06.05.1976
Efri deild: 99. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3697 í B-deild Alþingistíðinda. (2997)

258. mál, kjarasamningar Bandalags starfsmanna ríkis og bæja

Þorv. Garðar Kristjánsson:

Herra forseti. Ég tel rétt þegar við 1. umr. þessa máls að fara um það nokkrum orðum.

Frv. þetta til l. um kjarasamninga Bandalags starfsmanna ríkis og bæja veldur þáttaskiptum í samskiptum opinberra starfsmanna og ríkisins ef samþ. verður. Hér er um að ræða að opinberum starfsmönnum er veittur verkfallsréttur og þar með er horfið frá banni á verkfalli opinberra starfsmanna sem hefur verið í lögum allt frá því árið 1915. Ég tel að Í þessu felist röng og varhugaverð stefna. Þetta samrýmist hvorki okkar veika ríkisvaldi né reynslu þeirri sem við höfum af verkföllum í þessu landi. Vera kann að einhverjum finnist þessi skoðun ekki lýsa miklum skilningi af minni hálfu á mikilvægi opinberra starfsmanna og stöðu þeirra. En svo er ekki. Þvert á móti mótast þessi skoðun einmitt af því hve þýðingarmiklu hlutverki opinberir starfsmenn hafa að gegna. Það er líka fátt mikilvægara í einu þjóðfélagi en að búið sé þannig að opinberum starfsmönnum að þeir megi vel við una launakjör, öryggi og allan aðbúnað. Þetta þarf sérhver ríkisstj. að skilja og virða án þess að veifað sé yfir henni svipu verkfallsvopnsins.

Það er að sjálfsögðu skylda ríkisvaldsins að haga starfsemi sinni á svo hagkvæman hátt að hún kosti skattborgarana ekki fé að óþörfu, en veiti þeim fyrirgreiðslu og þjónustu sem nauðsynleg er í nútímaþjóðfélagi. Sumum kann að virðast í fljótu bragði sem þessi höfuðsjónarmið hljóti að stangast á. En svo er þó ekki, því að oftlega fer það saman að hægt er með skynsamlegu skipulagi og fyrirkomulagi á störfum að spara ríkinu fé, veita almenningi betri þjónustu og um leið bæta kjör starfsmanna. Ríkið á mikið undir því, eins og hinir opinberu starfsmenn sjálfir, að samstarf sé gott og skilningur ríki á milli þessara aðila.

Það er ekki einungis hér á landi sem verkföll opinberra starfsmanna eru bönnuð. Ég veit ekki betur en að það sé hin almenna regla í öðrum þjóðlöndum þar sem samanburður kemur til greina. Frá þessu eru undantekningar. En hvað sem er um þessi efni í öðrum löndum ber okkur fyrst og fremst að líta á íslenskar aðstæður. Hvað sem kann að vera í öðrum löndum vikið frá banni við verkfalli opinberra starfsmanna er þess að gæta, að aðstæður eru þar aðrar en þær eru hjá okkur. Hvergi í sjálfstæðu ríki er ríkisvaldið veikara en einmitt hér á landi, og það ætti ekki að þurfa að minna á þessa staðreynd, svo greypt sem hún ætti að vera í okkar þjóðarvitund. Sporin hræða. Við minnumst fjörbrota okkar forna þjóðveldis og hver örlagavaldur það var að á skorti ríkisvaldið. Ég er ekki að jafna þessu við ástandið í dag. Við getum þó verið allir sammála um að okkar ríkisvald er veikt. Það ástand er ekki sambærilegt við það sem annars staðar gerist. Við höfum ekki her og ætlum okkur ekki að hafa her. En í öðrum löndum er herinn þrautaráðið þar sem hermenn eru látnir ganga í ýmis þau störf sem nauðsynleg eru til þess að halda uppi þeirri þjónustu sem hvert ríki verður að sjá um undir öllum kringumstæðum.

