06.05.1976
Neðri deild: 99. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3714 í B-deild Alþingistíðinda. (3026)
218. mál, lyfsölulög
Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):
Virðulegi forseti. Þetta frv. um breytingu á lyfsölulögum er samið af n. sem skipuð var til þess að gera till. um breytingar á lyfsölulögum og í áttu sæti landlæknir, deildarstjóri í heilbrrn. og prófessorarnir Sigurður Líndal, Vilhjálmur G. Skúlason og Þorkell Jóhannesson og Sigurður Ólafsson lyfsali, og það er aðeins hluti af þeirri endurskoðun sem verið er að vinna að í sambandi víð lyfsölumál.
Höfuðatriði þessa frv. er það að heiti lyfjaskrárnefndar er breytt í lyfjanefnd, og enn fremur er nokkur breyting gerð á, hvernig n. er skipuð, og gerð nokkur breyting á lyfjaeftirliti ríkisins. En hins vegar heldur þessi n. áfram störfum sínum og endurskoðun sinni á lyfjamálum og er búist við að hún muni ljúka störfum næsta haust eða fyrri hluta vetrar og þá muni verða flutt frv. um heildarbreytingu Í lyfjamálum. En n. lagði áherslu á að þessar breytingar yrðu gerðar nú, bæði vegna samræmingar á heiti, störfum og hlutverki lyfjanefndar hér og á Norðurlöndum og eins eru hér þrengri ákvæði en eru í gildandi lögum varðandi fíkniefni og ávanalyf.
Ég tel ekki ástæðu til þess að fjölyrða frekar um þetta mál, en leyfi mér að leggja til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til hv. heilbr.- og trn.