04.05.1976
Neðri deild: 97. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3559 í B-deild Alþingistíðinda. (2938)

266. mál, fjáröflun til landhelgisgæslu, ríkisfjármál o.fl.

Frsm. minni hl. (Gylfi Þ. Gíslason):

Hæstv. forseti. Eins og frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. tók fram náðist ekki samstaða um þetta frv. í hv. fjh.- og viðskn. þessarar d. að öðru leyti en því, að fullkomið samkomulag varð um að fella niður það ákvæði 8. gr. sem gerði í upphaflega frv. ráð fyrir því að hækkun vísitölu um 5 stig skyldi ekki bætt með kauphækkunum samkvæmt gildandi kjarasamningum. Um þetta varð fullkomið samkomulag í n. og ber eindregið að fagna að svo skuli hafa farið. Málið var rætt á sameiginlegum fundum fjh.- og viðskn. beggja d., samtals 3 fundum. Og fulltrúar SF, sem ekki eiga sæti í fjh.- og viðskn., fylgdust með meðferð málsins, eins og kemur fram í tillöguflutningi sem ég mun geta um hér á eftir. Þrátt fyrir þá miklu breytingu til bóta, sem felst í breytingu 8. gr., erum við í minni hl. n. ásamt formanni þingflokks SF, Karvel Pálmasyni, andvígir frv. í heild og munum greiða atkv. gegn því ef sú brtt., sem við flytjum og ég mun gera hér grein fyrir á eftir, verður felld.

Við í minni hl. n. viðurkennum nauðsyn þess að afla tekna til að efla landhelgisgæsluna, fiskleit og hafrannsóknir og erum reiðubúnir að styðja 1000 millj. kr. tekjuöflun í því skyni. En frv. gerir ráð fyrir miklu meiri tekjuöflun. Það gerir ráð fyrir 1800 millj. kr. tekjuöflun til ríkissjóðs og 620 millj. kr. til Vegasjóðs. Það gerir m.ö.o. ráð fyrir 2400 millj. kr. álögum. Og þrátt fyrir ákvæði um 2400 millj. kr. álögur á almenning í landinu er ekki ein setning í frv. um sparnað af hálfu ríkisins til þess að mæta þeim útgjöldum sem ríkisstj. virðist telja 2400 millj. kr. tekjuöflun nauðsynlega til.

Það er viðurkennt í grg. frv. sjálfs að samþykkt þess mundi það hafa í för með sér 10–11% hækkun á vísitölu framfærslukostnaðar. Í frv., eins og það var upphaflega, voru ákvæði um að 5 vísitölustig af þessum 10–11 stigum skyldu ekki hafa áhrif á kaupgjald, en þessi 5 stig voru talin svara til þeirra 1000 millj. sem verja á til landhelgisgæslu, fiskleitar og hafrannsókna. Upphaflega var m.ö.o. ætlun hæstv. ríkisstj. að láta launþega í landinu bera 1000 millj. kr. hækkun á verðlagi vegna 18% hækkunar á vörugjaldi bótalaust. Ef hæstv. ríkisstj. hefði haldið fast við þessa ákvörðun sína, þá hefði hún með því riftað nýgerðum kjarasamningum launþega og vinnuveitenda og í því hefði að sjálfsögðu falist harkaleg árás á hagsmuni launþega og þó ekki síst á samningsrétt samtaka þeirra, sem þeir hljóta að telja höfuðhlutverk sitt að standa styrkan vörð um. Þetta átti að gerast í framhaldi af því að verðlag hefur hækkað um 7.3% á tímabilinu 1. febr. — 1. apríl, en aðeins 1.3% af þeirri verðhækkun má með rökum rekja til þeirrar kauphækkunar sem samið var um í febr., um 8–9% en hin 6% má með rökum rekja til stjórnvaldsákvarðana, þ.e. til ákvarðana ríkisstj. sjálfrar.

Eins og ég sagði áðan ber tvímælalaust og hiklaust að fagna því að samkomulag hefur orðið um að af þessari árás verði ekki, þ.e.a.s. að sú verðhækkun, sem hlýst af samþykkt frv., verði bætt í samræmi við ákvæði gildandi kjarasamninga.

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands hefur gert ítarlega ályktun um þetta frv. og höfum við í minni hl. leyft, okkur að prenta þessa ályktun sem fylgiskjal með þessu nál. Í ályktuninni telur miðstjórnin sig geta fallist á að 1000 millj. kr., sem varið yrði til landhelgisgæslu, fiskleitar og hafraunsókna, verði aflað með tímabundinni hækkun vörugjalds sem í ályktuninni var talin þurfa að nema 13%. Þessi tala var byggð á bráðabirgðaathugun á málinu sem gerð var um síðustu helgi og hlaut að vera gerð í nokkurri skyndingu. Nánari rannsókn siðar hefur hins vegar leitt í ljós að 14% hækkun vörugjaldsins er nauðsynleg til þess að tekjur af því nái 1000 millj. kr. á ári. Teljum við í minni hl. fjh.- og viðskn. sjálfsagt að hafa það sem sannara reynist og höfum raunar haft um það samráð við miðstjórn Alþýðusambands Íslands.

