04.05.1976
Efri deild: 95. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3513 í B-deild Alþingistíðinda. (2906)
243. mál, áfengislög
Flm. (Helgi F. Seljan):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um breyt. á áfengislögum, nr. 82 2. júlí 1969, sem við flytjum hv. þm. Oddur Ólafsson, Jón Helgason og Bragi Sigurjónsson. Þetta frv. er flutt í beinu framhaldi af nefndarskipan Alþ. á s.l. vori eða fyrir um það bil ári. Sú n. starfaði töluvert mikið á s.l. sumri, eins nú í vetur og lagði fram visst álit til þingflokkanna. Afleiðingin varð svo sú af þeim viðræðum eða niðurstaðan að mál n. yrði flutt í tvennu lagi, annars vegar í frv.-formi og hins vegar í þáltill: formi varðandi fræðsluþáttinn.
Ekki er það neitt efamál að í margvíslegum vanda hverrar þjóðar ber áfengisvandamálið einna hæst. Það snertir öll svið þjóðlífsins: heimilin, vinnustaðina, skemmtanalífið, dómsmálin. Jafnt kemur það við sögu æskunnar sem hinna öldruðu og hvarvetna getur það orðið hinn versti vágestur, orsakavaldur margs þess ógæfulegasta sem fyrirfinnst. Mannleg hamingja er viða að veði sett, mannslífið sjálft fær oftlega að lúta í lægra haldi, afbrotin eiga þar rætur sínar, slysin sömuleiðis og fórnardýr áfengísnautnarinnar verða að úrhrökum göturæsanna.
Engin prédikun á þetta að vera, en vart er unnt að hefja framsögu fyrir frv. um breyt. á áfengislögum án þess að minna um leið á vandann sjálfan, ógnvekjandi og sífellt vaxandi, svo mjög sem hann gegnsýrir þjóðlífið og veldur öllum hugsandi mönnum áhyggjum, hvaða afstöðu svo sem menn hafa annars til áfengisneyslu almennt. Ég mun leitast við að gera hér grein fyrir máli mínu án þess að það einkennist af eigin viðhorfi til þess. Sjálfur hef ég löngum velt fyrir mér hvað gera ætti. Oft hefur algjört bann verið efst í huga mér þegar hryggilegustu dæmin hafa komið upp. Oftar hef ég þó hallast að uppeldishliðinni, fræðsluþættinum, sem sterkasta bandamanninum gegn vá og voða ofneyslu áfengis. En oftast — og svo er í dag — hef ég staðið ráðvilltur og vonlítill gagnvart hrikaleiknum og fátt um það vitað hvað rétt væri og skynsamlegast og þá jafnframt árangursríkast. Eitt hefur mér þó ætíð verið ljósast alls: Viðhorf almennings í landinu, afstaða hans til málsins í heild hlýtur ævinlega að vera svo afgerandi að allar aðgerðir, öll framkvæmd hlýtur meira og minna að vera í samræmi við það almenningsálit sem ríkjandi er. Allar róttækar ráðstafanir t.d. þurfa og verða að eiga að baki sér sterkan vilja mikils hluta þjóðarinnar ef þær eiga að koma að haldi. Lagaákvæði, ströng og fyrirbyggjandi, verða dauður bókstafur einn ef framkvæmdir mótast af áliti sem gengur þvert á lögin, sem jafnvel er í því fólgið að því meir sem brotið er því betra.
Þegar við, sem kjörnir vorum í svokallaða áfengismálanefnd Alþingis, tókum til starfa á s.l. sumri var okkur öllum þetta fullljóst, og því beindist fyrsta starf okkar nær einvörðungu að upplýsingasöfnun annars vegar og könnun á skoðunum þess fólks víðs vegar um land sem að því vinnur að bægja frá þeim voða sem unnt er, þess fólks sem nýrra leiða vill leita. Sammála voru allir nm. um að taka þar af mið í framhaldi af svörum þessa fólks. Og á svörum stóð ekki og þar mátti finna fjölmargar skarplegar athugasemdir og tillögur og dýrmætar upplýsingar. Hér er ekki tími til að rekja þau svör að neinu ráði, en mig langar — með leyfi hæstv. forseta — að víkja lítillega að ýmsu sem þar kom fram, ýmist frá sérfræðingum eða því áhugafólki sem svaraði okkur.
