06.05.1976
Neðri deild: 99. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3756 í B-deild Alþingistíðinda. (3049)

212. mál, upptaka ólöglegs sjávarafla

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Virðulegi forseti. Þetta frv. hefur verið rætt í ríkisstjórn Íslands, í þingflokkum stjórnarflokkanna og vafalaust í þingflokkum stjórnarandstöðunnar. Í ríkisstjórn Íslands eru fimm lögfræðingar, þar af tveir fyrrverandi prófessorar. Í þingflokki Sjálfstfl. og Framsfl. eru allmargir lögfræðingar og meðal annarra sá sem var að tala hér áðan. Enginn þeirra hefur látið í ljós nokkrar efasemdir um, að þetta frv. bryti í bága við stjórnarskrá Íslands, fyrr en þessi hv. þm. nú þegar málið kemur til 2. umr. í seinni deild eftir að það er búið að liggja fyrir Alþ. í allmarga mánuði. En með allri virðingu fyrir þessum hv. þm., þá treysti ég miklu betur dómgreind og lærdómi dr. Gauks Jörundssonar og fyrrv. lagaprófessora víð Háskóla Íslands svo ég læt þessar athugasemdir hans mig litlu varða.

Dómendur eiga að fara með dómsvald, segir stjórnarskráin. Það er alveg hárrétt. Lögregla hefur heimild til þess að sekta mann fyrir umferðarlagabrot. Tollverðir mega taka sektir af mönnum, sem koma með ólöglegan tollvarning til landsins, innan ákveðinna marka, og þeir fá afgreiðslu. Það er sem sagt upptaka afla hjá þessum mönnum af því að þeir hafa komið með hann ólöglega til landsins. Þarna hefur stjórnarskráin verið brotin að dómi þessa hv. þm. vafalaust.

Það er ekki verið að dæma neinn samkvæmt þessu frv., það er algjör della úr þm., hrein og klár della. Hér er aðeins verið að koma á þeirri reglu að skip sitji við sama borð eða líkt borð hvaða veiðar sem það stundar, og það er hreinn misskilningur hjá ræðumanninum, sem talaði hér á undan, að skipstjóri beri einn sökina, áhöfninni beri að hlýða skipstjóra í blindni, ef skipstjóri segi háseta að smygla brennivíni til landsins, þá eigi hann að hlýða að dómi þessa hv. þm. Ég hef aldrei heyrt aðra eins rakaleysu hér á Alþ. eins og þessa. Ég held að agi á íslenskum skipum eða agi hér á okkar ágæta landi sé ekki það mikill að menn hlýði í blindni því sem einhver yfirmaður skipar hverju sinni. Ég bendi þessum hv. þm. á hvað er gert gagnvart sjómönnum sem stunda botnvörpuveiðar og eru teknir við ólöglegar veiðar. Þar er afli gerður upptækur og meira til, veiðarfæri líka. Hvað er gert með togarana þegar þeir eru teknir í landhelgi? Þeir eru teknir, þeir fá ekki að fara út fyrr en kveðinn hefur verið upp dómur. En það, sem þetta frv. gerir ráð fyrir, er að kæra alls ekki alla. Það eru sum brot það lítilfjörleg að það er langbesta og fljótasta refsingin að gera upptækan hinn ólöglega afla þegar brot eiga sér stað, en það þarf ekki endilega að kæra viðkomandi fyrir sakadómi. Það hlaðast upp mál fyrir sakadómi svo hundruðum skiptir. Það mætti auka töluvert á útgjöld fjárlaganna ef ætti að fara að kæra hvern einasta mann sem brýtur veiðileyfi, hversu smávægilegt sem það er. Það tel ég að sé spor í öfuga átt. Það er eins og það sé komið fullkomið atvinnuleysi hjá lögfræðingum eftir þessari síðustu ræðu og þeir sjái fjandann á veggnum og engan möguleika á atvinnuleysisstyrk. Hvað er gert gagnvart þeim mönnum sem brjóta nú? Þeir eru sviptir veiðileyfum í nokkra daga, við skulum segja t.d. við skelfiskveiðar. Hefur þá ekki stjórnarskráin verið brotin í fjöldamörg ár? Hvers konar ríki er það sem við lifum í? Og þetta hefur allt farið fram hjá hv. síðasta ræðumanni, 11. þm. Reykv., nú klukkan að verða 7 á þessum degi verður hann þess áskynja að stjórnarskrá lýðveldisins Íslands sé fótum troðin.

