06.05.1976
Efri deild: 99. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3709 í B-deild Alþingistíðinda. (3010)

263. mál, biskupsembætti

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Ég er nú einn þeirra þegna þessa kalda lands sem gjarnan vildu sjá meiri áhrif frá kirkjunni, meiri áhrif í sambandi við siðferðilegt uppeldi þessarar þjóðar af kirkjunnar hálfu sem hæstv. kirkjumrh. gat um. Ég hygg að við höfum látið það dragast fulllengi, hvernig svo sem á því stendur, að gera úttekt á hlutverki kirkjunnar í þessu samfélagi okkar.

Það er alveg rétt sem hæstv. ráðh. segir, til kirkjunnar er ekki varið miklu fé. En ég vildi gjarnan að ráðstafanir yrðu gerðar til þess, af því að ráðin eru tiltæk, að gera úttekt á árangrinum af starfi okkar klerkastéttar og okkar kirkjulega starfi til þess að geta síðan lagt á það dóm hvort æskilegt sé að auka fjárveitingar til kirkjunnar, hvort það fé, sem varið er til kirkjunnar, renti sig nú í þjóðlegum dyggðum æskulýðsins eða hvort þetta litla fé, sem til kirkjunnar er veitt, beri bókstaflega engan árangur.

Mér er persónulega kunnugt um það að ýmsir góðir þjóðlegir þegnar austanlands og norðan hafa lengi haft áhuga á því að Hólastóll yrði endurreistur. En ég hygg nú að þeir ætlist ekki til þess að það verði mjög ódýr biskup sem þar settist að, fyrirheit um billegan biskup mundu tæpast gefa byr undir vængi vonum þeirra um endurreisn staðarins.

Hin sögulega rómantík í sambandi við biskupsstólana hina fornu er nú blandin nokkru beisku raunsæi. Það þótti ekki gott að búa í grennd við stórhöfðingja, það þótti raunar gott að búa fjarri biskupssetrunum. En þetta breytir ekki þeirri staðreynd að æskilegt er að myndarlega sé búið að hinum fornu sögulegu höfðingjasetrum okkar. Það tel ég æskilegt, og æskilegt að það rísi í fyrsta lagi minnismerki um forna sögulega þýðingu þessara staða og að sú starfsemi sé rekin ekki síst á Hólum sem nágrannasveitunum sé nokkur sæmd að. En ég tek undir það með hv. þm. Helga F. Seljan, að í svipinn sé ég meiri von til þess að þetta verði gert á Hólum með því að efla búnaðarskólann þar, verja jafnvel því litla fé, sem það mundi kosta að reka þarna ódýrt minni háttar biskupssetur, — verja því fé um sinn til skólans. Ég held að ávinningurinn væri þar vísari.