Í bréfi frá áfengisvarnanefnd Siglufjarðar segir svo, með leyfi hæstv. forseta: „Síaukin áfengisneysla ungs fólks á aldrinum 13–20 ára verður æ meira áberandi. Fjölgun staða, þar sem áfengi er selt hömlulítið, áfengisútsölustaða, vínveitingastaða og vinveitingaleyfa til félaga og stofnana, fer sívaxandi, aukin áfengisneysla í skemmtanalífi, léleg og villandi meðferð og framkvæmd þeirra mála, er varða brot á áfengislögunum, og þeirra reglna, sem um þau hafa verið settar, vanræksla menntakerfisins á fræðslu og fyrirbyggjandi starfi innan skólanna á skaðsemi áfengisneyslu á einstaklinginn.“
Í bréfi frá Gæsluvistarhælinu í Gunnarsholti segir svo, með leyfi forseta: „Vænlegast til úrbóta tel ég að koma á fót skyndihjálpar- og leiðbeiningarstofnunum og samræma störf þeirra og annarra stofnana og hæla, sem þegar eru fyrir hendi, sem veita áfengissjúklingum hjálp. Ég tel að leggja verði meiri áherslu á aðstöðu á hælinu til endurhæfingar á vinnuþreki og mannræktun þeirra sem illa eru farnir vegna áfengisneyslu svo þeir geti orðið sjálfbjarga. Þá tel ég að mikla áherslu eigi að leggja á fræðslu um áfengisvandamál í skólum og fjölmiðlum.“
Í bréfi frá áfengisvarnanefnd Vestur-Ísafjarðarsýslu, Halldóri Kristjánssyni, segir svo um umfang áfengisvandamálsins, með leyfi forseta: „Ekki kann ég að leggja mat á umfang áfengisvandamálsins á Íslandi nú um sinn. Þyngst tel ég vega þar upplausn heimila og mannskemmdir sem þaðan stafa, þar sem fjöldi barna lifir við öryggisleysi og ósköp sem valda ævitjóni. Veit ég þó að slysadauði af völdum áfengis beinlínis er ekki minna en einn maður á viku hverri til jafnaðar auk þeirra sem verslast upp af hugstríði og hraklegu líferni. Tapaðar vinnustundir þeirra, sem kallað er að drekki hóflega eða án þess að teljast vandræðamenn, eru smámunir hjá þessu, og sama má sennilega segja um fjárhagslegt tjón af skemmdarverkum.“
Í umsögn Sigurbjarnar Einarssonar biskups segir um þetta vandamál: „Ég tel vandamálið umfangsmikið, hvað sem líður tiltækum tölfræðilegum upplýsingum um áfengisneyslu þjóðarinnar í heild í samanburði við aðrar þjóðir. Ég tel það óvefengjanlega staðreynd að fjöldi einstaklinga neytir áfengis sér og sínum til alvarlegs skaða. Þyngst vegur að mínu mati það að áfengisneysla kvenna og unglinga hefur bersýnilega stóraukist að undanförnu. Drykkfelldir feður hafa alltaf verið til. Nú er ekki óalgengt að mæður séu drykkjusjúkar. Ljóst er hverju slíkt sætir fyrir þau börn sem í hlut eiga. Gildir þar hið fornkveðna: „Fár er sem faðir, enginn sem móðir.“ Í annan stað fer það í vöxt að unglingar og jafnvel börn neyti áfengís. Má sjá þá á skemmtistöðum hvarvetna í meiri mæli eða minni, enda er einatt mikið framboð áfengis á slíkum stöðum bæði leynt og ljóst.“
Í svari frá sýslumanninum í Skaftafellssýslu, sem er stutt, en segir engu að síður sína sögu, Einari Oddssyni, segir svo, með leyfi forseta: „Áfengisvandamálið á Íslandi í dag er svo umfangsmikið að það verður varla mælt. Skortur á almennri fræðslu um áfengi, eðli þess og áhrif, er það sem helst á vantar. Og hvað er til úrbóta? Gott fordæmi eldri kynslóðarinnar.“
Ég gæti haldið áfram að rekja hér svör sem okkur bárust, en ætla aðeins að stikla á þremur atriðum til viðbótar.
Í bréfi frá sýslumanninum í Húnavatnssýslu, Jóni Ísberg segir svo, með leyfi forseta: „Ég held að við verðum að viðurkenna tilvist áfengisins og að algjört bann, sem væri það besta ef við værum einir í heiminum, sé tilgangslaust og haga okkur samkv. því. Ég hef sett fram þær till. að öll sala áfengis verði skráð á nafnnúmer og tölvuunnin, þannig að hægt væri að fylgjast með því hverjir keyptu óeðlilegt magn áfengis. Þá væri auðveldara að hafa hendur í hári leynivínsala og þeirra sem kaupa fyrir unglinga fyrir einn sopa.“
Í svari áfengisvarnanefndar Neskaupsstaðar varðandi það hvert álit hennar sé á vandamálinu er svarið stutt: „Nefndin treystir sér ekki til að svara fyrstu spurningunni.“ Síðan koma frekari svör við öðrum spurningum okkar.
Að lokum: Frá áfengisvarnanefnd Akureyrar kom svar við fyrstu spurningunni, þannig, með leyfi forseta: „Við teljum áfengisvandamálið vera eitt af erfiðustu og umfangsmestu vandamálum þjóðfélagsins og þar vegi þyngst eyðilegging heimilishamingju. Heimilin eru grunnur þjóðfélagsbyggingarinnar. Hamingja þjóðarinnar byggist á hamingjusömum heimilum. Í öðru lagi: Áfengið veldur beint og óbeint heilsuleysi, slysum og afbrotum. Og í þriðja lagi: Eyðslusemi og ýmiss konar óhóf eru fylgifiskar áfengisneyslu. Fátt er efnahag landsins hættulegra en misnotkun áfengis.“
Hér mætti halda lengi áfram. Ekki skortir heldur till. ýmsar sem verða kynnu til bóta ef framkvæmdar yrðu af reisn og röggsemi. Einn rauður þráður, ein meginniðurstaða er þó ljós, hvort sem um er að ræða svör sérfræðinga eða áhugafólks: Áfengisvandamálið er í dag hrikalegra en nokkru sinni. Þar er um nokkur meginatriði að ræða sem ég minni rétt á:
Í fyrsta lagi stóraukin áfengisneysla unglinga og jafnvel barna, sem stöðugt sækir neðar í aldursflokkana og eykur um leið hættuna á stórkostlegri fjölgun hreinna áfengissjúklinga í framtíðinni.
