07.05.1976
Neðri deild: 102. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3789 í B-deild Alþingistíðinda. (3108)

267. mál, sala Reykhóla í Reykhólahreppi í Austur-Barðastrandasýslu

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Þetta frv. er flutt af fimm þm. Vestf. að beiðni hreppsnefndarinnar í Reykhólahreppi og fjallar um það að ríkisstj. sé heimilt að selja Reykhólahreppi á Austur-Barðastrandarsýslu jörðina Reykhóla að undanskildu landi tilraunastöðvarinnar og Þörungaverksmiðjunnar hf., en um aðild eða eignarrétt hreppsfélagsins að hitavatnsréttindum fari eftir samningum milli ríkisins og hreppsins.

Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta frv. Það fylgir því ítarleg grg. um þörf hreppsins fyrir að eignast þetta land vegna skipulags. Þarna er verið að reisa þéttbýliskjarna sem er eðlilegt og rétt að hreppsfélagíð eignist. Þetta var sent sem almenn áskorun til þm. Vestf., að flytja þetta mál, og vísa ég að öðru leyti til grg.

Ég legg til, herra forseti, að að lokinni umr. verði málinu vísað til hv. landbn.