöflur til sölu nema þeir hefðu nokkurn veginn öruggan markað fyrir framleiðslu sína. Ef það væri gefinn algjörlega frjáls innflutningur á kartöflum, þá mundi það leiða til þess að þegar góð kartöfluár væru í nágrenninu, þá fengjum við hingað ódýrar kartöflur og þær kartöflur ættu þá auðvelda samkeppni við innlenda framleiðslu. Ef aftur á móti harðnaði í ári í nágrannalöndunum eða af einhverjum ástæðum yrði þar skortur á kartöflum, þá þýddi þetta öfugt og við yrðum að borga hærra verð fyrir hina erlendu framleiðslu heldur en þá innlendu. Það er einmitt það sem gerist nú. Verð þeirra kartaflna, sem fluttar eru inn nú, er til muna hærra en það verð, sem Sexmannanefnd hefur ákveðið á innlendri kartöfluframleiðslu. En því miður er innlenda kartöfluframleiðslan nú um það bil öll að verða seld og alllangt síðan skortur varð á innlendum kartöflum í stórum landshlutum. Því er þess vegna á engan hátt að leyna að þessi háttur, sem hafður er á innflutningi kartaflna, er til þess gerður öðrum þræði að vernda hagsmuni framleiðenda. Jafnframt hefur svo verið í gildi löggjöf sem hefur átt að vernda hagsmuni neytenda. Ég hygg að að öllu samanlögðu megi segja að það hafi tekist a.m.k. mjög sómasamlega. Um það má þó vafalaust deila og örugglega má finna dæmi um að það hefði verið hægt að fá ódýrari kartöflur með einhverjum öðrum hætti eða einhvers staðar annars staðar að heldur en þær hafa verið keyptar. En samt sem áður hef ég hvergi séð nein fullnægjandi rök fyrir því að í heild hafi innkaupum Grænmetisverslunar landbúnaðarins verið óhaganlega fyrir komið.

Það ástand, sem nú ríkir á kartöflumarkaðinum, er talsvert óvenjulegt. Það hefur verið gerð grein fyrir því á opinberum vettvangi að innflutningur kartaflna til landsins, þeirra kartaflna sem hafði verið samið um kaup á, tafðist vegna frosta í Mið-Evrópu. Það voru fluttar kartöflur annars staðar að eða frá Mexíkó, og ég man ekki betur en það kæmu alveg sérstök meðmæli með þeim kartöflum fram í dagblöðum áður en þær voru fluttar hingað. Þær reyndust þó ekki góðar þegar til kom og voru skemmdar. Vafalaust er eitthvað að þeim kartöflum, sem nú eru fluttar frá Póllandi. Vafalaust má finna þar einhverjar skemmdir og ég get því miður ákaflega lítið dæmt um það af eigin reynd. Mér skildist að hv. flm. hefði af því heldur ömurlega reynslu, þar sem þær væru alls ekki borðaðar, eða mér fannst reikningsdæmið koma þannig út. Ég get sagt frá því til gamans að ég borðaði af þessum kartöflum í morgun í fyrsta skipti og þær voru bara góðar að mínum dómi. En ætli það sé ekki einmitt einn vandinn við þetta, að þær umsagnir, sem verið er að lesa hér úr blöðum, eru ærið misjafnar, líklega eins og mennirnir eru? Mig minnir að einn verslunarstjóri segði að það væri ekki hægt að segja að fólkið væri yfir sig ánægt eða yfir sig hrifið af kartöflunum. Mér finnst að þetta geti hljóðað sem lof um kartöflurnar, ég veit ekki hversu mikið lof, en þetta er vitanlega ekki ný uppskera og ekki eins góðar kartöflur og nýjar væru.

Það var aðeins minnst hér á fleiri atriði sem ég hef ekki tíma til að gera mikil skil. Það var t.d. minnst á pokana sem vissulega hafa verið mjög mikið gagnrýndir. Það hefur mjög oft verið rætt um þetta vandamál að velja umbúðir utan um þær kartöflur sem seldar eru, en niðurstaðan hefur þó alltaf orðið sú, að þrátt fyrir allt væru þetta hentugustu umbúðirnar, bréfpokarnir. Ef sú vara, sem í þeim er, er ónýt, þá er hægt að skila þeim. Hins vegar er það rétt, að kartöflurnar sjást ekki í pokunum. Þeir pokar, sem kæmu til greina og sýndu kartöflurnar, hafa ýmsa aðra ókosti. Þeir t.d. leka óhreinindum. þannig að kaupmenn eru tregir að hafa þá í verslunum sínum. Þeir eru miklu dýrari, þeir pokar sem hafa veríð á boðstólum af öðru tagi, og kartöflurnar þola lakar geymslu í ýmsum þessum umbúðum öðrum. Bréfið hefur þann kost að kartöflurnar geta andað þó þær séu í bréfinu. Þær eru þar í myrkri sem sömuleiðis er nauðsynlegt til þess að kartaflan geymist vel. Að öllu samanlögðu hafa þetta þó þótt hentugustu og ódýrustu umbúðirnar. Vel getur verið, að hægt sé að finna betri umbúðir, og væri ákaflega æskilegt að sem flestar upplýsingar um slíka hluti kæmu bæði til verðlagsyfirvalda og Grænmetisverslunar landbúnaðarins.

Það getur vel verið að þetta frv. sé ekki flutt til þess að skapa Grænmetisversluninni neinn vanda. Ég óttast þó að ef það yrði að lögum, þá mundi það skapa almennan vanda, ekki síður neytenda heldur en annarra. Það yrði óstöðugur markaður fyrir þessa vöru, við hættum að framleiða kartöflur sjálfir nema að mjög takmörkuðu leyti, yrðum öðrum háðir um innflutning á þessari vöru, fengjum vafalaust stundum bæði góðar kartöflur og ódýrar, aðra tíma fengjum við þær jafnvel kannske alls ekki eða það væru örðugleikar á því, og svona mætti lengi telja vankanta. Ég tel þó að það sé mjög mikilvægt öryggisatriði í okkar matvælaframleiðslu að viðhalda kartöflurækt og miða hana við það að við verðum í aðalatriðum sjálfum okkur nógir. En til þess að svo megi verða áfram, þá held ég að það sé óhjákvæmilegt að við tryggjum þeim mönnum, sem vilja framleiða kartöflur fyrir íslenska neytendur, — tryggjum þeim markað svo fremi þeir hafi á boðstólum góða vörn og framleidda fyrir markaðinn hér.

Ég orðlengi svo ekki meira um þetta að þessu sinni. Ég vil þó bæta því við, að mér finnst sjálfsagt að þetta frv. fái eðlilega meðferð þingsins og sé athugað. Þó að ég sjái á því ákveðna vankanta, þá er þetta mál sem marga skiptir, og mér finnst sjálfsagt að það sé athugað sem gaumgæfilegast og frá sem flestum hliðum.