Í öðru lagi mjög aukin drykkja á heimilum í skjóli partýmennskunnar sem hvarvetna tröllríður fólki í öllu sínu veldi sem tískufyrirbæri nútímans sem jafnframt hefur áhrif á uppeldi og mótun barna meira en þá grunar sem þessa iðju stunda við hliðina á vöggum hinna ungu.
Í þriðja lagi og nátengt þeim fyrrtöldu: Áhrif áfengis í skemmtanalífi þjóðarinnar, jafnt ungra sem aldinna. Við höfum hér sett fram nokkrar tillögur til breytinga, nokkrar tillögur til úrbóta og þær koma kannske ekki svo mjög inn á þetta. Áfengið er óhjákvæmilegur förunautur hvar sem mannfagnaður er haldinn, þar sem það telst nánast til undarlegheita að taka ekki þátt í Hrunadansinum.
Í fjórða lagi — og þær upplýsingar einkenndu svör allra þeirra sem við löggæslu fást eða nærri koma slysum: Áfengi er veigamesti orsakavaldur allra afbrota, jafnvel 80–90% allra þeirra eiga þangað rætur sinar að rekja á einn og annan veg. Slys, ekki síst umferðarslysin, eiga sinn örugga bandamann og félaga þar sem áfengið er, ýmist til limlestingar eða dauða, auk verðmætatjónsins.
Í fimmta lagi sem afleiðing af aukinni drykkju, einkum barna og unglinga, stóraukinn fjöldi áfengissjúklinga sem með ári hverju verður meira vandamál og eftir öllum sólarmerkjum að dæma mun verða enn hrikalegra ef ekkert verður að gert. Þrátt fyrir ný hæli, nýjar stofnanir er útigangur hlutskipti æ fleiri aðila í þjóðfélaginu.
Svona mætti gjarnan áfram halda enn lengur. Frá þeim, sem atvinnurekstur stunda, komu uggvænlegri upplýsingar en okkur hafði órað fyrir um glataðar vinnustundir eða vinnu undir áhrifum áfengis með þeim afköstum, sem því fylgja, og þeim mistökum, sem þar verða oft förunautar. Allt eru þetta margkunnar staðreyndir, en þó kom það okkur nokkuð á óvart, þar eð til svo gífurlega margra var leitað, hve samróma svörin voru og þau undirstrikuðu og jafnvel juku ugg okkar sem höfðum þó borið ærinn geig í brjósti varðandi þennan vanda allan.
Eftir þennan lestur, eftir viðtöl við ýmsa þá sem gerst máttu um málið vita og frá sem víðustum sjónarhóli, þá stóðum við andspænis því hvað gera ætti. Eftir miklar umr. í n. var það einróma álit að setja fram, eins og ég sagði áðan, nokkrar till. til breyt. á áfengislögunum, fyrst og fremst — og það undirstrika ég — til þess að fá umr. um málið, vekja það upp í sölum Alþ. til umhugsunar og rökræðu. Okkur var ljóst að til þess að þessar till. næðu þeim tilgangi yrði að ganga nokkuð langt, koma með fáar, en róttækar till. til breytinga og biðja þm. úr öllum flokkum að ljá þeim nafn sitt til framlagningar án þess þó að þeir tækju til þeirra endanlega og afgerandi afstöðu. Þögnin í sölum Alþ. um mál þetta er einhver mesta og alvarlegasta meinsemdin næst á eftir almenningsálitinu og slælegri lagaframkvæmd. Ef takast mætti með frv. þessu að vekja umr. jafnt hér sem úti í þjóðlífinu um vandann, þá væri ekki til einskis barist. Orð eru til alls fyrst, þögnin og kæruleysið verst alls.
