06.05.1976
Efri deild: 99. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3710 í B-deild Alþingistíðinda. (3012)
162. mál, sveitarstjórnarlög
Axel Jónsson:
Herra forseti. Hér er um að ræða mál sem flutt var í Nd. af þm. allra flokka, frv. til breyt. á sveitarstjórnarlögum varðandi laun oddvita. Eins og fram er tekið í grg. hafa laun oddvita til þessa verið 4% af tekjum, sem oddvitar innheimta fyrir sveitarsjóði, og auk þess gjald sem miðast við íbúafjölda sveitarfélaga. Gjald það var á s.l. ári 260 kr. á íbúa. Frv. þetta gengur í þá átt að laun oddvita verði 6% af öllum rekstrartekjum sveitarfélagsins. Sú breyting var gerð á frv. í Nd., að auk þess sem í 1. gr. í frv. segir: „í hreppum þar sem sveitarstjóri er ekki starfandi“ — bar var bætt við: eða annar starfsmaður við stjórn sveitarfélagsins, skulu oddvitar svo eiga rétt á launum o.s.frv.
Félmn. þessar hv. d. ræddi málið á fundi sínum og leggur til að það verði samþ. eins og fram kemur á þskj. 598. Fjarstaddir afgreiðslu málsins voru Eggert G. Þorsteinsson og Steingrímur Hermannsson.