11.11.1975
Sameinað þing: 13. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 490 í B-deild Alþingistíðinda. (310)

292. mál, þátttaka ríkissjóðs í greiðslum til löggæslumanna

Fyrirspyrjandi (Karvel Pálmason) :

Herra forseti. Á árinu 1972 var gerð sú breyt. að því er varðar kostnað vegna lögreglumanna að ríkisstj. yfirtók þann kostnað, en áður var þetta skipting milli ríkissjóðs og sveitarfélaga. Enginn vafi er á því að þessi breyt. létti miklum útgjaldaböggum af hinum ýmsu sveitarfélögum og var því almennt, að ég held, fagnað og skilningur manna varðandi þessa breyt. var og er, að ég held, að með henni hafi ríkissjóður yfirtekið allan kostnað við störf löggæslu í landinu. Ýmislegt bendir þó til þess varðandi framkvæmd málsins að svo sé ekki, og ég hef því leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. dómsmrh., svo hljóðandi:

„Hvaða reglur gilda um þátttöku ríkissjóðs í greiðslu kostnaðar vegna starfa löggæslumanna á stöðum þar sem ekki eru fastráðnir lögreglumenn?“