Við afmörkuðum till. okkar við fjóra aðalþætti þessa frv. og fræðsluþáttinn sem fram kemur sérstaklega í þáltill. sem þegar hefur verið lögð fram. Ég mun víkja að einstökum atriðum, en fyrst langar mig — með leyfi hæstv. forseta — að lesa kafla úr grg. formanns n. okkar, Magnúsar Sigurjónssonar, um barna- og unglingadrykkjuna sérstaklega, þar sem vikið er að upplýsingum erlendis frá. Þar segir hann um það þegar aldursmarkið hefur verið fært niður: „Nú eru afleiðingarnar komnar í ljós. Hér eru örfá dæmi um niðurstöðurnar: Ein þekktasta og virtasta vísindastofnun heims á þessu sviði, Fíkniefnarannsóknastofnun Ontario-fylkis, hefur gert könnun sem staðfestir hörmulegar afleiðingar aldurslækkunarinnar. Yfirmaður stofnunarinnar, dr. Daníel Archibald, segir: „Lækkun aldursmarkanna hefur í för með sér stóraukna drykkju 14–17 ára unglinga. Fleiri og fleiri unglingar þurfa að leita aðstoðar vegna ofdrykkju.“ Í Bandaríkjunum var nýlega gerð könnun á áfengisneyslu ungra skólabarna. Charles Cook, sem skipuleggur áfengisvarnir í skólum Detroit-borgar, segir: „Drykkjuskapur er nú svo algengur í skólunum að drukknum nemendum er ekki veitt nein sérstök athygli lengur.“ Frá Danmörku: Yfirlæknir áfengisvarnamiðstöðvar Kaupmannahafnar, Egil Jensen, segir: „Hér eru 15–16 ára unglingar sem eru orðnir drykkjusjúklingar. Margir þeirra hófu áfengisneyslu um það bil 12 ára gamlir.“ Og frá Svíþjóð: Ólaf Burman áfengismálafrömuður, sem m.a. hefur haldið fræðslufyrirlestra hér á landi, segir: „Nú er í Svíþjóð hálf milljón manna illa farnir af völdum áfengisneyslu. Í nýlegri könnun kom fram, að í landinu eru um 300 þús. fullorðnir karlmenn áfengissjúklingar og misnotkunar áfengis verður sífellt meira vart hjá börnum og unglingum. Aldursflokkarnir, sem neyta áfengís, eru alltaf að verða yngri og yngri.“
Og af öllum þeim aragrúa svara skal ég aðeins taka fyrir þetta eina, frá lögreglustjóranum í Reykjavík, sem segir, með leyfi forseta: „Meðfylgjandi sendist yfirlit um tölu þeirra sem gistu fangageymslur lögreglunnar í Reykjavík á árinu 1974, ásamt upplýsingum um skiptingu þeirra í aldursflokka, kyn og fleira. Af yfirlitinu má sjá m.a., að áfengisvandamálið hér í borginni er umfangsmikið og margslungið, enda verður að hafa í huga að einungis hluti af því vandamáli kemur fram í skýrslum lögreglunnar. Athygli vekur að tala ungmenna, sem gista fangageymsluna, hefur farið vaxandi á síðustu árum.“ Síðan kemur löng grg. frá lögreglustjóra þetta varðandi. Þessi grg, segir að vísu sína sögu. Staðfestingu hennar fengum við hjá þeim læknum og sérfræðingum í ofdrykkjuvörnum, sem leitað var til. Ég vik þá að frv. sjálfu.
1. gr. þess fjallar um vínveitingaleyfi, og ég held tæpast að um verði deilt þá breyt. sem þar er lögð til. Við rákum okkur á þá furðulegu staðreynd að í dag gilda fáránleg ákvæði um hvort tveggja, lengd leyfistíma hjá veitingahúsunum og leyfisgjaldið. Til 4 ára er leyfið veitt í dag og gjaldið er 4040 kr. Þó ákvæði séu nokkuð ljós í núgildandi lögum um eftirlit með þeim skilyrðum sem veitingahús þurfa að uppfylla til að fá umrætt leyfi, þá mun þar ekki allt með felldu, síður en svo. Sums staðar eru þessi skilyrði nafnið eitt. Vínveitingaleyfin skulu t.d. háð því að húsin hafi til reiðu heitan mat auk ýmiss konar nauðsynlegrar aðstöðu. Víða eru þess dæmin að hvort tveggja sé þverbrotið og ekkert fæst að gert. Þó hefur svo um þverbak keyrt að vínveitingaleyfin hafa verið afturkölluð, en samkv. upplýsingum fróðustu manna mundi þurfa að afturkalla æðimörg ef framfylgja ætti einföldustu skilyrðum eingöngu, og hirði ég ekki um að nefna þar einstök dæmi, en þau eru tiltæk í fórum nefndarinnar.
Við leggjum til að leyfin séu veitt til eins árs í senn, og þá treystum við því um leið að við endurnýjun leyfis sé þess gætt að frumskilyrðum leyfisveitingar sé fullnægt. Leyfisgjald hverju sinni leggjum við til að tífaldist, úr 4 þús. kr. í 40 þús., en vegna styttingar leyfistíma er hér um fertugfalda hækkun að ræða. Vínveitingahúsin eru reyndar sérkapítuli í áfengismálum okkar sem ég hef ætíð litið á sem einhvern lævísasta, en jafnframt alvarlegasta skaðvaldinn, en út í það skal ekki farið hér. Aðeins vil ég minna á það þegar sum blaðanna eru að básúna sveitaböllin svokölluðu, sem um margt er allt of rétt, þá ættu skriffinnar þeirra að líta sér nær og bera saman við hin menningarlegu vinveitingahús og ástandíð þar. E.t.v. eru þeir of tíðir gestir þar sjálfir til að taka eftir því, en munurinn er oft næsta lítill að því er mér hefur sýnst, og hef ég þó reynt af hlutleysi úr vissri fjarlægð að bera saman hvort tveggja.