Það er ágætt að koma á stofnun eins og Hafrannsóknastofnun sem kostar hundruð milljóna Í framkvæmd til þess að vernda fiskstofnana, til þess að leiðbeina í atvinnulífinu, til þess að vera ráðgjafi ríkisvaldsins á hverjum tíma. Svo þegar hún bendir á veilur, bendir á að við verðum að auka friðunaraðgerðir, við verðum að auka aga, þá er sagt: Nei, engar takmarkanir, við megum ekki skerða frelsi sjómanna, þeir verða að fá að fiska svo að stjórnmálamennirnir geti haldið áfram að tala um að þeir veiddu fleiri fiska heldur en sjómenn nokkurrar annarrar þjóðar, eins og ræðumaður sagði hér áðan. — Ég vil mjög gjarnan að íslenskir sjómenn fiski meira en sjómenn allra annarra þjóða. En þegar við verðum að takmarka sókn Í ákveðnar tegundir að ráði vísindamanna okkar, þeirra manna sem við höfum falið þetta hlutverk, þá verða íslenskir sjómenn að fara eftir þeim reglum. En við eigum ekki að gera þessa stjórnun að ofstjórn. Við verðum að taka mið af því hvernig ástandið er samkvæmt áliti okkar vísindamanna og fara eftir því. Við þurfum ekki að takmarka veiðar, sem betur fer, á fjölmörgum tegundum, og þar er í raun og veru engin stjórnun. Það hafa ekki verið miklar takmarkanir varðandi þorskstofninn.

Sambandi við athugasemdirnar með þessu frv., sem hv. 5. þm. Vesturl. gat um, að menn græddu á því að brjóta, eins og á síldveiðunum, það sé ég hvergi í athugasemdum, að skipstjórinn hafi grætt á því að brjóta ákvæði um veiðar. Það er nefnt hver upphæðin er sem um er að ræða, að margir síldarbátanna fiskuðu mun meira en þessum kvóta nam, mismunandi mikið, en allt upp í 144 tonn fram yfir kvótann. „Brúttóverðmæti umframafla þessa báts, miðað við að allt hafi farið í fyrsta flokk, mun nema 5 millj. 760 þús. kr. Ekki er vitað til þess að neinn af skipstjórum þeim, sem kærðir voru fyrir að hafa brotið þessa reglu um hámarkssíldarafla, hafi enn hlotið sektardóm“ o.s.frv. Síðan er sagt að sumir hafi hagnast mjög verulega á þessum brotum. Það er ekki sagt að skipstjóri viðkomandi báts hafi hagnast á brotinu. Það er auðvitað útgerðin og skipshöfnin öll sem hagnast á þessu broti svo það er ekki verið neitt að fara í kringum þessa hluti. Það er verið að skýra frá því hver hafi verið heildarafli, aflaverðmæti umfram það sem mátti veiða og hvað hámarkssektin er, ekki að skipstjórinn hafi grætt einn á því að brjóta, heldur er það auðvitað útgerð og áhöfnin í heild.

Ég tel að ef við ætlum að fylgja eftir að viðhalda friðunarráðstöfunum, viðhalda aflakvóta í einstakar tegundir af fiski nú um hríð, þá verðum við að beita sömu viðurlögum gagnvart þeim mönnum, sem brjóta þessar reglur, eða svipuðum og gagnvart þeim sem stunda botnvörpuveiðar og gerast sekir um brot á botnvörpulögunum. Við megum ekki mismuna á þennan hátt. Við verðum að koma í veg fyrir að þessi brot endurtaki sig. Það er fyrst og fremst það sem máli skiptir, að menn finni að það borgar sig ekki að brjóta, það sé skilyrðislaus upptaka afla. Ef viðkomandi maður telur sig beittan órétti, þá getur hann leitað úrskurðar dómstólanna, og því er ekkert dómsvald sett í hendur öðru rn., það dæmir engan mann í sekt, það er aðeins þetta ákvæði um upptöku afla sem verður þá leiðrétt. Ef rn. eða starfsmönnum þess verður á að beita mann eða menn rangindum, þá hefur maðurinn þann rétt. Dómsvaldið er fyrir hendi. En það er ákaflega lítils virði að setja reglur um aflakvóta, eins og gert var á síldveiðum á s.l. hausti, þegar dómsvaldið er svo seint og þungt í vöfum eins og við vitum. Það er ekkert nýtt á Íslandi, það er ekkert nýtt í öðrum löndum, og það er engin ástæða til þess að vera með neinar ásakanir, hvorki á hendur einum né öðrum, í þeim efnum þegar þessi verkefni hafa þanist svo út. Ef við ætlum að viðhalda því, þá fáum við svona 300–400 ný mál á ári fyrir hvers konar brot, brot sem sjútvrn. eða trúnaðarmenn þess kæra sig alls ekki um að kæra til sakadóms, sem eru það lítils virði. En hitt skilja menn best, upptöku afla, og það er það sem skiptir höfuðmáli. Ég ætla að taka það fram að ég hef ekki breytt um skoðun eftir lögskýringu 11. þm. Reykv. Hann þyrfti sennilega að flytja yfir mér fleiri ræður í sama dúr og þessa síðustu.