06.05.1976
Efri deild: 99. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3701 í B-deild Alþingistíðinda. (3002)

260. mál, réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Frv. þetta til breyt. á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 38 frá 1954, er flutt í tengslum við þau tvö frv. sem ég hef áður gert grein fyrir og einnig byggt á þeim samkomulagsdrögum sem liggja til grundvallar þeim frv.

Í 10. gr. þeirra samkomulagsdraga, sem gerð var grein fyrir áður og eru Í grg. með frv. um kjarasamninga BSRB, er gert ráð fyrir að starfsmönnum, er skipa tiltekin störf, skuli óheimilt að gera verkfall. Hér er um að ræða ýmsa embættismenn og tiltekið starfsfólk við dómgæslu, löggæslu og stjórnsýslu. Sú upptalning er þó ekki tæmandi. Stór hluti þeirra stöðuheita, sem upp eru talin í frv., er nú skipaður mönnum sem eru utan vébanda Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og upptalning á þeim á því ekki heima í frv. til l. um kjarasamninga Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Þessar stöður allar er þó nauðsynlegt að undanþiggja verkfallsrétti með lögum þar sem allir ríkisstarfsmenn geta orðið félagar í Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja. Eðlilegt þykir að þessi ákvæði séu bundin í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins þar sem þau taka til allra ríkisstarfsmanna án tillits til aðildar þeirra að starfsmannafélögum eða heildarsamtökum.

Um frv. að öðru leyti leyfi ég mér að vísa til athugasemda með því. Ég legg til, herra forseti, að frv. verði að þessari umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.