06.05.1976
Efri deild: 99. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3712 í B-deild Alþingistíðinda. (3018)
252. mál, tollheimta og tolleftirlit
Frsm. (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja brtt. við frv. til l. um breyt. á lögum um tollheimtu og tolleftirlit sem er mjög einföld Í sniðum, en það er aðeins að inn komi ný gr. er verði 4. gr. og orðist svo: „Lög þessi öðlast þegar gildi.“
Það hafði fallið niður að setja gildistökuákvæði í frv. þegar það var flutt og hafði einnig farið fram hjá nm., en hins vegar munu lögin, ef samþ. verða, ekki taka gildi fyrr en eftir 3 mánuði ef þetta ákvæði vantar. En þar sem er brýnt að þessi lög taki gildi hið fyrsta, þá er ástæða til þess að taka það fram að lög þessi öðlist þegar gildi, og hef ég leyft mér að flytja brtt. þess efnis.