Ég sagði áðan að reynsla okkar af verkföllum mælti ekki með verkfallsrétti til handa opinberum starfsmönnum. Við kunnum að hafa mismunandi skoðanir á verkföllum. En hvaða skoðanir sem menn hafa í því efni, þá hljóta allir að gera sér það ljóst að vinnustöðvanir, ef til þeirra kemur, hljóta alltaf að valda þjóðarbúinu meira eða minna tjóni og þannig torvelda, svo langt sem það nær, raunverulegar kjarabætur. Og eru menn nú ekki á raun og veru orðnir sammála um það að verkfallsbaráttan sé orðin meira eða minna úrelt aðferð til kjarabóta? Menn vilja kannske ekki allir orða þetta á þennan veg, heldur að verkfallsbaráttan hafi ekki borið tilætlaðan árangur.

Er það ekki í raun og veru þetta sem forseti Alþýðusambandsins segir okkur nú þessa dagana. Segir hann ekki að í raun og veru sé allt nú þegar unnið fyrir gýg sem áunnist hafi fyrir nokkrum vikum í almennasta verkfalli sem nokkru sinni hafi verið háð hér á landi? Hvað þýða svo yfirlýsingar forseta Alþýðusambandsins um það að nú nægi ekki lengur hin faglega barátta verkalýðsfélaganna, heldur verði að taka upp pólitíska baráttu? Ef þetta er ekki dómur um fánýti verkfallsvopnsins, þá veit ég ekki hvað það er.

Ég er sammála forseta Alþýðusambandsins að það hljóti að vera betra að taka upp kjarabaráttuna á stjórnmálalegum grundvelli. Það mætti segja mér að það væru í raun og veru margir sem væru sammála í þessu efni. Það mætti segja mér að áður en langur tími liði yrðu æ fleiri og fleiri sammála um þetta. Hins vegar veit ég að það er ágreiningur um það eftir hvaða stjórnmálaleiðum sé vænlegast að fara til þess að ná árangri í kjarabaráttu verkalýðsins í landinu. Um það höfum við mismunandi skoðanir. En stjórnmálum er samfara skoðanaágreiningur. En kjarni málsins er sá, að ef kjaramálin eru leyst eftir stjórnmálalegum leiðum, þá hlýtur það að leiða að einhverju leyti eða í einhverju formi til fráfalls frá verkfallsvopninu. Það leiðir til samninga og lýðræðislegra stjórnvaldsráðstafana án valdbeitingar verkfallsbaráttunnar. Mér virðist það því kaldhæðnislegt að einmitt nú skuli eiga að hefja til vegs verkfallsaðferðina með því að veita opinberum starfsmönnum verkfallsrétt. Mér virðist það vera að ganga aftur á bak og í öfuga átt.

Nokkrum árum eftir að íslendingar fengu fjárforráð eða á þingi 1875 voru sett lög um laun opinberra starfsmanna, og fram til 1962 var sú skipan á launamálum opinberra starfsmanna að Alþ. setti með sérstökum launalögum ákveðin laun þeim til handa. Hér skal ekki rakin sú saga. Ég minnist aðeins á hvað gerst hefur á síðari árum. Nefni ég í þessu sambandi lögin nr. 38 frá 1954, um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna, sem veittu ríkisstarfsmönnum ýmsar réttarbætur, og ég nefni lög nr. 92 frá 1955, um laun starfsmanna ríkisins. En þáttaskilum valda lögin um kjarasamninga opinberra starfsmanna frá árinu 1962. Það var þá sem Alþ. kom til móts við óskir opinberra starfsmanna og veitti þeim samningsrétt í kjaramálum sínum. Alþ. afsalaði sér því valdi, sem það hafði með setningu launalaga, og fól endanlegt úrskurðarvald um launakjörin Kjaradómi ef samningar tækjust ekki. Það mátti vita að það hefði meginþýðingu, ef þetta fyrirkomulag ætti að heppnast, að samningsaðilar gætu haldið þannig á málum að samkomulag næðist án þess að málið þyrfti að ganga til Kjaradóms.

