06.05.1976
Neðri deild: 99. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3772 í B-deild Alþingistíðinda. (3060)
271. mál, Happdrætti Háskóla Íslands
Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Frv. þetta, sem hér liggur fyrir um breyt. á l. nr. 13 13. apríl 1973, um Happdrætti Háskóla Íslands, svo og tvö önnur frv. sem lögð hafa verið fram í hv. þd., um breyt. á l. nr. 16 13. apríl 1973, um happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna, og um breyt. á l. nr. 18 22. apríl 1959, um vöruhappdrætti fyrir Samband íslenskra berklasjúklinga, eru flutt í tilefni af tilmælum frá forráðamönnum þessara happdrætta um heimild til að nota tölvu við útdrátt vinninga í happdrættum þessum. Ástæða þess að happdrættin óska þess að breyta þannig til um drátt er þríþætt. Í fyrsta lagi telja þau miklum örðugleikum bundið nú að fá gerða miða eins og þá sem hingað til hafa verið notaðir við drátt. í öðru lagi telja þau mikinn kostnað við dráttinn með þeim hætti sem átt hefur sér stað. Og í þriðja lagi telja þau að þetta leiði til tímasparnaðar.
Við athugun á lögum um happdrættin kemur fram að þar segir að dráttur skuli fara fram opinberlega. Með því er að sjálfsögðu átt við það að almenningur eigi rétt á að vera viðstaddur drátt, og jafnframt hefur verið litið svo á að sá dráttur skuli fara fram með þeim hefðbundna hætti að dregin séu saman númer og vinningur og á þann hátt unnt að fylgjast með hverjum drætti. Dráttur í tölvu fer hins vegar fram samkv. forskrift sem skráð er á gataspjöld og gerð er fyrir fram, en drátturinn byggist þó á talnaröð sem dregin er með hefðbundnum hætti.
Ég hef talið rétt að lögunum um happdrætti yrði breytt áður en heimild yrði veitt til að framkvæma drátt með þessum nýja hætti, þótt hugsanlegt hefði e.t.v. verið að túlka gildandi lagaákvæði svo að það væri heimilt. En mér þykir rétt að Alþ. fái að fjalla um það atriði og segja sitt álit á því.
Rétt er að taka það fram að happdrættisdráttur með tölvu er tíðkaður víða erlendis og hér á landi eru vinningar í skuldabréfahappdrættum ríkissjóðs dregnir út í tölvu. Um fyrirkomulag allt við drátt þarf að sjálfsögðu að setja nánari reglur í reglugerð, þ. á m. um skipun eftirlitsnefndar.
Af hálfu happdrætta hafa verið ráðagerðir um að geta hafið drátt með þessum nýja hætti þegar á þessu ári. Er því æskilegt að unnt verði að afgr. þessi frv. á yfirstandandi þingi. Vil ég því mælast til þess að hv. þd. og sú n., sem fær málið til athugunar, stuðli að því að svo geti orðið enda þótt nú sé farið að styttast til þingloka.
Ég vil að lokum leggja til að frv. því, sem ég hef nú mælt fyrir, svo og tveimur næstu frv., sem ég mun ekki sérstaklega mæla fyrir, verði vísað til allshn.