Mönnum kann að virðast að sú hækkun, sem við leggjum hér til á vínveitingaleyfunum, sé allhrikaleg. Við erum enda til viðræðu um að breyta þessum tölum eins og reyndar öllum frvgr. Þær eru settar hér fram til umr. fyrst og fremst.
Það fór ekki á milli mála að 2. gr. frv. yrði sú sem menn hrykkju mest við. Þeirri till. kom ég á framfæri í n. af þeirri einföldu ástæðu að ég hef fengið á undanförnum árum mikinn fjölda samþykkta frá áfengisvarnanefndum víða að af landinu, og í þeim samþykktum hefur nær alltaf verið um það atriði að ræða sem hér er að vikið, þ.e.a.s. ýmist um áfengiskaupaskírteini eða nafnskírteini og skráningu þeirra. Hins vegar er þessi till. ekki mín sem slík. Fyrstu hugmyndina að henni sem beinni frvgr. fékk ég frá fyrrv. aðstoðarráðh. heilbrigðismála í vinstri stjórninni, Öddu Báru Sigfúsdóttur, sem hreyfði þessari hugmynd fyrst á árinu 1973 og þá nánast í því formi sem hér er lagt til.
Ég dreg enga dul á það, að það er eðlilegt að menn hrökkvi þarna við. Höfuðtilgangurinn hjá áfengisvarnanefndunum með því að leggja þetta til er vissulega sá að draga úr drykkju, reyna það, fæla menn frá vínkaupum vegna aukins umstangs og fyrirhafnar, auk þess sem skráning á nafn hvers kaupanda væri viss hindrun einnig, ein þessara frelsisskerðinga sem mjög er hampað af þeim sem þykir óbreytt ástand býsna gott. Það er annars undarlegt hvað oft orðið frelsi heyrist nefnt varðandi áfengi, slík áþján og kvöl sem það getur orðíð, og verður alltof mörgum. Við flm. tökum það fram í grg, að þetta er aðeins sett fram sem ítrasta till. og þar er það skýrt tekið fram. Notkun venjulegra nafnskírteina er okkar varatill. og við hana sættum við okkur vitanlega fullkomlega En þessi till. er komin frá allt of mörgum aðilum til þess að hún verði hundsuð algjörlega. Hér er um að ræða þá aðila sem um þessi mál fjalla hvarvetna á landinu, og það er ekki hægt að hundsa þeirra kröfur algjörlega í þessu efni. Þess vegna kom ég þessari till. á framfæri í n., og þess vegna er hún hingað komin. Notkun venjulegra nafnskírteina ætti vitanlega að vera jafnsjálfsögð þarna og viða annars staðar þar sem nafnskírteina er krafist af minna tilefni.
Tillaga um nafnskírteini og skráningar hefur, eins og ég sagði, ærið oft komið frá áfengisvarnanefndunum víðs vegar um land. Í raun er hér aðeins verið að flytja hana hér inn og kanna undirtektir við hana. Við flm. og nm., sem vorum um það sammála að leggja þetta fram sem till., við kunnum að vera þarna á villigötum, og síst of öllu — það tek ég skýrt fram varðandi allt þetta — vil ég lögfesta eitthvað sem í framkvæmd yrði markleysa ein og tjón. Síðan þessi till. kom fram hefur sú undarlega skoðun birst á prenti og það meira að segja víðar en á einum stað að með skráningunni væri farið inn á svið persónunjósna. Aldrei flaug mér eða höfundi þessarar till. 1973, Öddu Báru Sigfúsdóttur, það í hug að svo mikil viðkvæmni mundi verða í kringum þetta ákvæði. En satt er það. E.t.v. kann hér að vera um eitthvað slíkt að ræða. Hér er að vísu komið að málum sem leitt gætu til mikilvægra og að vissu leyti persónubundinna upplýsinga um áfengiskaup manna. En hitt er mér aftur á móti hulin ráðgáta með öllu, hvernig þessi skráningarskylda eða úrvinnsla hennar og þær upplýsingar, sem af henni leiddi, gætu á nokkurn hátt gefið upplýsingar eða ábendingar um skoðun viðkomandi aðila. Öllu slíku vísa ég á bug sem hreinni móðursýki mér óskiljanlegri. Um þetta hefur verið sagt að þarna ráði öfgar og brennivínshatur og þá alveg sérstaklega hjá 1. flm. Ég er fúslega til viðræðu um þá breyt. á þessu ákvæði sem mönnum kynni að sýnast réttmætari, og svo er reyndar um frv. þetta allt. Það er rétt eins og menn hafi, þegar þetta frv. kom fram, almennt reiknað með því að samtímis yrði þetta orðið að lögum og menn gætu átt von á þessu daginn eftir. En frv. er beinlínis sett fram og skýr grg. um að þetta sé fyrst og fremst sett fram til frekari umr.
