04.05.1976
Neðri deild: 97. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3569 í B-deild Alþingistíðinda. (2944)
266. mál, fjáröflun til landhelgisgæslu, ríkisfjármál o.fl.
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Hv. síðasti ræðumaður hefur raunar þegar vikið að því sem ég ætlaði að spyrja um. Ég minni aðeins á í því sambandi að ég flutti fyrr í vetur brtt. við frv. um vörugjaldið þess efnis að ekki yrði heimilað að leggja á vörugjaldið heildsölu- eða smásöluálagningu. Ég held að ég muni það rétt, að við það tækifæri lýsti hæstv. viðskrh. því yfir að það væri óeðlilegt að binda slíkt í lögum þar sem hér væri um að ræða atriði sem væri á valdi verðlagsyfirvalda, þ.e.a.s. verðlagsyfirvöld réðu því hvort heildsölum og smásölum í landinu yrði heimilað að hagnast á því að ríkisstj. teldi sig til knúna að leggja nýjan skatt á landslýð. Það liggur sem sagt fyrir að hér er um ákvörðun að ræða sem er algerlega í höndum verðlagsyfirvalda, og æðsti maður þeirra mála er að sjálfsögðu hæstv. viðskrh., svo fremi sem þau mái eru ekki á ábyrgð og afgreiðslu ríkisstj. allrar. Ég vil því gera fsp. þá, sem hv. síðasti ræðumaður flutti sér, enn beinni og afdráttarlausari til hæstv. viðskrh. Og fsp. mín er: Mun hann geta gefið Alþ. einhver svör við því hvort hann muni heimila heildsölum og smásölum að leggja heildsölu- og smásöluálagningu ofan á þá hækkun vörugjalds sem hér er verið að ákveða?
Ég vil taka það sérstaklega fram, að ef reiknað væri með heildsöluálagningu, flutningsgjaldi, smásöluálagningu og söluskatti, þá þýðir 1000 millj. kr. hækkun á vörugjaldi aukin útgjöld fyrir neytendur um ca. 1600 millj. kr. Nokkuð á fjórða hundrað millj. kr. af þessari rúmlega 600 millj. kr. aukabyrði kemur í hlut heildsala og smásala sem aukinn hagnaður vegna tilkomu vörugjalds. Ég tel það að sjálfsögðu í hæsta máta óeðlilegt að ákveðnar stéttir í þjóðfélaginu hagnist með þessum hætti um svo mikið fé. Þegar ríkissjóður telur sig knúinn til þess að afla tekna með nýrri skattheimtu, þá er það í hæsta máta óeðlilegt að ákveðin stétt manna í þjóðfélaginu hafi beinan hag af því. Þess vegna beini ég þessari fsp. til hæstv. viðskrh.: Mun hann heimila að lagt verði á þá hækkun á vörugjaldinu, sem hér um ræðir, álagning heildsala og smásala? Um söluskattinn til ríkissjóðs þarf sennilega ekki að tala í þessu sambandi.
Ég ætla ekki að fara öllu fleiri orðum um það mál sem hér er til umr., enda hefur afstaða stjórnarandstöðunnar, a.m.k. flestallra stjórnarandstæðinga og þ. á m. þeirra sem valist hafa sérstaklega til þess að tala fyrir hönd stjórnarandstöðunnar í þessu máli, komið skýrt og ljóst fram.
Vegna þeirra orða, sem hv. þm. Garðar Sigurðsson mælti hér áðan og komu mér mjög á óvart eins og ýmislegt sem virðist vera að gerast í þeim herbúðum nú, vil ég taka það fram að þó að bæði hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason og hv. þm. Karvel Pálmason standi að brtt. á þskj. 620, þá er þriðji aðilinn þar einnig tillögumaður, fulltrúi Alþb. í fjh.- og viðskn. þessarar hv. deildar, þannig að maður skyldi vænta þess að hann hefði staðið að þeirri till. fyrir hönd síns þingflokks sem væntanlega hefur mótað sér stefnu í þessu máli. Ég vil einnig vekja athygli á því sem kom fram í orðum þessa sama hv. þm., að enda þótt tveir þm., sem hann kennir við jafnaðarstefnu og undanskilur þá væntanlega hv. þm. Sigurð Blöndal, hvort sem það er með hans leyfi eða ekki, að þeir tveir hv. þm., sem standa að þessari brtt., þeir Gylfi Þ. Gíslason og Karvel Pálmason, hafa ekki hér verið að móta ákveðna stefnu í fyrsta skipti, heldur að taka undir stefnu sem þegar hefur verið mótuð. Og hver var það sem mótaði þá stefnu? Það var miðstjórn Alþýðusambands Íslands sem segir svo, með leyfi forseta, í ályktun sinni:
„Að því leyti sem unnt er að einangra aths. við frv. við allt að 1000 millj. kr. tekjuöflun í framangreindum tilgangi, getur miðstjórnin eftir atvikum fallist á að farin sé sú leið sem frv. gerir ráð fyrir, þ.e.a.s. að fjárins sé aflað með tímabundinni hækkun vörugjalds“ o.s.frv.
Ég vil enn fremur minna á að sá, sem fyrstur lýsti þessari stefnu sem fram kemur í brtt. þeirra þremenninganna hér á Alþ., var hv. þm. Eðvarð Sigurðsson, formaður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar, í ræðu sinni hér í gær. Mig furðar hins vegar á því að hv. þm. Garðar Sigurðsson skuli að þessu leytinu til skerast úr leik og ekki taka þátt í því með öðrum hv. þm. í stjórnarandstöðunni að standa að baki þeirri stefnu sem mótuð hefur verið með einróma samþykki allra miðstjórnarmanna Alþýðusambands Íslands, sem mættir voru á miðstjórnarfundinum sem haldinn var um þetta mál, og fyrst lýst hér á Alþ. af hv. flokksbróður hans, hv. þm. Eðvarð Sigurðssyni. Eru sennilega fleiri en ég sem undrast nokkuð þessa afstöðu.