03.05.1976
Efri deild: 94. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3473 í B-deild Alþingistíðinda. (2865)

152. mál, ljósmæðralög

Frsm. (Oddur Ólafsson):

Herra forseti. Heilbr.- og trn. Ed. hefur nú þriðja árið í röð, að mig minnir, haft til umfjöllunar frv. til l. um breyt. á ljósmæðralögum. Flm. frv. eru þm. Halldór Ásgrímsson og Helgi F. Seljan, og frv. þetta er flutt í þeim tilgangi að breyta og bæta stöðu ljósmæðra. Þetta kemur einkum fram í 1. gr.

frv. sem er breyting við 4. gr. ljósmæðralaga og hljóðar svo:

„Launakjör skipaðra ljósmæðra skulu ákveðin með kjarasamningum eða af kjaradómi á sama hátt og laun opinberra starfsmanna — Laun skipaðra ljósmæðra í kaupstöðum skulu greidd mánaðarlega úr bæjarsjóði. — Laun skipaðra ljósmæðra í umdæmum utan kaupstaða skal greiða að 1/3 hluta úr sýslusjóði og 2/3 hlutum úr ríkissjóði. Launin greiða sýslumenn ársfjórðungslega fyrir fram. — Skipaðri ljósmóður, sem falið er um stundarsakir að gegna nágrannaumdæmi, ber að greiða fyrir það byrjunarlaun þess umdæmis. —- Ríkissjóður leggur til. áhöld í ljósmæðraumdæmin, og ákveður landlæknir í samráði við skólastjóra og aðalkennara Ljósmæðraskóla Íslands, hver þau skuli vera.“

Í 2. gr. frv. segir:

„Ljósmóðir, sem skipuð er í starf samkvæmt lögum þessum, á rétt á orlofi ár hvert á sama hátt og aðrir opinberir starfsmenn.“

Sannleikurinn er sá, að ljósmæður hafa lengi setið við annað borð en flestir aðrir opinberir starfsmenn og ekki notið ýmissa þeirra hlunninda sem þeir hafa átt kost á. Þeir, sem viðurkenna þátt ljósmæðra í heilbrigðisþjónustu þessa lands frá upphafi, hafa gert sér grein fyrir að þetta var ósanngjarnt, þær hefðu einhvern veginn orðið eftir og nauðsynlegt væri að bæta úr því. Þess vegna hefur hæstv. heilbr.- og trmrh. haft mikinn áhuga á því að þetta frv. næði fram að ganga, og því er það að heilbr: og trn. Ed. er sama sinnis og leggur einróma til að frv. verði samþ. óbreytt.