En þrátt fyrir einstök upphlaup, þá hygg ég að umr. verði til góðs og þá hverfur a.m.k. úr sögunni sá áróður sem er býsna ágengur, að á Alþ. sé aldrei um þetta alvörumál fjallað. Engin af þessum greinum — það skal tekið fram — er okkur neitt heilagt mál. En við vorum sannfærðir um að því aðeins að till. gengju nokkuð langt vektu þær menn til einhverrar umhugsunar og umr. Annað væri útilokað. Og um gagnsemi þessara till. dæmi ég ekki heldur. Hitt veit ég mætavel og er sannfærður um, að það er engin tilviljun að ýmsar þessar till. og eiginlega flestar eða allar eru samnefnari af öllum þeim svörum sem við fengum við spurningum okkar á s.l. sumri. Það getur ekki verið tilviljun. En að því skal ég koma nánar síðar.
Ég vík þá að 3. gr. frv., en í grg, fyrir henni segir svo: „Hér er um breyt. á 20. gr. að ræða sem felur í sér m.a. niðurfellingu þessara orða í 1. málslið 4. mgr.: „nema í fylgd með foreldrum sínum eða maka“, og tilsvarandi síðar. Um þetta atriði eitt sér og þó einkum um aldurstakmarkið sjálft, 24 ár, 19 ár eða 18 ár, hefur mjög verið rætt í n., enda sitt sýnst hverjum. Hér er þó aðallega um samræmingaratriði að ræða, þ.e. að aðgangur að vínveitingahúsi og leyfi til vínkaupa séu bundin við sama aldur. Hér er miðað við 20 ár, en í n. hefur einnig komið fram að 18 ára markið kæmi almennt til greina, gegn því að þar yrði betur eftir fylgt með aðhaldi og eftirliti. Grein þessi er m.a. sett fram til umr. um þetta almennt, og þær upplýsingar, sem n. hefur undir höndum um reynslu annarra þjóða, munu þá verða veittar í umr. og í n, deildarinnar.“ — Það hef ég þegar gert með því að lesa upp úr ítarlegri samantekt Magnúsar Sigurjónssonar hér áðan. — „Þess skal getið að um samhljóða álit er að ræða erlendis frá um þetta atriði,“ eins og kom mjög glögglega fram í hans ágæta yfirliti, „þ.e. lækkun aldurstakmarks hefur í för með sér enn meiri drykkju sem færist jafnframt enn niðar í aldursflokkunum.“
Þetta kom mjög skýrt fram áðan, og sé ég ekki ástæðu til þess að endurtaka neitt af því. Um aldursmarkið sjálft mætti lengi ræða. Ég hef þá skoðun sjálfur að aðalatriðið sé að fullt samræmi gildi og um leið að framkvæmd fylgi lögunum eftir því sem framast er kostur. Hins vegar fer ekki hjá því að upplýsingar erlendis frá veki okkur til umhugsunar um þetta atríði. Mér hefur virst ástandið slíkt, þrátt fyrir ákvæði okkar um 20 ára markið, að mestu skipti að raunhæf framkvæmd væri möguleg, og ég hef tæpast séð þess nokkra von nema með lækkun aldursmarksins í t. d. 18 ár, eins og við Páll Þorsteinsson fyrrv. alþm. lögðum raunar til í frv. fyrir nokkrum árum, og hert um leið öll ákvæði varðandi eftirlit og framkvæmd á löggjöfinni. Um þetta hafa verið skiptar skoðanir í n. Það, sem hér er lagt til, varð ofan á svipað og með ákvæði 2. gr.
Ég vil benda — með leyfi hæstv. forseta — á nokkrar staðreyndir sem áfengisvarnaráð hefur sent frá sér og vissulega vega þungt. Þar segir að áfengislaganefnd, sem sænska þingið kaus og var að störfum tæpan áratug, lagði til að unglingum yngri en 20 ára yrði framvegis sem hingað til bannað að kaupa sterka drykki. Í öðru lagi, að ljóst er að mjög erfitt reynist að koma í veg fyrir ólöglega drykkju unglinga. Hún færist einungis til enn yngri aldursflokka með lækkuðu aldursmarki. Í þriðja lagi: Unglingadrykkja hérlendis jókst fyrst að marki þegar rekstur vínveitingahúsa var leyfður. Áhrif þeirra á þjóðlífið komu greinilega í ljós í þjónaverkfallinu í fyrra og þegar dómsmrh. lét loka þeim í febrúar í ár. Auðveld framkvæmd til að draga úr unglingadrykkju er að fjölga eftirlitsmönnum með vínveitingastöðum. Þeir eru nú tveir í Reykjavík, en þyrftu að vera 15. Eftirlit þetta er framkvæmt ríkissjóði að kostnaðarlausu. Í fjórða lagi: Afnám þess fyrirkomulags, að laun þjóna standi í réttu hlutfalli við áfengissölu þeirra, yrði áreiðanlega til góðs.