Við í minni hl. fjh.- og viðskn. flytjum ásamt formanni þingflokks SF, Karvel Pálmasyni, sem fylgst hefur með störfum n., á sérstöku þskj. brtt. um að vörugjaldið skuli lækkað úr 18% í 14%, þ.e.a.s. í þá hlutfallstölu sem nauðsynleg er til þess að tryggja ríkissjóði þær 1000 millj. kr. tekjur sem nauðsynlegar eru vegna landhelgisgæslunnar, vegna fiskleitar og vegna hafrannsókna. Þannig falla sjónarmið okkar og sjónarmið miðstjórnar Alþýðusambands Íslands algjörlega saman.

Við í minni hl. getum einnig fallist á að haldið verði áfram innheimtu skyldusparnaðar, en það mundi bæta hag ríkissjóðs og draga úr fjárþörf hans. En það er einnig í samræmi við það sjónarmið sem sett er fram í ályktun miðstjórnar Alþýðusambands Íslands.

Ég tel rétt að vekja sérstaka athygli á fjórum atriðum sem miðstjórn Alþýðusambandsins vakti sérstaka athygli á í ályktun sinni.

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands segir í fyrsta lagi að hún telji algjörlega óeðlilegt að nýgerð vegaáætlun sé nú rifin upp, eins og það er orðað í ályktuninni, og eyðslufé hennar aukið um hvorki meira né minna en 620 millj. kr. Telur miðstjórnin að þessari upphæð beri að mæta með sparnaði.

Í öðru lagi mótmælir miðstjórnin harðlega hækkun bensíns um 170 millj. kr. og telur hana ekki nauðsynlega.

Í þriðja lagi segir miðstjórnin að hún geti fallist á takmörkun persónuafsláttar til greiðslu útsvara, enda verði þá fulltryggt með lagaákvæði að takmörkun þessi verði ekki notað til þess að íþyngja í útsvörum þeim sem það lágar tekjur hafa að þeir beri lítinn eða engan tekjuskatt. Sömuleiðis telur miðstjórnin eðlilegt að leyfisgjald, af jeppabifreiðum verði samræmt því gjaldi sem gildir um aðrar bifreiðar.

Og í fjórða og síðasta lagi tekur miðstjórnin fram að hún geti fallist á að ákvæði skattalaga frá s.l. ári um skyldusparnað verði framlengd til loka þessa árs, eins og ég raunar gat um áðan.

Síðan segir miðstjórnin að ef farið væri að framangreindum ábendingum, þá verði tekjuþörf ríkissjóðs til að leysa þann vanda, sem unnt sé að rökstyðja með viðunandi hætti, ekki nema 1045 millj. kr. að frádregnum þeim greiðsluafgangi sem frv. gerir ráð fyrir. Stendur þá eftir því sem næst 1000 millj. kr. tekjuöflun til landhelgisgæslunnar sem miðstjórnin vill með tilteknum skilyrðum fallast á og við í minni hl. fjh.- og viðskn. höfum gert till. um að tryggja ríkissjóði tekjur til.

Þá er þess að geta að tveir þm. Alþb. flytja á sérstöku þskj. till. um 6% skatt á hreinar rekstrartekjur áður en fyrningar- og varasjóðsframlög hafa verið dregin frá. Áætla þeir að þessi skattur nemi um 1000 millj. kr. eða jafnhárri upphæð og þörf er á til landhelgisgæslu, fiskleitar og hafrannsókna. Hins vegar mun allur þingflokkur Alþb. greiða atkv. með till. minni hl. fjh.- og viðskn. og formanns þingflokks SF um lækkun vörugjaldsins úr 18% í 14%. Hafa því flm. skattbreytingartill. ákveðið að hún komi ekki til atkv. ef samkomulagsleið sú, sem felst í till. minni hl. og hv. þm. Karvels Pálmasonar, verður samþ. Þess vegna verður till. Alþb.- þm. tveggja um skattamál tekin aftur við 2. umr. og kemur ekki til atkvgr. fyrr en við 3. umr.

Að lokum skal ég láta þess getið og undirstrika alveg sérstaklega að við í stjórnarandstöðunni, sem stöndum að þeim tillöguflutningi sem felst í till. um lækkun vörugjaldsins úr 18% í 14%, teljum ríkissjóði skylt að draga úr útgjöldum sínum til þess að mæta þeim auknu útgjöldum sem hún telur óhjákvæmileg og eru umfram þann tekjuauka sem lýst hefur verið að við erum reiðubúnir til að samþ. Við teljum að hér sé ekki um hærri fjárhæð að ræða en svo að vandalaust væri að mæta henni með sparnaði hjá ríkissjóði, enda hvort eð er nauðsynlegt af almennum efnahagsástæðum að ríkissjóður gæti hófs í útgjöldum sínum.