04.05.1976
Neðri deild: 96. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3539 í B-deild Alþingistíðinda. (2921)
194. mál, íslensk stafsetning
Sverrir Hermannsson:
Virðulegi forseti. Ég hef ekki mörg orð um þetta að segja, þetta frv. sem liggur fyrir hér til umr. Sem stendur er vitanlega ekkert samkomulag um afgreiðslu þess. En út af fyrir sig gæti ég vel fellt mig við þessa aðferð þegar og ef menn ná saman um það að koma skipan á þá hluti sem nú eru mjög svo á reiki um íslenska stafsetningu. Um þetta hefur verið flutt frv., og það gerðu 6 þm. vegna þess að hæstv. menntmrh. hafði ekki farið að þeirri þál. sem gerð var um þetta mál á s.l. vori, þegar ályktað var að samin skyldi löggjöf eða skorað var á ríkisstj. að semja löggjöf um þetta efni.
Það er svo sem ekkert nýtt að í þessu efni séu virtar að vettugi ályktanir Alþ., því að hér var einu sinni ályktað, eftir að auglýsing hafði verið birt um brottnám zetunnar, þá ályktaði Alþ. að þeirri ákvörðun skyldi hrundið, en að því var ekki farið. En vonandi líður ekki á löngu þangað til breytt verður um í þessu efni. Og því var það að þetta frv. um íslenska stafsetningu var flutt, af því að ekki bólaði á að eftir hinni ályktuninni yrði farið.
Þegar verður gengið frá, sem ég vænti að verði nú fyrir lok Alþingis, lögum um stafsetningu, þá er ég að mínu leyti reiðubúinn til þess að líta á þessa aðferð hvernig endurskoðun á reglum um stafsetningu skuli fara fram, þó ekki að fela það svo þröngri nefnd og fámennri 5 hendur sem gert er ráð fyrir samkv. þessu frv. Ég álít að þar eigi að koma til skjalanna miklu fleiri aðilar en þarna er gert ráð fyrir, þar sem talin er upp íslensk málnefnd, kennarar við háskólann í íslenskri málfræði og stjórn Félags íslenskra fræða. Það þarf vitanlega að leita viðar fanga í því efni um skipan n. en þarna kemur fram, og ég geri ráð fyrir því að það út af fyrir sig ætti ekki að þurfa að verða ásteytingarsteinn.
En það verður vitanlega með vísan til allrar forsögu málsins knúið fast á um að frv. það til l., sem hér liggur fyrir og væntanlega verður afgr. úr menntmn. hið fyrsta, hljóti af greiðslu á þessu þingi. Það er í samræmi við ályktanir Alþ., bæði hinnar eldri og hinar nýrri, frá því á vordögum í fyrra. Og ég vil leyfa mér — og það er enda í samræmi við það sem ég þóttist hafa rætt við hæstv. menntmrh. um — að vænta þess að það verði ekki settur fótur fyrir það sérstaklega að þingmeirihluti, sem ég hygg að sé fyrir afgreiðslu þessa máls, fái náð vopnum sínum í þessu máli. Um það vildi ég gjarnan fá skýr svör. En það breytir hins vegar engu um það hver þau svör verða, þótt neikvæð yrðu, að það verður vitanlega knúið fast á um framgang þessa máls. En ég endurtek það, að að því búnu er ég fyrir mitt leyti alveg reiðubúinn til þess að ræða um það að slíkur háttur skuli verða á hafður um endurskoðun reglnanna sem hér er gert ráð fyrir, þótt ég sé hins vegar þeirrar skoðunar að það þurfi aðeins að hnika til frá því sem gert er ráð fyrir í þessu frv.