Þetta ásamt því, sem kom fram í ábendingum formanns n., Magnúsar Sigurjónssonar, læt ég nægja. En sá hinn sami hefur einnig flutt till. til vara sem ég mun einnig koma hér á framfæri, en hún er þannig, með leyfi hæstv. forseta — hann segir að vísu fyrst: „Best væri að fella niður allar undanþágur og standa fast á 20 ára aldursmarkinu. En ef ekki er vilji fyrir hendi til að ganga svo langt, þá er þó til stórra bóta að binda undanþáguna frá 20 ára aldrinum við 18 ár, þannig að greinin orðist þá svo: „Ungmennum að 18 ára aldri er heimilt að dveljast til kl. 8 að kvöldi á veitingastað, þar sem vínveitingar eru leyfðar, séu þau í fylgd foreldra sinna eða maka. Dyraverðir, eftirlitsmenn og framleiðslumenn skulu láta ungmenni, er koma á slíka staði eða dvelja þar eftir kl. 8 að kvöldi án samfylgdar foreldra eða maka, sanna aldur sinn á þann hátt að sýna nafnskírteini með mynd eða á annan fullnægjandi hátt, enda sé ástæða til að ætla að hlutaðeigandi hafi ekki náð 20 ára aldri.“ Þessu kem ég hér með á framfæri sem sérstakri varatill. frá formanni n., Magnúsi Sigurjónssyni.
Ég legg enn áherslu á það, að hér er um að ræða eins og í 2. gr. umhugsunarefni sem ekki verður afgr. í dag eða á morgun. Hér er um svo alvarlegt og þýðingarmikið atriði að ræða að ég vil einskis láta ófreistað til að þar á fáist einhver lausn, einhver bót frá ástandi dagsins í dag. Þingmönnum ber að freista þess að finna bestu leiðina. En það er nú einmitt til marks um það ofstæki sem er í hv. 1. flm. þessa frv., að hann hefur maldað mest í móinn í n, varðandi aldurstakmarkið. Ég hef sem sagt verið á þeirri skoðun, sem ég var þegar ég flutti frv. með hv. þm. Páli Þorsteinssyni á sínum tíma, að það sé óraunhæft að binda sig við 20 ára aldursmarkið þrátt fyrir allt og við verðum að horfast í augu við raunveruleikann í þessu og hafa fullt samræmi í 18 ára aldrinum og herða svo bara viðurlögin þar við. Þetta er mín persónulega skoðun sem ég lýsi yfir hér eins og ég hef gert í n. áður. En meiri hl. n. lagði sem sagt til áframhaldandi 20 ára aldursmark og það yfirfært enn frekar en er í gildandi lögum.
Í 4. gr. er um nýmæli að ræða sem einn nm., Steinar Guðmundsson, hefur margsinnis vakið máls á í ræðu og riti. Ég læt grg. hans ákveðna og berorða, nægja sem rökstuðning, svo sem áréttingu á athugasemdum með frv., en grg. Steinars er svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta: „Ofdrykkjuvarnastöðvar hafa hvarvetna reynst mjög vel í baráttunni gegn ofdrykkju í atvinnu- og fjölskyldulífi frá því þær fyrst voru skipulagðar á árunum 1945–1955. Í Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu og meðal velflestra Evrópuþjóða er þetta kerfi, leiðbeiningarstöðin í ofdrykkjuvörnum, notað í síauknum mæli með mjög góðum árangri. Reynslan hefur orðið sú, að ofdrykkjuvarnir einangrast ekki frá áfengisvörnum, heldur vaxa þær í áttina til þeirra, því í reynd beinist hið virka björgunarstarf ýmist inn á braut bindindis eða bindindisfræðslu eða inn á starfsvettvang AA-stefnunnar eða leiðir venjulegrar heilsugæslu. Nú er vitað og verður ekki hrakið að ef miðað er við niðurstöður margendurtekinna athugana, sem fram hafa farið meðal vestrænna þjóða æ ofan í æ undanfarna áratugi, má ætla að aðeins 5% þeirra drykkjumanna íslenskra, sem ekki geta bjargað sér til eðlilegra lifnaðarhátta vegna ofdrykkju, njóti einhverrar opinberrar aðstoðar sér til bjargar. 95%, sem eru drykkjumenn á ýmsum stigum ofdrykkju eða alkóhólisma, eiga það eitt sameiginlegt að hafa ekki lagt á hilluna viðleitnina til að bjarga sér og sínum efnalega og reyna að skila dagsverkinu þótt gloppótt verði það stundum. En það kaldranalega er, að einmitt á meðan þetta fólk drattast til að skila vinnuvikunni af sér er því meinuð öll aðstoð til að ná fótfestu til eðlilegra lifnaðarhátta. Hinir aftur á móti, sem gefast upp og hætta að vinna, þurfa engu að kvíða með afkomuna. Þeir eiga víða skjól og skilning, enda er nokkuð vel séð fyrir þörfum þessara 3–5% hér á landi. Félagsmálastofnun Reykjavíkur, gistiskýlið í Þingholtsstræti, Hlaðgerðarkot, Víðines, Gunnarsholt o.fl.