Ég skal ekki fjölyrða nú um það hver reynslan hefur orðið af þessu fyrirkomulagi. Ljóst er að opinberir starfsmenn eru ekki nægilega ánægðir með það. En ég tel meira en vafasamt að kasta þessu fyrirkomulagi fyrir róða, heldur beri að bæta það með tilliti til þess að opinberir starfsmenn geti við unað. Kemur þá til greina bæði að breyta skipan Kjaradóms og ákvæðum um þau efni sem Kjaradómur skal hafa hliðsjón af við úrlausnir sinar. Við höfum þegar reynslu um svipað fyrirkomulag við ákvörðun um verð á landbúnaðarafurðum svo og víð ákvörðun fiskverðs, og framkvæmd þeirra mála hefur reynst á þann, veg að bæði bændur og sjómenn hafa unað við þetta fyrirkomulag við ákvörðun á kjörum þeirra þó að þeir hefðu engan verkfallsrétt um þessi efni. Hvers vegna, spyr ég, skyldi ekki vera hægt að gera svo við opinbera starfsmenn að þeir gætu einnig unað núverandi skipulagi kjaramála þeirra þótt þeir hefðu ekki heldur verkfallsrétt?

Kröfunni um verkfallsrétt til handa opinberum starfsmönnum hefur verið hampað hér á Alþ. Við meðferð frv. að lögum nr. 92 frá 1955, um laun starfsmanna ríkisins, kom fram brtt. um að opinberum starfsmönnum væri heimilaður verkfallsréttur. Við frv. að lögum nr. 55 frá 1962, um kjarasamninga opinberra starfsmanna, komu fram till. um verkfallsrétt til handa opinberum starfsmönnum. Í báðum þessum tilfellum voru brtt. þessar fluttar af kommúnistum, en felldar af þm. allra flokka nema kommúnista, hvort sem þeir voru þá kallaðir sósíalistar eða alþb.- menn. Og þegar alþb.-menn komu í ríkisstj. á árinu 1971 beittu þeir áhrifum sínum til þess að í málefnasamning vinstri stjórnarinnar var tekið upp það ákvæði að ríkisstj. vildi að opinberir starfsmenn fengju fullan samningsrétt um kjör sín, enda hyrfu þá öll sjálfvirk tengsl milli launasamninga þeirra og annars launafólks,eins og það var orðað í þessum málefnasamningi. Þetta var skilið svo, enda yfirlýst af hálfu vinstri stjórnarinnar, að opinberum starfsmönnum skyldi veittur verkfallsréttur. Þetta stefnuskráratriði framkvæmdi vinstri stjórnin ekki, og má því með sanni segja að henni var ekki alls varnað.

Það verður ekki annað sagt en að fram hafi komið á Alþ. mikill áhugi hjá alþb.- mönnum fyrir því að veita opinberum starfsmönnum verkfallsrétt, svo sem glögglega mátti heyra á máli síðasta hv. ræðumanns. Mig undrar því ekki ánægja þeirra með það frv., sem hér er til umr. Hins vegar hefur fram að þessu alltaf verið sterk og yfirgnæfandi andstaða gegn þessum fyrirætlunum og þá fyrst og fremst frá sjálfstæðismönnum. Það er ekki heldur að finna nein ákvæði um það í málefnasamningi núv. ríkisstj. að ríkisstj. hygðist koma á verkfallsrétti opinberra starfsmanna. Hins vegar hefur núv. ríkisstj. lagt fram frv. það sem við nú fjöllum um og er það meira en ég átti von á. Það hryggir mig sannarlega að slík ríkisstj. sem hæstv. núv. ríkisstj. skuli kjósa sér það hlutskipti að vilja eiga yfir sér reidda verkfallssvipu opinberra starfsmanna, en láta sér ekki nægja að gera svo vel við opinbera starfsmenn að þeir megi una hag sínum.