06.05.1976
Efri deild: 99. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3696 í B-deild Alþingistíðinda. (2996)
258. mál, kjarasamningar Bandalags starfsmanna ríkis og bæja
Ragnar Arnalds:
Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta frv. hér við 1. umr. málsins. Frv. er ávöxtur samkomulags sem fjölmenn stéttasamtök hafa gert við ríkisvaldið og af hálfu okkar alþb.- manna kemur ekki annað til greina en að fallist sé á þá niðurstöðu.
Eins og kunnugt er hafa opinberir starfsmenn haft minni rétt en aðrir frjálsir menn í þessu landi. Að vísu hafa þeir haft takmarkaðan samningsrétt um laun sín og kjör, en sá samningsréttur hefur þó verið þeim annmörkum háður að þeir hafa enga möguleika haft til að knýja á um kröfur sínar. Þeir hafa orðið að lúta gerðardómi sem oft og tíðum hefur verið þeim mjög þungur í skauti.
Alþb. hefur lengi fylgt þeirri stefnu að opinberir starfsmenn ættu að fá samningsrétt eins og aðrir launþegar, og við höfum oft flutt till. þess efnis, enda er það svo að í öllum nálægum löndum þykir það sjálfsagt mál að opinberir starfsmenn njóti réttinda á vinnumarkaðinum á við aðra launþega.
Sú niðurstaða, sem nú er fengin, er að vísu alls ekki í fullu samræmi við kröfur opinberra starfsmanna og enn siður í samræmi við stefnu okkar alþb.-manna. Í þessu samkomulagi eru ýmis ákvæði sem eru mjög ófullnægjandi. Ég get t.d. nefnt hér það ákvæði, að samningstíminn skuli bundinn við tvö ár. Slíkt ákvæði kynni að vera eðlilegt ef opinberum starfsmönnum væri örugglega tryggðar fullar verðbætur launa á samningstímabilinu hverju sinni. En þar sem við búum í sérstæðu þjóðfélagi þar sem einstæð óðaverðbólga gengur yfir ár frá ári undir afleitu stjórnarfari og þar sem öllum er ljós sú gagngera viðleitni ríkisvaldsins að koma í veg fyrir fullar verðuppbætur launa, þá er ákvæði af þessu tagi að sjálfsögðu mjög óhagstætt. Enn síður getur samkomulagið verið nokkurt fordæmi fyrir verkalýðshreyfinguna og fyrir það form sem nú er í lögum um lausn á vinnudeilum almennt.
Eins og flestum mun kunnugt dreymir ýmsa menn í þessu þjóðfélagi drauma um að skerða réttindi verkalýðshreyfingarinnar til að knýja á um laun sín. Menn dreymir um að draga úr samtakamætti launamanna og lama getu þeirra til þess að standa vörð um hagsmuni sína. En við verðum að sjálfsögðu að skoða það samkomulag, sem hér liggur fyrir, einfaldlega í ljósi þess að það snertir stóran hóp launamanna sem hefur verið réttlaus eða a.m.k. réttlítill, en er með þessu samkomulagi að öðlast takmarkaðan samnings- og verkfallsrétt.
Það er því skoðun okkar alþb.- manna, að enda þótt menn hljóti að líta á þetta samkomulag með nokkurri tortryggni ef menn eru einungis að líta á núverandi réttindi hinna almennu verkalýðsfélaga, þá sé hitt miklu mikilvægara, að hér er tvímælalaust um að ræða mjög mikilvægt og stórt skref í rétta átt fyrir fjölmennan hóp launamanna. Við alþb.- menn munum því reyna að greiða götu þessa frv. hér í þinginu.