„Ekki get ég séð,“ segir Steinar áfram, „að miklu lengur sé hægt að þrjóskast við að sinna ofdrykkjuvandamálinu íslenska og neita að beita þeim tækjum og aðferðum sem best hafa gefist erlendis. Reynslan er sú hér eins og annars staðar að menn ríghalda í þann aumingjaskap sem speglast í útigangsdrykkjumanninum, þetta auðnuleysi sem tilheyrir lengst leiddu 5%, svo að menn hafi eitthvað til að benda á þegar talað er um drykkjuskap, svo menn hafi eitthvað til að æfa líkn sína á eða óskapast yfir, svo síður sé hætta á að á þá sjálfa kynni að verða bent. Þessum skrípaleik verður að linna. Fyrsta sporið er leiðbeiningarstöð í ofdrykkjuvörnum með samstarfi við fánabera bindindishugsjónarinnar. Leiðbeiningarstöð án afvötnunaraðstöðu er fráleit, bæði vegna þess að mjög oft er leitað hjálpar þegar ætlar um koll að keyra vegna drykkjuskapar og þarf því að vera aðstaða til að láta renna af mönnum og hins vegar vegna þess að á vissu skeiði fráhvarfstímans er drykkjumaður betur viðmælandi en nokkurn tíma annars um vandræði sín, og tekst æfðum leiðbeinanda þá oft að nýta þessa stundum ekki nema örfáu klukkutíma, þessa ljósglætu algjörrar uppgjafar, til að hefja það samstarf sem enst getur til langvarandi bata, sbr. sjálfan mig fyrir 20 árum.“
Þetta voru lokaorð í grg. Steinars Guðmundssonar fyrir þessari grein um leiðbeiningarstöð í ofdrykkjuvörnum.
5. og 6. gr. laganna fjalla um eðlilega og sjálfsagða hækkun sektarákvæða. Jónas Gestsson, einn nm., fór vandlega ofan í þessi mál, miðaði hækkunina við eðlilegasta mælikvarða, verðhækkun áfengis, frá því að eldri lög um sektarákvæði voru sett, og að hækkun upphæðanna er í samræmi við það.
Ég hef haldið æðilanga tölu fyrir frv. þessu. Þó er hér ekki öll sagan sögð. N. fór þess einnig á leit við þm. allra flokka að þeir flyttu þáltill. um fræðslumál. Það hefur nú verið gert og er fyrsti flm. þeirrar till. hv. þm. Sigurlaug Bjarnadóttir og mun hún bráðlega gera grein fyrir þeirri till. Ég geri mér ekki vonir um neina afgreiðslu þessa frv. nú. N. var efst í huga að koma einhverju á framfæri, umdeildu og róttæku umfram allt, til þess að hreyfing mætti á málið komast. Fyrir n. hönd færi ég meðflm. mínum þakkir fyrir góðar undirtektir um flutning frv., þó ég viti að þeir hafi uppi ýmsar athugasemdir við einstök atriði sem eflaust koma hér fram. N, mun starfa áfram þar til hún telur störfum sínum það vel komið að þingið sjálft taki frumkvæðið í sínar hendur. Eftir því er beðið, eftir úrbótum er beðið af miklu fleiri en bindindismönnum. Æ fleiri heimta að eitthvað sé að gert. Vissulega væri hægt að benda á ótalmargt í þessu máli sem ég teldi betur mega fara og þá alveg sérstaklega skipulag æskulýðs- og íþróttastarfs sem eins öflugasta bandamanns í baráttunni gegn ofneyslu áfengis. Þar um vantar ekki lög, heldur framkvæmd og fjármagn um leið.
Að lokum þetta: Hér er um ítrustu till. að ræða, sumar beinlínis fram settar til þess að ýta við mönnum án minnstu vonar um að þær verði að veruleika í óbreyttri mynd. Það, sem sköpum skiptir í þessu máli öllu máli, er almenningsálitið, — álitið sem þjóðin sem heild hefur á málinu, umfangi vandans og ráðum til úrbóta. En Alþ. á að gera sitt til þess að móta það álit og leggja á ráðin um það hvað gera eigi. Með umr. um málið, öfgalausum og viðsýnum, er það unnt.
Þrátt fyrir það að hér sé um ítrustu till. að ræða í sumum tilfellum og aðeins að fáu vikið, þá álít ég að við eigum að geta rætt um þessi mál á öfgalausan hátt með öllu, og þrátt fyrir það að ég sé sjálfur bindindismaður, þá vona ég að enginn væni mig í þessu efni um öfgar. Aðalstarf mitt hefur verið að uppeldismálum. Þaðan hygg ég að fáir gætu sagt þá sögu að öfgar hefðu ráðið ferðum varðandi veikburða tilraunir mínar til að vara við skaðlegum áhrifum áfengisneyslu. Þeim, sem þykja þessar till. ganga of langt, skal bent á þá fyrirvara sem við höfum á þeim, jafnt nm. og þó enn frekar flm. þessa frv. Engu skal upp á menn þvingað. En ástandið kallar á aðgerðir, og til þess að svo megi verða þarf að opnast umr. og hún þarf að verða hér á þingi sem hreinskilnust og hleypidómalausust. Okkar álit var það að fáar róttækar till. væru vænsta leiðin til þessa. Í trausti þess er frv. borið fram. Það bið ég menn að athuga, jafnt innan þings sem utan, áður en sleggjudómarnir falla í þeirri blindu sem þjóðin virðist að miklu leyti slegin í þessu máli.
Þetta frv. mun verða endurflutt í byrjun næsta þings, e.t.v. þá í breyttri mynd, e.t.v. í samræmi við það sem hér kemur fram núna í þeim stuttu umr. sem eflaust verða um þetta mál nú. En að lokinni þessari umr. vil ég, herra forseti, óska eftir því að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.